Dótturfélag Eimskips gerir risatilboð í kanadískt félag 29. maí 2007 13:02 MYND/Stöð 2
Eimskip Holdings Inc, dótturfélag Hf. Eimskipafélags Íslands, hyggst gera 67 milljarða króna yfirtökutilboð í allt hlutafé kanadíska kæli- og frystigeymslufélagsins Versacold Income Fund. Hefur stjórn Versacold Income Fund samþykkt samhljóða að mæla með yfirtökutilboðinu við hluthafa félagsins. Fram kemur í tilkynningu frá Eimskip til Kauphallarinnar að í tengslum við tilboðið hafi Clarke Inc., stærsti hluthafi Versacold, skuldbundið sig til þess að selja Eimskip ríflega 8,2 milljónir hluta í félaginu eða sem nemur 19 prósentum af útistandandi hlutum. Að auki hefur KingSett Real Estate Growth LP skuldbundið sig til þess að selja Eimskip 2,6 milljónir hluta eða sem nemur 6,2 prósent af útistandandi hlutum. Gert er ráð fyrir að hluthöfum félagsins verði sent formlegt yfirtökutilboð fyrir 13. júní næstkomandi og gildir það í að minnsta kosti 35 daga. Tilboðið er meðal annars háð því að eigendur að tveimur þriðju heildarhlutafjár samþykki tilboðið. Ef yfirtakan gengur ekki eftir hefur Versacold skuldbundið sig til þess greiða Eimskip 20 milljónir kanadadollara eða sem nemur rúmlega einum milljarði króna. Tilboðið er að fullu fjármagnað að hálfu Eimskips, Royal Bank of Canada Capital Markets og KingSett. Royal Bank of Canada hefur veitt Eimskip ráðgjöf vegna tilboðsins. Versacold er leiðandi félag í kæli- og frystigeymslum í Bandaríkjunum og jafnframt á heimsvísu. Félagið á og rekur 72 kæli- og frystigeymslur í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Argentínu og bætast þær við yfir 100 geymslur sem eru í eigu Eimskips um allan heim. Þar með verður til stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki í heimi með nærri 180 geymslur í fimm heimsálfum. Jafnframt eykst velta Eimskips um 40 milljarða króna og verður um 150 milljarðar króna á ársgrundvelli á næsta ári. Velta Eimskips á yfirstandandi ári er áætluð um 100 milljarðar króna.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira