Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þekkja Ísland Ein afleiðing umrótsins sem íslensku bankarnir gengu í gegnum í fyrra var að miklu fleiri þekkja nú til Íslands, þar með taldir fjárfestar í skuldbindingum í íslenskum krónum. 6.6.2007 01:00
„Áður fyrr var eitrað fyrir fólki“ „Það skiptir ekki máli hvort maður er með mikla eða litla machiavellíska eiginleika. Það að vera machiavellískur þarf ekki að vera slæmt,“ segir Anna Gunnþórsdóttir, dósent og tilraunaleikjafræðingur við Australian Graduate Scool of Management í Ástralíu. Hún tekur það sömuleiðis skýrt fram að það að hafa litla eiginleika sem þessa sé heldur ekki slæmt. 6.6.2007 01:00
Úrvalsvísitalan sexfaldast á öldinni Þeir sem hafa átt og fjárfest í hlutabréfum á undanförum árum getað ekki kvartað yfir árangrinum. Frá ársbyrjun 2001 hefur Úrvalsvísitalan hækkað um 519 prósent. Á rúmum tveimur árum hefur vísitalan skilað um eitt hundrað prósenta ávöxtun og yfir fimmtíu prósenta ávöxtun frá því í byrjun ágúst á síðasta ári þegar vísitalan fór í lægsta punkt eftir umrótið á innlendum fjármálamarkaði. 6.6.2007 00:01
Borga fyrir sig Námsfúsir rússneskuunnendur geta glaðst yfir því að nám á því sviði við Háskóla Íslands verður byggt upp frá grunni með næsta hausti. Þetta gerir veglegur styrkur frá þeim feðgum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni Háskólanum mögulegt. 6.6.2007 00:01
Breytingar hjá Marel Í kjölfar samþættingar hjá Marel hf. hefur stjórn félagsins ákveðið að rekstur fyrirtækisins hér á landi verði skilinn frá móðurfélaginu, Marel hf. og um hann stofnað nýtt dótturfélag, Marel ehf. Samhliða þessu verður nafni móðurfélagsins breytt úr Marel hf. í Marel Food Systems hf. 5.6.2007 16:51
OMX mælir með tilboði Nasdaq Stjórn OMX mælir með því við hluthafa í kauphallarsamstæðunni að þeir samþykki yfirtökutilboð bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq. Tilboðið var lagt fram undir lok maí og hljóðar upp á 3,7 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 227,9 milljarða íslenskra króna. 5.6.2007 14:52
Landsbankinn spáir 0,5 prósenta hagvexti Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagvöxtur á árinu verði 0,5 prósent en gerir ráð fyrir að hann muni glæðast á næsta ári þrátt fyrir minnkandi sjávarafla. Upp á móti samdrættinum vega stóriðjuframkvæmdir og vaxandi álútflutningur, sem muni skila sér í 2,5 til 3,0 prósenta hagvexti á árunum 2008 til 2009. 5.6.2007 12:14
Krónan veikist um 2,32 prósent á einum degi Gengi íslensku krónunnar lækkaði umtalsvert í dag en við lokun markaða stóð gengisvísitalan í 114,20 og fór upp um 2,32 prósent. Krónan veiktist að sama skapi um sömu prósentutölu. 4.6.2007 16:26
Nýskráningum bíla fækkar Nýskráningar bíla fá yrsta fjórðungi þessa árs fækkaði frá sama tíma í fyrra. Sé litið til fyrstu fjögurra mánaða ársins er fjöldinn hins vegar svipaður. Þá jukust nýskráningar um 66 prósent í maí. Greiningardeild Landsbankans segir að um árstíðabundna aukningu að ræða auk þess sem gera megi ráð fyrir því að hækkun á gengi krónunnar hafi töluverð áhrif. 4.6.2007 15:54
Ráðinn tæknilegó hönnuður sextán ára Jóhann Breiðfjörð starfaði sem hönnuður hjá LEGÓ í mörg ár. Nú kennir hann íslenskum krökkum að byggja tæknilegó. 4.6.2007 14:00
Ráðgjöf Hafró: Slæmt til að byrja með en gott til lengri tíma Greining Glitnis telur að útflutningsverðmæti sjávarafurða geti minnkað um allt að 25 milljarða króna á næsta fiskveiðiári, fari sjávarútvegsráðherra að ráðum Hafrannsóknarstofnunar. Þeir benda hins vegar á að til langs tíma ætti ráðgjöf Hafró um lægri aflareglu að hafa jákvæð áhrif á stofninn til lengri tíma litið og þar með á hagvöxt næstu ára. 4.6.2007 10:47
Eyjamenn framlengja tilboðsfrest í Vinnslustöðina Eyjamenn ehf., sem framkvæmdastjórinn Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson og ráðandi hluthafar úr Eyjum fara fyrir, hafa ákveðið að framlengja tilboð sitt í Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum í kjölfar samkeppnistilboðs í félagið. Tilboðið var lagt fram 9. maí síðastliðinn og hljóðaði upp á 4,60 krónur á hlut. Með framlengingunni er þeim sem ákváðu að taka tilboðinu gert kleift að endurmeta samþykki sitt. 4.6.2007 09:30
Færeyskur banki í Kauphöllina Føroya Banki gefur í dag út útboðslýsingu vegna hlutafjárútboðs bankans og skráningar á hlutabréfamarkað á Íslandi og í Danmörku. 4.6.2007 09:06
Gott dæmi um virðingarleysi Samkvæmt árlegri rannsókn alþjóðlegra samtaka hugbúnaðarframleiðenda (Business Software Alliance) voru 53 prósent af hugbúnaði á Íslandi ólöglega fengin árið 2006. Til samanburðar var Svíþjóð með 26 prósent, Noregur með 29 prósent, Danmörk með 25 prósent og Finnland með 27 prósent. Heimsmeðaltalið er þrjátíu og fimm prósent. 4.6.2007 00:01
Finnur og félagar eignast Frumherja Eignarhaldsfélag í eigu Finns Ingólfssonar, stjórnarformanns Icelandair Group, og fleiri fjárfesta hefur keypt fyrirtækin Frumherja og Frumorku af Óskari Eyjólfssyni. 1.6.2007 17:34
Hagvöxtur í Evrópu meiri en í Bandaríkjunum Hagvöxtur á evrusvæðinu og innan ESB mældist 0,6 prósent á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er jafn mikill hagvöxtur og mældist í Bandaríkjunum á ársgrundvelli á sama tímabili. Gangi spár eftir mun hagvöxtur í Evrópu verða meiri en í Bandaríkjunum á árinu. Slíkt hefur ekki sést síðan árið 2001. 1.6.2007 16:20
Viðsnúningur í afkomu Spalar Spölur, sem er í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. og rekur Hvalfjarðargöng, skilaði hagnaði upp á 89 milljónir króna á fyrri helmingi síðasta rekstrarárs, sem stóð frá 1. október í fyrra til 31. mars í ár. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins árið á undan 83 milljónum króna. 1.6.2007 12:21
Novator gerir formlegt tilboð í Actavis Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur gert yfirtökutilboð í gegnum nýstofnað eignarhaldsfélag, Novator eignarhaldsfélag ehf. í allt hlutafé Actavis Group hf. í A-flokki sem ekki var þegar í eigu félaga tengdum tilboðsgjafa eða í eigu Actavis Group hf. Tilboðið hljóðar upp á 0,98 evrur á hlut. 1.6.2007 10:41
Novator eykur við sig í Netia Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur aukið við hlut sinn í Netia, næststærsta símafélagi Póllands og fer nú með 27 prósent hlutabréfa í félaginu. 1.6.2007 10:21
Minna tap hjá Flögu Flaga skilaði tapi upp á 605 þúsund bandaríkjadali, 37,4 milljónum króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Til samanburðar nam tapið á sama tíma í fyrra 877 þúsundum dala, 54,1 milljón króna. 31.5.2007 16:52
Stilla býður metverð fyrir Vinnslustöðina Stilla ehf., félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, og Hjálmars Kristjánssonar, hefur ákveðið að leggja fram tilboð í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Tilboðið er til höfuðs yfirtökutilboði Eyjamanna í byrjun maí og 85 prósentum hærra. Þetta er hæsta verð sem boðið hefur verið í hlutabréf Vinnslustöðvarinnar. 31.5.2007 10:25
Vöruskiptahalli eykst frá fyrri mánuðum Vöruskipti við útlönd reyndust óhagstæð um rúma ellefu milljarða í aprílmánuði samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er um milljarði meiri halli en í sama mánuði í fyrra en þá var hann rúmir tíu milljarðar. Vöruskiptahalli á fyrstu fjórum mánuðum ársins er um 20 milljarðar. 31.5.2007 09:12
Tesco heimsótti Bakkavör óvænt Bakkavör mótmælir einhliða fréttaflutningi Guardian og sakar fulltrúa verkalýðsfélaga um ófrægingarherferð. Bresku verkalýðssamtökin GMB saka Bakkavör, einn helsta birgja Tesco, um að taka framleiðslu fyrir stórmarkaði fram yfir velferð verkafólks. 31.5.2007 09:01
Spjallað í neðansjávargemsa Köfunarflokkur Björgunarfélags Akraness hefur tekið í notkun nýjan fjarskiptabúnað. Með honum geta leitarstjórnendur á yfirborðinu talað við kafara með GSM-símum. Kafararnir geta einnig talað saman neðansjávar í allt að tveggja kílómetra fjarlægð. 31.5.2007 08:00
Vanskil hafa aukist Vanskil fyrirtækja eru nú hærri en verið hefur frá miðju ári 2005. Þetta sýnir ný samantekt Fjármálaeftirlitsins á tölum um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok mars 2007. Vanskilin eru þó mun lægri en þau voru á árunum 2000 til þess tíma. 31.5.2007 05:45
Hærra mat á Alfesca Glitnis hefur hækkað verðmat sitt á Alfesca úr 5,2 krónum í 5,3 krónur á hlut. Verðmatsgengið var 2,5 prósentum yfir gengi á markaði þegar uppfært verðmat var gefið út. Gengi félagsins hafði hins vegar lækkað um 0,78 prósent seinni partinn í gær. 31.5.2007 05:15
FL Group tapaði 100 milljónum á Bang & Olufsen FL Group hefur selt alla hluti sína, 10,76 prósent, í danska raftækjaframleiðandanum Bang & Olufsen fyrir 10,2 milljarða króna. Tap FL Group á fjárfestingunni nemur um 100 milljónum króna. FL Group kom inn í hlutahafahóp Bang & Olufsen í febrúar í fyrra með kaupum á 8,2 prósenta hlut fyrir 7,5 milljarða króna. Það bætti fljótlega við sig og jók hann smám saman í 10,76 prósent. 31.5.2007 05:00
Síminn og Anza sameinast Stjórnir Símans og Anza hafa samþykkt að sameina fyrirtækin. Samruninn tekur gildi í júlí. Hreinn Jakobsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Anza, mun setja á fót skrifstofu í Kaupmannahöfn til að byggja upp starfsemi Skipta hf, móðurfélags Símans, í Skandinavíu. 30.5.2007 15:34
Síminn kynnir þriðju kynslóðina Síminn kynnir í verslunum sínum á morgun nýjungar í farsímaþjónustu, sem grundvallast á þriðju kynslóð farsímakerfa (3G). Gestum gefst kostur á að kynna sér þá byltingu sem í vændum er þegar þriðja kynslóð farsímakerfa verður tekin í notkun í fyrsta sinn á Íslandi í haust. 30.5.2007 15:30
FL Group selur í Bang & Olufsen FL Group hefur selt allan hlut sinn í danska fyrirtækinu Bang & Olufsen A/S, sem svaraði til 10,76 prósenta af hlutafé fyrirtækisins. Kaupverð nemur 10,2 milljörðum króna en kaupendur eru hópur danskra og alþjóðlegra stofnanafjárfesta. 30.5.2007 09:48
Katrín stýrir útrás BBA/Legal Katrín Helga Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lögmannsstofunnar BBA/Legal sem áður hét Landwell. Henni er ætlað að stýra útrás fyrirtækisins en það er nú með skrifstofur bæði í Reykjavík og Lundúnum. 30.5.2007 09:42
Fleiri dýralæknar Nýr bankastjóri Straums-Burðaráss er hokinn af reynslu í bankaheiminum og veit sínu viti í þeimi heimi. Fjármálaráðherra Íslands hefur stundum mátt sæta því að um bakgrunn hans sé talað með niðrandi hætti, en hann er dýralæknir að mennt. 30.5.2007 00:01
Fátækt verður ekki útrýmt án einkageirans Að ausa fjármagni inn í þjóðfélagskerfi í rústum hefur ekki reynst eins happadrjúg aðferð í þróunarríkjunum eins og í Evrópu. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að því að þjóðir heims leita nú nýrra leiða við þróunaraðstoð. Fela þær í sér aukið samstarf hins opinbera og einkaaðila. 30.5.2007 00:01
Spákaupmaðurinn: Grænpóstur á Bjögga Ég hef eins og fleiri verið með nokkuð stórar stöður í Actavis í gegnum tíðina. Þar hafa orðið til miklir peningar. Ég var því þokkalega sáttur þegar yfirtökutilboðið kom, enda búinn að vera að bæta við mig undanfarna mánuði. 30.5.2007 00:01
Mikið verk fyrir höndum á Íslandi Hraði íslensks atvinnulífs hefur skilað sér í slæmri birgðastýringu. Þetta segir Tommy Högberg, forstjóri sænsku verkfræðistofunnar ProLog, sem sérhæfir sig í birgðastýringu vöruhúsa, í samtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson. 30.5.2007 00:01
OMX styttir biðtíma Nordic Exchange hefur tekið í notkun þjónustuna OMX Proximity Services. Nordic Exchange er sameiginleg þjónusta OMX-kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Íslandi, Ríga, Tallinn og Vilníus. 30.5.2007 00:01
Stungið upp í ráðherrann Henry Paulson, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Wu Yi, aðstoðarforsætisráðherra Kína, í Washington í síðustu viku. Efni fundarins var lágt gengi kínverska júansins, sem Bandaríkjastjórn segir að haldið sé lágu með handafli, og aukinn innflutningur frá Kína til Bandaríkjanna. 30.5.2007 00:01
Sægreifinn og Búllan í Washington Post Fallega var fjallað um veitingastaðina Hamborgarabúlluna og Sægreifann í grein í Washington Post fyrr í mánuðinum. Greinarhöfundur segir frá upplifun sinni og samferðamanns hans í ætisleit á götum Reykjavíkurborgar. 30.5.2007 00:01
Deloitte styrkir göngu Mörtu Síðastliðinn sunnudag lagði Marta Guðmundsdóttir upp í 600 km göngu þvert yfir Grænlandsjökul. Markmiðið með göngunni er að safna fé í baráttuna gegn brjóstakrabbameini og um leið vekja konur til umhugsunar um mikilvægi þess að fara reglulega í krabbameinsskoðun. 30.5.2007 00:01
Margar hliðar á niðurhali á netinu Í haust lýkur rannsókn á hugsanlegum hugverkastuldi tíu netverja sem handteknir voru vegna ólögmætrar dreifingar á tónlist, kvikmyndum og hugbúnaði á netinu. Heildarverðmæti ólöglegs niðurhals hér á landi nemur 1,8 milljörðum króna. 30.5.2007 00:01
Ungskáldin auka söluna Hún er þekkt sagan af Einari Má Guðmundssyni og fleiri skáldum sem þræddu kaffihús og bari borgarinnar á árum áður og gerðu tilraunir til að pranga nýjustu afurð sinni inn á misdrukkið fólk. Margir sluppu við bókakaup yfir bjórglasi á þeim forsendum að þá skorti lausafé. 30.5.2007 00:01
Eimskip reyndi að kaupa Smyril Line Eimskip gerði fyrir skemmstu tilraun til að kaupa meirihluta í Smyril Line en félagið gerir meðal annars út ferjuna Norrænu. Frá þessu er greint í færeyska dagblaðinu Dimmalætting. 29.5.2007 16:41
Skeljungur kaupir Shell í Færeyjum Skeljungur gengur í dag frá kaupum á P/F Føroya Shell sem verið hefur í eigu Shell International Petroleum Company Limited. Eftir því sem segir í tilkynningu verður starfsemin áfram rekin undir vörumerki Shell með sama hætti og hér á landi. 29.5.2007 13:40
Dótturfélag Eimskips gerir risatilboð í kanadískt félag Eimskip Holdings Inc, dótturfélag Hf. Eimskipafélags Íslands, hyggst gera 67 milljarða króna yfirtökutilboð í allt hlutafé kanadíska kæli- og frystigeymslufélagsins Versacold Income Fund. Verði tilboðið samþykkt verður Eimskip stærsta kæli- og frystigeymslufyrirtæki í heimi með um 180 geymslur. 29.5.2007 13:02
Century Aluminum sækist eftir skráningu í Kauphöllina Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, hefur óskað eftir því að verða skráð í Kauphöll Íslands. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu er það skráð á bandaríska Nasdaq-markaðinn og er það fyrsta skráða fyrirtækið í Bandaríkjunum, sem sækir um skráningu á Íslandi. Félagið verður því bæði skráð í Bandaríkjunum og á Íslandi. 29.5.2007 11:02