Fleiri
Meðalverð bensíns hefur fylgt heimsmarkaðsverði 3.8.2012 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Marel hækkar en Hagar lækka Gengi bréfa í Marel hefur hækkað um 0,72 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 140. Heildarveltan að baki viðskiptunum nemur um 108 milljónum króna, en heildarvelta viðskipta dagsins nemur tæplega 136 milljónum króna. Gengi bréfa í Högum hefur lækkað um 0,27 prósent í dag og er gengið nú 18,25. 8.8.2012 12:09
Boris Johnson: Árás á London sem fjármálamiðstöð Boris Johnson, borgarstjórinn í London, segir að bandarísk yfirvöld séu að ráðast á London sem fjármálamiðstöð með því að saka Standard Chartered bankann um stórfellt peningaþvætti fyrir Íransstjórn, en í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu í New York kom fram að heildarumfang viðskipta bankans við Íransstjórn hafi numið um 250 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega 30 þúsund milljörðum króna. 8.8.2012 10:46
Standard Chartered bankinn réttir úr kútnum Gengi hlutabréfa í Standard Chartered bankanum hefur hækkað um tæplega 6,5 prósent í morgun en síðustu tvo daga hefur gengi bréfa bankans hrunið, eftir að Fjármálaeftirlitið í New York tilkynnti um opinbera rannsókn á bankanum vegna gruns um stórfelld peningaþvætti fyrir Íransstjórn. Bankinn hefur hafnað öllum ásökunum um lögbrot og sagt þær "víðsfjarri raunveruleikanum“. 8.8.2012 10:12
Tekjur ríkisins meiri en ráð var fyrir gert Innheimtar tekjur ríkisins fyrstu sex mánuði ársins 2012 námu 251,9 milljörðum króna. Það er 23,2 milljörðum umfram áætlun. Á sama tíma hafa gjöld ríkisins dregist saman um 6,4 milljarða, voru 268,6 milljarðar til júníloka. Þetta kemur fram í mánaðaruppgjöri A-hluta ríkissjóðs fyrir júní 2012, sem kom út í gær. 8.8.2012 05:30
Austurhöfn tapaði 534 milljónum króna Austurhöfn-TR ehf., sem er í 54 prósenta eigu ríkisins og 46 prósenta eigu Reykjavíkurborgar, fer með eignarhald Hörpu og annarra tengdra eigna. Félagið hefur ekki birt ársreikning sinn fyrir árið 2011 opinberlega. Í ríkisreikningi ársins 2011 kemur hins vegar fram að 534 milljóna króna taprekstur hafi verið á félaginu í fyrra. Eigið fé þess er neikvætt um 270 milljónir króna og skuldir þess nema 23,1 milljarði króna. Eignir þess, sem eru að langstærstu leyti Harpa og meðfylgjandi lóðir, voru metnar á 22,8 milljarða króna í lok síðasta árs. 8.8.2012 06:15
Þorskurinn orðinn of dýr fyrir Bretana „Við erum að verðleggja okkur út af markaðnum,“ segir Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda. Nýleg könnun sem verslunarkeðjan Sainsbury’s stóð fyrir á Bretlandi sýnir að neysla á tilapíu og öðrum fisktegundum sem ekki veiðast hér við land eykst stórlega á kostnað þorsks og ýsu. 8.8.2012 06:00
Flókið stjórnskipulag Hörpu veldur núningi og árekstrum Flókið stjórnskipulag innan Hörpu-samstæðunnar hefur valdið núningi og árekstrum, verkaskipting, hlutverk og ábyrgð hafa ekki verið skýr og við ákveðnar aðstæður hefur verið óljóst hver á að taka hvaða ákvörðun. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt KPMG á rekstri og skipulagi Hörpu. 8.8.2012 04:45
Útgjöld ríkisins aukast árið 2013 í fyrsta sinn frá hruni Fjárlagafrumvarpið 2013 gerir ráð fyrir almennri aðhaldskröfu um eitt prósent. Þegar tekið er tillit til þess að útgjöld verða uppfærð um 3,5 prósent miðað við verðlag er staðreyndin sú að útgjöld ríkisins aukast í fyrsta skipti frá hruni. 8.8.2012 04:30
Verðmæti útflutnings hefur aukist mikið Útflutningsvörur Íslendinga hafa aukist að verðmæti á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. 8.8.2012 03:30
Verst ásökunum um ólögleg viðskipti Breska fjármálafyrirtækið Standard Chartered neitaði í gær af krafti ásökunum um að bankinn hafi stundað stórfelld ólögleg viðskipti í samvinnu við írönsk stjórnvöld á árunum 2001 til 2007. 8.8.2012 02:00
Icelandair lækkaði um 1,75 prósent - hækkanir erlendis Gengi bréfa í Icelandair lækkaði um 1,75 prósent í dag og stendur gengi bréfa félagsins nú í 6,73. Mest var lækkunin þó hjá Bank Nordik en gengi bréfa færeyska bankans lækkaði um 2,86 prósent og er nú 68. 7.8.2012 23:13
Vegir eru hrörlegir vegna bágrar stöðu ríkissjóðs Vegir landsins eru margir hverjir orðnir hrörlegir vegna lítils viðhalds að mati vegamálastjóra. Sérstaklega er vegurinn austan Selfoss lélegur. Ástæðan er forgangsröðun í viðhaldi vegna lélegrar stöðu ríkissjóðs. 7.8.2012 22:28
"Fyrir suma er kreppan rétt að byrja“ "Það er algert rugl" að okkar Íslendinga bíði betri tímar fjárhagslega að mati Guðmundar Ólafssonar, hagfræðings. Í viðtali við Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni segir hann að fyrir suma sé kreppan bara rétt að byrja. 7.8.2012 21:12
Risavaxið hótel á að bæta afkomu Hörpunnar Gert er ráð fyrir að Marriot-hótelið sem á að rísa við hlið Hörpunnar verði fimm hæða og allt að 30 þúsund fermetrar að stærð. Framtíðaráætlanir um rekstur Hörpu byggja ekki síst á samvinnu við hótelið þegar kemur að ráðstefnum. 7.8.2012 20:04
Ofurfyrirsæta vann mál gegn Kaupþingi Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson vann mál sem hún höfðaði gegn þrotabúi Kaupþings Singer & Friedlander, eftir því sem fram kemur á vefnum Financial News í dag. Þar kemur fram að fyrirtæki sem MacPherson átti og rak hafi átt lán hjá bankanum þegar hann féll árið 2008. Þá hafi Elle Macpherson sjálf átt innistæður í bankanum. 7.8.2012 15:50
Gagnrýnir leynd yfir skýrslu um Hörpu Kjartan Magnússon borgarfulltrúi gagnrýnir þá leynd sem verið hefur yfir skýrslu sem KPMG vann að beiðni eigenda Hörpu, borgarstjórnar og ríkissjóðs, um starfsemi hússins. Kjartan segist, í samtali við Vísi, hafa óskað eftir skýrslunni þann 20. júlí síðastliðinn. 7.8.2012 15:01
Álverð snarlækkar Álverð hefur farið nokkuð hratt lækkandi undanfarna mánuði og stendur nú í innan við $1900/tonn. Það er um 20% lægra en það var þegar ál var hvað dýrast í byrjun mars, þegar tonnið kostaði 2353 dali og hefur lækkað um 7% frá áramótum, þegar tonnið kostaði 2020 dali. 7.8.2012 12:19
Framkvæmdastjóri Sinfóníunnar: Útilokað að ráða við hækkun leigu Útilokað er að Sinfóníuhljómsveit Íslands eða íslenska óperan hafi svigrúm til þess að greiða tvöfalt hærri leigu en nú, en stjórnendur Hörpu telja nauðsynlegt að hækka leiguna svo að rekstur hússins geti komist á réttan kjöl. 7.8.2012 12:15
WOW air dregur saman seglin í vetur WOW Air mun ekki fljúga til Kaupmannahafnar í vetur. Þá mun félagið aðeins fljúga tvisvar í viku til Lundúna. Ástæðan fyrir þessu er samdráttur í ferðalögum yfir vetrarmánuðina. 7.8.2012 11:15
Vöruskiptajöfnuður lækkar um 17 milljarða Um 3,5 milljarða króna afgangur var á vöruskiptum í júlímánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur nam 48,6 milljörðum og innflutningur 45,1 milljarði. 7.8.2012 09:35
Indónesía á fullri ferð Efnahagur Indónesíu er að vaxa hratt um þessar mundir en hann óx um 6,4 prósent en sérfræðingar spáðu vexti upp á ríflega sex próent. Vöxturinn er að mestu drifinn áfram af vaxandi innlendri eftirspurn, en hún vegur ríflega 60 prósent í heildar umsvifum hagkerfisins, að því er segir í umfjöllun BBC um hagvaxtartölurnar í Indónesíu. 7.8.2012 09:07
Bandaríkin vilja efla viðskiptatengsl við Suður-Afríku Utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst í gær yfir vilja til að auka viðskiptatengsl við Suður-Afríku. 7.8.2012 06:19
Gistinóttum fjölgaði um 13% Gistinóttum fjölgaði um 13% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. Þær voru tæplega 203 þúsund núna en voru tæplega 179 þúsund í fyrra. Gistinóttum á hótelum fjölgaði mest á Austurlandi í júní, eða um 19% en næstmest á höfuðborgarsvæðinu eða um 15%. Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur gistinóttum fjölgað um tæp 21%. Þær voru 771 þúsund í ár en voru 639 þúsund á sama tímabili í fyrra. 7.8.2012 09:46
Standard Chartered í stórfelldu svindli með Íransstjórn Breski bankinn Standard Charted Bank (SCB), sem þekktur er fyrir að auglýsa starfsemi sína framan á búningum enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, er grunaður um stórfellda ólöglega bankastarfsemi í viðskiptum við stjórnvöld í Íran. Frá þessu er greint á vefsíðu Financial Times (FT) í dag og eru meðal annars birt skjöl frá Fjármálaeftirlitinu í New York, þar sem lögbrotin eru útlistuð. 6.8.2012 17:46
Hækkanir á mörkuðum í Evrópu og Asíu Grænar tölur hækkunar einkenndu markaði í Asíu og Evrópu í morgun. Þannig hækkaði Nikkei vísitalan um 2 prósent og Asia Dow vísitalan um 1,99 prósent. Í Evrópu var svipað upp á teningnum þó tölurnar hafi verið aðeins lægri þar. DAX vísitalan þýska hækkaði um 0,54 prósent, FTSE MIB hækkaði um 0,68 prósent og CAC 40 um 0,32 prósent. 6.8.2012 09:52
Bandarískir stórbankar gera ráð fyrir að evrusvæðið brotni upp Margir bankar á Wall Street eru nú að búa sig undir að evrusvæðið brotni upp með því að þau ríki sem eru í hvað mestum vandræðum, eins og Spánn og Grikkland, yfirgefi myntsamstarfið. 6.8.2012 12:03
Gyðingar halda spænskum hattaframleiðanda á floti Hattaframleiðandinn Fernández y Roche, sem er með höfuðstöðvar sínar í Sevilla á Spáni, hefur átt góðu gengi að fagna að undanförnu, ólíkt nær öllum efnahag Spánar. Ástæðan er mikil sala á tiltekinni gerð hatta sem gyðingar í New York og Jerusamlem kaupa í þúsundavís á hverju ári. "Þeir [gyðingarnir] eru bókstaflega að halda okkur á floti,“ segir Miguel García Gutiérrez, 35 ára framkvæmdastjóri hattaframleiðandans, í viðtali við The New York Times um helgina. 5.8.2012 22:24
Óttast „sáfræðilegar afleiðingar“ fyrir Evrópu Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, segist óttast að kreppan á evrusvæðinu geti haft "sálfræðilegar afleiðingar“ fyrir alla álfuna ef ekki tekst að ná sátt um aðgerðir þar sem neyðin er stærst. Þetta kom fram í viðtali þýska blaðsins Spiegel við Monti en breska ríkisútvarpið BBC vitnar til þess í umfjöllun á vefsíðu sinni. Monti óttast að þjóðir Evrópu fari í auknu mæli að hugsa um eigin hag, frekar en hag heildarinnar, ef ekki tekst að ná víðtækri sátt um mikilvægustu aðgerðirnar. 5.8.2012 19:45
Æðstiklerkur Írans kominn á Instagram Ayatolla Ali Khamenei æðstiklerkur Írans skráði sig til leiks á myndaforritið Instagram, sem vaxið hefur ógnarhratt síðustu mánuði. 5.8.2012 16:33
Singapore Airlines kaupir 54 Boeing vélar Flugfélagið Singapore Airlines gekk í gær frá risasamningi við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing um kaup á 54 Boeing flugvélum. Samningurinn er upp 4,9 milljarða dala, eða sem nemur um 612 milljörðum króna. Um er að ræða 23 737-800 vélar og 31 737-Max-8s vélar, að því er Wall Street Journal greinir 5.8.2012 14:14
Atvinnulífið getur lært af íslenskum rithöfundum Ísland hefur þarf að renna fleiri stoðum undir efnahag sinn og einblína á hluti sem skila meiri framlegð heldur en þær greinar sem að mestu er byggt á nú. Í þeim efnum er vel hægt að horfa til þess hvernig rithöfundasamfélagið íslenska hefur eflst og dafnað, með mikilli vinnu og umræðu um verk höfunda. 4.8.2012 19:15
Forstjóri Hörpu: Nauðsynlegt að horfa til langs tíma í rekstrinum Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpunnar, segir tekjumöguleika hússins vera mikla til framtíðar litið og efast ekki um að rekstur hússins verði betri en hann er nú innan fárra ára. Fráleitt væri að hætta rekstri hússins þegar landið væri að rísa eftir að hafa tekið ákvörðun um að reka húsið í djúpri kreppu. 4.8.2012 12:15
Nýjasta mynd Cruise tekin í Bretlandi Nýr vísindatryllir með Tom Cruise og Emily Blunt í aðalhlutverkum verður tekin upp í Bretlandi. Um 500 störf verða til við gerð myndarinnar. Það var George Osborne, fjármálaráðherra Breta, sem greindi frá þessu í gær. Myndin mun heita All You Need is Kill. Myndin verður tekin upp í kvikmyndaveri Warner Bros í Leavesden nærri Watford í Bretlandi. Um er að ræða sama kvikmyndaver og Harry Potter myndirnar voru teknar upp, eftir því sem fram kemur á vef Daily Telegraph. 4.8.2012 12:35
Heimilisbókhald Meniga leiðandi í Evrópu Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga áætlar að heimilisfjármálahugbúnaður sinn verði aðgengilegur um fjórum milljónum manna um mitt næsta ár, þar á meðal í Suður-Afríku og Póllandi. Fyrirtækið er orðið leiðandi í Evrópu á sínu sviði segir framkvæmdastjóri. 3.8.2012 19:00
Pétur: Harpan verður aldrei rekin án taps Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur enga trú á að Harpan verði nokkurn tíma rekin án taps. Hann minnir á að rekstrarkostnaður sé ekki eini kostnaðurinn sem hefur fallið á ríkissjóð vegna hússins því um 25 milljarðar féllu á opinbera aðila vegna byggingar hússins. 3.8.2012 16:23
"Frábært félag en hörmuleg fjárfesting" Íslenskur verðbréfagreinandi hjá Saxo Bank telur að hlutabréf í Manchester United séu ekki góð fjárfesting. Eigendur fótboltaklúbbsins hyggjast skrá bréf félagsins á markað, m.a. til að greiða niður skuldir. 3.8.2012 15:44
Harpan rekin með 407 milljóna halla á árinu Ákveðið hefur verið að tónlistarhúsið Harpa verði rekin af einu félagi í eigu ríkis og borgar. Þetta er ákveðið eftir að í ljós kom að rekstrarafkoman verður neikvæð um 407 milljónir króna á árinu 2012 miðað við óbreyttar forsendur. 3.8.2012 14:23
Fiskverð lækkaði um fjórðung í gær Verð á fiskmörkuðum gaf nokkuð eftir á miðvikudag og fimmtudag. Lækkunin var óveruleg á miðvikudaginn en töluverð á fimmtudag. 3.8.2012 13:42
Peston: Getur SFO lifað af „Tchenguiz-skandalinn“? Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins BBC, spyr að því í fyrirsögn pistils um aðgerðir bresku efnahagsbrotadeildarinnar, SFO, gegn Tchenguiz-bræðrunum Roberti og Vincent hvort stofnunin geti lifað það af, að öllum málatilbúnaði deildarinnar hafi verið vísað frá dómi. Þá auki það enn á vandann að Vincent Tchenguiz hyggst fara í máli við SFO og krefjast 100 milljóna punda, jafnvirði um 19 milljarða króna, í bætur vegna þess fjárhagstjóns sem hann varð fyrir við aðgerðirnar gegn sér. 3.8.2012 13:26
Hagnaður Tals næstum fjórfaldaðist Fjarskiptafyrirtækið Tal átti góðu gengi að fagna á fyrri helmingi ársins. Hagnaður þess á tímabilinu var 104 milljónir miðað við 27 milljónir á sama tíma í fyrra. Það er tæplega fjórföldun á einu ári. 3.8.2012 12:57
Japanir útvíkka rannsóknir á innherjaviðskiptum banka Japönsk stjórnvöld hafa útvíkkað rannsókn sína á innherjaviðskiptum í fjármálageira landsins og er fullyrt í New York Times í dag, að rannsóknin teygi anga sína inn á miðlaragólf margra af stærstu bankanna á Wall Street í New York, þar á meðal Goldman Sachs, svissneska bankans UBS og þýska bankans Deutsche Bank. 3.8.2012 11:49
Mikil umsvif á kornmarkaði Ótti kaupmanna við skort á korni í haust hefur leitt til verðhækkana á kornmarkaði. Aðilar hafa keypt upp stóra lagera af korni á kornmarkaðinum í Chicago. Frá þessu er sagt á 3.8.2012 11:17
Hrun tölvukerfis Royal Bank of Scotland kostar 125 milljónir punda Hrun tölvukerfis Royal Bank of Scotland er að reynast bankanum dýrkeypt, en upplýst var um það í dag að bankinn þarf að greiða völdum viðskiptavinum bankans 125 milljónir punda, eða sem nemur 23,75 milljörðum króna. 3.8.2012 10:44
Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum aftur yfir 7% Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum hafa hækkað mikið í gærdag og í morgun og eru nú komnir í tæp 7,3%. 3.8.2012 09:10