BM Vallá óskar eftir gjaldþrotaskiptum 17. maí 2010 13:33 Víglundur Þorsteinsson kvaddi starfsmenn BM Vallá í hádeginu.
Í dag, mánudaginn 17. maí, lagði stjórn BM Vallár hf. fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur beiðni um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Í tilkynningu segir að á undanförnum mánuðum hefur félagið unnið hörðum höndum að fjárhagslegri endurskipulagningu í samstarfi við helstu lánardrottna sína. Drög lágu fyrir að nauðasamningi við lánardrottna sem byggðu á samkomulagi um uppgjör við veðhafa og greiðslu á 30% óveðtryggðra krafna. Ein meginforsenda fjármögnunar nauðasamnings var skuldabréfaútboð sem félagið hafði unnið og kynnt fyrir fagfjárfestum. Á fundi með viðskiptabönkum félagsins, Arion banka og Landsbanka, síðastliðinn föstudag var óskað eftir því að félagið fengi heimild til að leggja fram nauðasamningsfrumvarp á þessum grunni og freista þess að ljúka á sama tíma fyrrnefndu skuldabréfaútboði. Á fundinum hafnaði Arion banki þeirri málaleitan og setti fram þá kröfu að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Í ljósi þessarar afstöðu bankans var stjórn félagsins nauðbeygður sá kostur að leggja fram beiðni um gjaldþrotaskipti félagsins í dag. Það er ljóst að fjárhagsstaða félagsins hefur verið óviðunandi um langt skeið vegna þeirra hamfara sem gengið hafa yfir íslenskt efnahagslíf. Fjármögnun félagsins var að mestu í erlendum lánum sem liðlega tvöfölduðust við hrun íslensku krónunnar á árinu 2008. Á sama tíma hefur orðið gríðarlegt eftirspurnarfall á byggingavörumarkaði og hefur sala á helstu vörum BM Vallár hf. dregist saman um á bilinu 50-70%. Brugðist hefur verið við þessum samdrætti á undanförnum misserum með öllum tiltækum ráðum. Mikill sparnaður hefur náðst fram í rekstrarkostnaði félagsins og grípa þurfti til umfangsmikilla uppsagna á starfsfólki sem hefur fækkað um liðlega 330 á liðnum tveimur árum. Þessi samdráttur hefur orðið enn meiri en ella vegna úrræðaleysis og vandræðagangs stjórnvalda í aðgerðum til stuðnings efnahagslífinu. Af þessum ástæðum var umfangsmikillar endurskipulagningar þörf á efnahag félagsins en áætlanir þar um gengu því miður ekki eftir. Við þrot er ljóst að fjárhagslegt tjón allra kröfuhafa, sér í lagi almennra kröfuhafa félagsins, verður umtalsvert meira en ella hefði þurft að verða. Hörmum við að niðurstaðan hafi orðið þessi. Í hinu erfiða árferði undanfarinna missera hefur starfsfólk BM Vallár lagt á sig ómælda vinnu, tekið á sig launalækkanir og skert starfshlutfall til að freista þess að bjarga fyrirtækinu frá þroti. Stjórn og stjórnendur félagsins vilja þakka þeim sérstaklega fyrir þessa miklu vinnu og fyrir langt og gott samstarf, sem spannar í mörgum tilfellum marga áratugi.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira