Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir Íslendinga brjóta gegn reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo sakar Íslendinga um að brjóta reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og ætlar senda formlega kvörtun til íslenskra stjórnvalda. Ástæðan er sú að honum hefur verið gert að sækja aftur um leyfi til þess að byggja upp ferðamannaparadís á Grímsá á Fjöllum. Nubo segir í samtali við kínverska fjölmiðla að ákvörðunin um að láta hann sækja um aftur sé kínverskum fjárfestum klárlega mismunað. 5.12.2012 16:55
Lýður Guðmundsson fyrir dómi Þeir Lýður Guðmundsson, oftast kenndur við Bakkavör, og Bjarnfreður Ólafsson hæstaréttarlögmaður voru mættir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar fyrirtaka fór fram í máli sérstaks saksóknara gegn þeim. 5.12.2012 14:24
Auðbjörg segir upp 27 manns Útgerðarfyrirtækið Auðbjörg ehf. í Þorlákshöfn hefur sagt upp 27 starfsmönnum fyrirtækisins, 13 í landvinnslu og 14 manna áhöfn á línubátnum Arnarbergi ÁR-150, segir á fréttavefnum dfs. Starfsfólkið í landvinnslunni hættir um áramótin en sjómennirnir hafa hætt nú þegar. Fyrirtækið á fjóra báta en ætlar að selja tvo þeirra. Nú eru eftir 45 starfsmenn hjá fyrirtækinu. 5.12.2012 10:50
Christensen vill að Íslendingar horfi til Singapore Lars Christensen, forstöðumaður Greiningar Danske Bank, segir að Íslendingar eigi að horfa til Singapore þegar kemur að því að ákveða peningastefnu. Margt sé líkt með Íslandi og Singapore. Til dæmis séu bæði ríkin fámenn, þótt Singapore sé tífalt stærra. Tekjur séu háar og hagkerfi í báðum ríkjum séu háð ytri aðstæðum. Íslenskir ráðamenn geti því lært mikið af Singapoore þegar kemur að því að bæta peningastefnuna. Stefna Singapore felur í sér fljótandi gjaldmiðil með takmörkunum. 5.12.2012 10:43
Veltan jókst um 19% á fasteignamarkaðinum Veltan á fasteignamarkaðinum í nóvember var rúmlega 19% meiri en í mánuðinum á undan. Kaupsamningum fjölgaði hinsvegar aðeins um 2%. 5.12.2012 10:42
Fyrsti Batmanbíllinn er til sölu Fyrsti Batmanbíllinn sem smíðaður var fyrir sjónvarpsþáttaröðina um Batman á sjötta áratug síðustu aldar er til sölu. 5.12.2012 09:36
Ekkert lát á verðhækkunum á áli Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka og er komið yfir 2.100 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London. 5.12.2012 09:22
Vöruskiptin hagstæð um rúma 12 milljarða í nóvember Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember s.l. var útflutningur 56,3 milljarðar króna og innflutningur 44,0 milljarðar króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 12,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 5.12.2012 09:03
Lars Christensen spáir 2,2% til 2,9% hagvexti Lars Christensen, forstöðumaður greiningar Danske Bank, spáir því að hagvöxtur hér á landi verði á bilinu 2,2% til 2,9% á næstu þremur árum. Hann segir einnig að verðbólga fari minnkandi þótt hún verði áfram yfir viðmiðum Seðlabankans. 5.12.2012 08:59
Þrjár hópuppsagnir tilkynntar í nóvember Vinnumálastofnun bárust þrjár hópuppsagnir í nóvember 2012. Um er að ræða tvær tilkynningar um hópuppsagnir í útgerð og eina tilkynningu um hópuppsögn í rekstri veitingastaða. 5.12.2012 07:59
Samráð engu skilað Ekkert hefur þokast í samningsviðræðum stjórnvalda og stéttarfélaga opinberra starfsmanna um stórtækar breytingar á lífeyriskerfi þeirra, samkvæmt heimildum Markaðarins. Samráðsnefnd aðilanna hefur ekki fundað frá því snemma í október. 5.12.2012 07:00
Markaðsmisnotkun með FL-bréf rannsökuð Meint markaðsmisnotkun VBS með bréf í FL Group er til rannsóknar hjá FME. VBS tapaði 2,2 milljörðum á fléttunni og höfðaði einkamál til að sækja féð. Samið var um lyktir þess í lok nóvember. VBS fær greitt í samræmi við nauðasamning. 5.12.2012 07:00
Eigendur hagnast á tapi Klakka Klakki hefur tapað 23,3 milljörðum á tveimur árum. Féð rennur til kröfuhafa og eigenda. Eignir rýrnuðu um 33 milljarða í fyrra. 5.12.2012 07:00
Latibær tapaði 326 milljónum í fyrra Latibær ehf. tapaði 2,6 milljónum dala á árinu 2011, eða 326 milljónum króna á gengi dagsins í dag. Félagið hafði skilað 767 þúsund dala, 96 milljóna króna, hagnaði árið áður. Fjölmiðlarisinn Turner Broadcasting System keypti allt hlutafé í Latabæ í september í fyrra. Þetta kemur fram í ársreikningi Latabæjar sem nýverið var skilað inn til fyrirtækjaskráar. 5.12.2012 07:00
Kröftug hækkun íbúðaverðs næstu ár Útlit er fyrir að fasteignaverð hér á landi hækki um 8 til 9% á næstu tveimur árum eða sem nemur 4 til 5% raunverðshækkun. Þetta er niðurstaða greiningardeildar Arion banka sem gaf í gær út skýrslu sem nefnist Fasteignamarkaður á göngudeild: Horfur til 2014. 5.12.2012 07:00
Gallery á Hótel Holt tilnefnt til norrænna verðlauna Gallery Restaurant á Hótel Holti er tilnefnt til að keppa að The Nordic Prize verðlaununum, sem veitt eru árlega á Norðurlöndunum. 5.12.2012 06:48
Gjaldeyrisveltan á millibankamarkaðinum yfir 15 milljarðar Heildarveltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri nam tæpum 15,4 milljörðum kr í nóvember s.l. sem er 2,4% minni velta en í fyrri mánuði. 5.12.2012 06:23
Norðmenn og Þjóðverjar semja um nýjan sæstreng Norðmenn og Þjóðverjar hafa komist að samkomulagi um lagningu nýs sæstrengs milli landanna. Talið er að lagning strengsins muni kosta allt að rúmlega 320 milljarða króna. 5.12.2012 06:20
Ætlaðar endurheimtir margfaldast Ætlaðar endurheimtir kröfuhafa Glitnis hafa nífaldast frá því í nóvember 2008. Hjá Landsbankanum hafa þær fimmfaldast og hjá Kaupþingi hafa þær tæplega fjórfaldast. Þetta kemur fram í svari Seðlabanka Íslands við ýmsum spurningum nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd um stöðu útgreiðslna til kröfuhafa fallinna banka og 5.12.2012 06:00
Sóknarfæri í hugbúnaðarklasanum Mikil tækifæri felast í auknu samstarfi meðal íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu þar sem íslenski hugbúnaðargeirinn og möguleikar hans eru kortlagðir. 5.12.2012 06:00
Ný viðbót við EVE Online frumsýnd Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP gaf í dag út nýja viðbót við fjölspilunarleikinn EVE Online. Uppfærslan ber heitið Retribution og er hún átjánda viðbótin sem fyrirtækið gefur út fyrir leikinn. 4.12.2012 15:32
Hið opinbera verður að draga úr samkeppnishömlum Samkeppniseftirlitið hefur sent öllum sveitarfélögum á Íslandi bréf, þar sem minnt er á hversu brýnt það er að þau kappkosti að draga úr opinberum samkeppnishömlum og hvetji fremur til samkeppni. Með því sé unnt að bæta hag fyrirtækja og íbúa og um leið skjóta styrkari stoðum undir atvinnulíf á viðkomandi svæði. Almennt sé viðurkennt að í eflingu samkeppni felist rétt viðbrögð við efnahagskreppu. Í bréfinu er minnt á nokkur álit sem beint hefur verið til sveitarfélaga á síðustu árum þar sem fjallað er um álitaefni þessu tengd. 4.12.2012 11:43
Steingrímur bendir á Karl bróður sinn "Mér var haldið utan við allt, og ekki upplýstur um margt hjá Milestone,“ sagði Steingrímur Wernersson, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, Annar dagur réttarhaldanna í Vafningsmálinu fer fram í dómnum í dag. 4.12.2012 11:02
Lars með nýja greiningu á íslensku efnahagslífi Lars Christensen, forstöðumaður hjá greiningardeild Danske Bank, mun kynna nýja greiningu bankans á íslensku efnahagslífi á morgun. Greiningin verður fyrst kynnt á fundi VÍB, eignastýringaþjónustu Íslandsbanka, en hún verður gefin út sama dag og fundurinn er haldinn. 4.12.2012 10:25
Þurfum minnst 1400 nýjar íbúðir á ári Greiningardeild Arion banka spáir verðhækkun á næstu árum. Helstu ástæðurnar eru aukin umsvif í hagkerfinu samhliða vaxandi kaupmætti. Þá eru vaxtakjör hagstæð um þessar mundir sem eru ein afleiðing haftaumhverfis. Byggingarkostnaður er hár sem dregur úr hvata til nýbygginga. Ef verð hækkar ekki umfram byggingarkostnað er útlit fyrir að skortur verði á nýjum eignum. 4.12.2012 09:29
Spá óbreyttum stýrivöxtum í desember Hagfræðideild Landsbankans telur að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabankans þann 12. desember næstkomandi. 4.12.2012 09:18
Jean-Claude Juncker hættir sem formaður Evruhópsins Jean-Claude Juncker hefur ákveðið að hætta sem formaður Evruhópsins svokallaða en hann er myndaður af fjármálaráðherrum allra landanna á evrusvæðinu. 4.12.2012 08:55
Troðfullt á fundi Arion banka um fasteignamarkaðinn Troðfullt er í húsnæði Arion banka í Borgartúni þar sem árleg skýrsla greiningadeildar bankans um fasteignamarkaðinn framundan er kynnt. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion, ávarpaði fundinn við upphaf hans. Hann sagði að íbúðarhúsnæði væri í flestum tilfellum mesta fjárfestinginn sem menn gerðu. Höskuldur fór líka yfir þróun markaðarins að undanförnu. "Mér skilst ssem betur fer að leysingar séu á markaði eftir fimmbulkulda síðustu ára,“ sagði Höskuldur. Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður greiningadeildarinnar og Hafsteinn Gunnar Hauksson munu líka flytja erindi og gera grein fyrir niðurstöðum skýrslunnar. 4.12.2012 08:43
Yfir 100 jarðir að hluta eða alfarið í eigu erlendra einstaklinga Erlendir einstaklingar eru meðal eigenda að rúmlega 100 jörðum á Íslandi eða 1,33% af öllum jörðum á Íslandi. Þar af eru 28 jarðir alfarið í eigu erlendra einstaklinga. 4.12.2012 06:40
Slitastjórnir tóku 307 milljarða út úr Seðlabankanum Innlánsstofnanir í slitameðferð, það er þrotabú stóru bankanna, tóku um 307 milljarða kr. út af reikningum sínum í Seðlabankanum og fluttu á erlenda bankareikninga á þriðja ársfjórðungi ársins. 4.12.2012 06:25
Um 80 milljarða viðsnúningur á þróun viðskiptajöfnuðar Verulegur viðsnúningur hefur orðið á þróun viðskiptajafnaðar landsins til hins betra. Jöfnuðurinn mældist hagstæður um 29.4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Til samanburður var jöfnuðurinn óhagstæður um tæpa 53 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. 4.12.2012 06:22
Tilboð fyrir tæpa 10 milljarða bárust í Vodafone Tilboð bárust í Vodafone fyrir 9,7 milljarða króna, en lokaða hluta útboðsins lauk klukkan fjögur í dag. Umframeftirspurn var 2,4 föld segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Útboð til almennings hefst á morgun. 3.12.2012 22:37
Vill að Íbúðalánasjóður bjóði ekki óverðtryggð lán: Hugi frekar að félagslegu hlutverki sínu Það gengur ekki að ríkið ætli með Íbúðalánasjóð í aukna samkeppni við viðskiptabankana um Íbúðalán, segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fullltrúi í velferðarnefnd. Nefndin fundaði í morgun um stöðu sjóðsins, sem er slæm. Í síðustu viku ákvað ríkisstjórnin að veita þrettán milljarða króna innspýtingu inn í sjóðinn af fjárlögum. Árið 2010 voru veittir 33 milljarðar til að eiginfjárhlutfall sjóðsins sé í samræmi við lög og reglur. 3.12.2012 15:44
Slitastjórnin að klára söluna á Aurum Slitastjórn gamla Landsbankans er við það að ljúka við sölu á Aurum Holding. Samkvæmt heimildum Vísis hafa viðræður um söluna staðið yfir um skeið að undanförnu og tímaspursmál hvenær málin verði kláruð endanlega. Fyrirtækið sem slitastjórnin á í viðræðum við heitir Apollo og er eignarhaldsfélag sem á meðal annars nokkrar skartgripakeðjur. 3.12.2012 12:57
Mikil velta á fasteignamarkaðinum Mikil velta er áfram á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga í borginni var 131 í síðustu viku. 3.12.2012 11:03
Heimsmarkaðsverð á áli hækkar áfram Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka og er komið í 2.080 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London. 3.12.2012 10:33
Vaxandi traust á Íslandi, skuldatryggingaálagið niður í 175 punkta Skuldatryggingaálagið á ríkissjóð Íslands er nú komið niður í 175 punkta sem er það lægsta frá því á fyrrihluta ársins 2008. 3.12.2012 10:15
Magnús ráðinn forstjóri Icelandic Group Magnús Bjarnason hefur verið ráðinn forstjóri Icelandic Group samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. 3.12.2012 10:10
Nubo mjög reiður og pirraður í garð íslenskra stjórnvalda Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo er mjög reiður og pirraður yfir því hve slæmt sé að reyna að fjárfesta á Íslandi. 3.12.2012 06:57
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu er á uppleið að nýju eftir helgina. Verðið á Brent olíunni er að ná 112 dollurum á tunnuna og bandaríska léttolían er komin yfir 89 dollara á tunnuna. Fyrir helgina stóð tunnan af Brent olíunni í rúmum 110 dollurum. 3.12.2012 06:20
Delta Air Lines vill kaupa stóran hlut í Virgin Airlines Delta Air Lines, annað stærsta flugfélag Bandaríkjanna, er nú að reyna að kaupa stórann hlut í breska flugfélaginu Virgin Airlines. 3.12.2012 06:18
Skaðabótamál gegn lögreglunni þingfest á morgun Skaðabótamál bræðranna Vincents og Roberts Tchenguiz gegn efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar verður þingfest fyrir dómstóli í Lundúnum á morgun. Serious Fraud Office handtók bræðurna í tengslum við rannsókn á viðskiptum þeirra við Kaupþing banka, en þeir voru í hópi stærstu viðskiptavina bankans. Fréttavefur Telegraph segir að bræðurnir muni krefjast meira en 100 milljónum sterlingspunda, eða 20 milljarða íslenskra króna. 2.12.2012 22:38
Kremlarbréf Napoleons fyrir 200 árum sett á uppboð Um 200 ára gamalt bréf sem skrifað var af Napoleon Bonaparte þar sem hann heitir því að sprengja Kreml í loft upp verður boðið upp í dag hjá Osenat uppboðshúsinu í París. 2.12.2012 14:46
Dýrasti Legokubbur heimsins skiptir um eigenda Mjög sjaldgæfur Legokubbur var nýlega seldur hjá Brick Envy í Flórída en sú verslun sérhæfir sig í sérstökum Legovörum. Þessi kubbur sem er af hefðbundinni stærð en úr 14 karata gulli var seldur á tæplega 15.000 dollara eða hátt í 2 milljónir króna. 2.12.2012 13:34
Jólagjöfin fyrir manninn sem á allt er raksápa með beikonilmi Bandaríska fyrirtækið J&D segir að það hafi fundið upp jólagjöfina fyrir karlmanninn sem á allt. Um er að ræða raksápu með beikonilmi. 2.12.2012 12:31
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur