Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þorsteinn Hjaltested skattakóngur Íslands Þorsteinn Hjaltested landeigandi á Vatnsenda er skattakóngur á höfuðborgarsvæðinu árið 2011. Hann greiddi samtals rúmar 185 milljónir króna í opinber gjöld á síðasta ári. Guðbjörg Astrid Skúladóttir, er næstefst, en hún greiddi 140 milljónir tæpar. Poul Jansen, kemur næstur með tæpar 114 milljónir. Listi yfir þá sem greiða mest má sjá hér að neðan. 25.7.2012 09:37
Móðurfélag Norðuráls skilar 1,5 milljarða tapi Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, skilaði 12,3 milljóna dollara eða um 1,5 milljarða króna, tapi á öðrum ársfjórðungi ársins. 25.7.2012 09:24
Fréttaskýring: Hver er staðan á endurútreikningi gengistryggðra lána? Vinnu samráðshóps lánastofnana og fulltrúa lántakenda um viðbrögð við gengislánadómi Hæstaréttar frá 15. febrúar er lokið. Dæma þarf í ellefu prófmálum, sem fá flýtimeðferð fyrir dómstólum, áður en endurútreikningar lána geta hafist. 25.7.2012 09:00
Advania og Hátækni semja um sölu á Dell fartölvum Advania og Hátækni hafa gert með sér samkomulag um sölu á Dell fartölvum, en Advania er umboðsaðili Dell á Íslandi. Nú geta viðskiptavinir Hátækni nálgast fjölbreytt úrval Dell tölva í versluninni og mun Hátækni leggja áherslu á að bjóða vandaðar fartölvur sem henta þörfum kröfuharðra einstaklinga. 25.7.2012 10:00
Meiri samdráttur í Bretlandi en áður var talið Samdrátturinn í efnahagslífi Bretlands er meiri en áður var talið. Landsframleiðsla Breta dróst saman um 0,7% á öðrum ársfjórðungi ársins miðað við þann fyrsta. 25.7.2012 08:55
Hagnaður Apple nam um 1.100 milljörðum Apple skilaði 8,8 milljarða dollara, eða um 1.100 milljarða króna, hagnaði á þriðja ársfjórðungi uppgjörsárs síns. 25.7.2012 07:45
AGS hefur áhyggjur af þróun mála í Kína Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur áhyggjur af þróun mála í efnahagskerfi Kína. Telur sjóðurinn að hagkerfið sé orðið of háð fjárfestingum og hvetur kínversk stjórnvöld til að auka neyslu Kínverja innanlands samhliða því að beina þeim frá fjárfestingum í fasteignum. 25.7.2012 06:53
Katalónía þarf sennilega neyðaraðstoð frá stjórnvöldum Ekkert lát er á efnahagshremmingum Spánverja þessa dagana. Greint er frá því á vefsíðunni CNNMoney að allar líkur séu á að héraðið Katalónía muni þurfa á neyðaraðstoð að halda frá stjórnvöldum til að greiða opinberar skuldir sínar. 25.7.2012 06:50
Eignir bankana lækkuðu um tæpa 106 milljarða í júní Heildareignir innlánsstofnana námu 2.837 milljörðum kr. í lok júní og lækkuðu um 105,7 milljarða kr. í mánuðinum eða um 3,7%. 25.7.2012 06:41
Tilboð Kvosar var hagstæðast Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands, segir að tilboð Kvosar í Plastprent hafi verið hagstæðasta tilboðið sem barst. Hann segir að Framtakssjóðurinn verði að fara eftir verklagsreglum sínum í formlegu söluferli á félagi en geti ekki sest í siðferðilegt dómarasæti og miðað við hvað sé sanngjarnt út frá óskilgreindum forsendum. 24.7.2012 15:30
Valitor áfrýjar Datacell málinu til Hæstaréttar Valitor vísaði í dag til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. júlí síðastliðinn í máli Datacell gegn Valitor. Í dómi Héraðsdóms var Valitor gert að veita Datacell greiðsluþjónustu. 24.7.2012 15:09
Katalónía óskar eftir fjárhagsaðstoð Héraðsstjórn Katalóníu á Spáni mun biðja spænska ríkið um fjárhagsaðstoð. Andreu Mas-Colell, fjármálaráðherra Katalóníu, staðfesti þetta við breska ríkisútvarpið BBC í dag. 24.7.2012 14:18
Konur eiga sviðið þegar kreppir að "Að öllu gamni slepptu virðast konur eiga meiri möguleika á að fá tækifæri þegar illa gengur," segir Lilja Lind Pálsdóttir, hagfræðingur, í nýjasta tölublaði Frjálsrar Verslunar þar sem hún veltir upp spurningunni hvort kreppan sé tækifæri fyrir konur. 24.7.2012 14:00
Fasteignamarkaður ekki líflegri síðan 2007 Velta á fasteignamarkaði hefur aukist um rúma fimmtán milljarða það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Markaðurinn hefur ekki verið líflegri síðan 2007. 24.7.2012 12:08
Sér ekkert óeðlilegt við kaupin "Ég sé ekki alveg hvað er óeðlilegt við það," segir Þorgeir Baldursson, forstjóri Kvosar um kaup fyrirtækisins á Plastprenti, en Kvos hafði áður fengið milljarða afskriftir hjá Landsbankanum. 24.7.2012 10:05
ECB lokar á lánveitingar til grískra banka Evrópski seðlabankinn (ECB) hefur ákveðið að taka ekki lengur við grískum ríkisskuldabréfum sem veðum fyrir lánum til grískra banka. 24.7.2012 08:59
Ólympíuleikarnir eru peningavél sem veltir hundruðum milljarða Ólympíuleikarnir eru orðnir að peningavél sem beinir hundruðum milljarða króna í gegnum reikninga Alþjóðlegu ólympíunefndarinnar í hvert sinn sem leikarnir eru haldnir. 24.7.2012 06:34
Moody´s setur lánshæfiseikunn Þýskalands á neikvæðar horfur Matsfyrirtækið Moody´s hefur sett lánshæfiseinkunn Þýskalands á neikvæðar horfur sem og lánshæfiseinkunn Hollands og Lúxemborgar en öll ríkin þrjú eru með hæstu einkunnina í bókum Moody´s. 24.7.2012 06:21
Askar fyrir alla MatAskur ehf. hóf göngu sína haustið 2011. Fyrirtækið framleiðir nú þrjár gerðir af matarpökkum, stílaðar inn á heilsu og útivist. 24.7.2012 13:35
Veltan eykst í sölu á atvinnuhúsnæði Í júní s.l. var 54 kaupsamningum og afsölum þinglýst um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og 33 utan þess. 24.7.2012 11:12
Óvæntur sumarkippur á fasteignamarkaðinum Veltan á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu tók óvæntan kipp í sumarblíðunni í síðustu viku. Þá var þinglýst 115 kaupsamninga á svæðinu. 24.7.2012 07:44
Dráttarvextir óbreyttir Dráttarvextir haldast óbreyttir í 12,75% fyrir ágústmánuð. Þetta kemur fram í mánaðarlegri tilkynningu um vaxtabreytingar á vefsíðu Seðlabankans. 24.7.2012 06:38
Batmanmyndin náði tæplega 20 milljörðum í miðasölu Nýjasta Batman myndin The Dark Knight Rises náði inn rúmlega 160 milljónum dollara eða tæplega 20 milljörðum dollara í miðasölunni um síðustu helgi. 24.7.2012 06:37
Bretum býðst Tilboð aldarinnar um næstu helgi Hamborgarabúllan er farin í útrás og mun opna í London öðru hvoru megin við næstu helgi. Þá mun Bretum loks bjóðast Tilboð aldarinnar (e. Offer of the century) að hætti Tomma fyrir 8,9 pund, sem nemur tæpum 1700 krónum. 23.7.2012 17:00
Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum fóru yfir 7% markið Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til 10 ára fóru töluvert yfir 7% markið í morgun og standa nú í 7,3%. 23.7.2012 09:22
Síðustu stóru bakreikningarnir komnir í hús Síðustu stóru bakreikningar hrunsins hafa borist, segir Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra. Hún gerir niðurstöður ríkisreiknings, sem birtar voru í síðustu viku, að umræðuefni í aðsendri grein í Fréttablaðinu og hér á Vísi í dag. Eins og fram hefur komið var rösklega 40 milljarða halli á ríkisreikningi umfram það sem búist hafði verið við. Ástæðan er einkum rakin til ríkisábyrgðar á innistæðum í SpKef. 23.7.2012 13:10
Kjarnfóðurframleiðendur hækka verðskrána Síðastliðinn mánuð hafa kjarnfóðursframleiðendur hækkað verðlista sína. Verðið er nú hærra en það hefur verið nokkurn tíma áður, miðað við upplýsingar frá Landssambandi kúabænda. Frá árinu 2010 hefur kjarnfóður hækkað í verði um rúm 37%. 23.7.2012 13:06
Eignir í skattaskjólum mynda „risastórt svarthol“ Efnaðir einstaklingar og fjölskyldur þeirra geyma allt að 32 þúsund milljarða bandaríkjadala (næstum fjóra milljón milljarða króna) í skattaskjólum. Fyrir vikið tapast skattagreiðslur upp á 280 milljarða dala (næstum 35 þúsund milljarða króna). 23.7.2012 10:58
Niðursveifla á mörkuðum, olíuverðið lækkar Töluverð niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt. Samhliða þessu hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað um helgina sem og gengi evrunnar en það hefur ekki verið lægra gagnvart dollaranum í tvö ár. 23.7.2012 07:19
Viðskiptaráðherra Breta flæktur inn í HSBC hneykslið Lord Green viðskipta- og fjárfestingarmálaráðherra Bretlands er flæktur inn í HSBC hneykslið. 23.7.2012 06:32
Pútin staðfesti aðild Rússlands að WTO Vladimir Pútin, forseti Rússlands, undirritaði um helgina lög sem staðfesta aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO. 23.7.2012 06:26
Enn hækkar metaneldsneytið Verð fyrir rúmmetra af metaneldsneyti á bíla var hækkað um 19 krónur fyrir helgi og kostar hann nú 149 krónur. 23.7.2012 06:21
ECB endurheimtir 600 milljarða frá íslensku bönkunum Evrópski seðlabankinn, ECB, hefur nú endurheimt að fullu lán að fjárhæð fjórir milljarðar evra, eða rúmlega 600 milljarða króna sem veittir höfðu verið dótturfélögum Glitnis, Kaupþings og Landsbankans í Lúxemburg í október 2008. 23.7.2012 05:25
Styttist í uppgjör Facebook Samskiptamiðillinn Facebook mun kynna fyrstu ársfjórðungstölur sínar í vikunni. Verður þetta fyrsta uppgjör fyrirtækisins síðan það var skráð á hlutabréfamarkað í Kauphöllinni í New York fyrir nokkrum vikum. 22.7.2012 22:00
Forstjóri Lenovo gefur bónusgreiðslu til starfsmanna Forstjóri Lenovo vakti athygli á dögunum þegar hann gaf bónusgreiðslu sína til starfsmanna fyrirtækisins. Aðeins lægra settir starfsmenn fengu hluta af greiðslunni en heildarupphæðin nam rúmlega 370 milljónum króna. 22.7.2012 21:15
Fá utanaðkomandi stjórnarformann Ákveðið hefur verið að utanaðkomandi aðili verði næsti stjórnarformaður breska bankans Barclays, eftir því sem Financial Times fullyrðir. 22.7.2012 14:08
Hættur daglegum afskiptum af rekstri dagblaða Rupert Murdoch er hættur daglegum afskiptum af rekstri dagblaða sem eru í eigu fyrirtækis hans, News Corporation. Fyrirtækið er umsvifamikið í rekstri dagblaðaútgáfu, bókaútgáfu, á sjónvarpsmarkaði og kvikmyndamarkaði. Til stendur að skipta fyrirtækinu upp í tveinnt, annars vegar í fyrirtæki í rekstri dagblaða- og bókaútgáfu en hins vegar fyrirtæki sem rekur sjónvarpsstöðvar og kvikmyndahús. Fréttastofa breska ríkisútvarpsins, BBC, segir að búist sé við því að Murdoch gegni stjórnarformennsku í báðum fyrirtækjum en verði einungis forstjóri í sjónvarps- og kvikmyndafyrirtækinu. 22.7.2012 13:34
Segir viðbrögð fjármálaráðherra með ólíkindum Viðbrögð fjármálaráðherra við ríkisreikningi eru með ólíkindum, segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hallinn á ríkissjóði í fyrra var 43 milljörðum umfram áætlanir. 20.7.2012 17:51
Spánverjar fá 100 milljarða evra Fjármálaráðherrar evruríkjanna samþykktu í dag að lána allt að veita spænska ríkinu allt að 100 milljarða evra, eða jafngildi 15.200 milljarða króna, lán svo hægt verði að endurfjármagna bankana. Samkvæmt frétt BBC mun nákvæm lánsfjárhæð þó ekki liggja fyrir fyrr en í september þegar spænska ríkið mun fá endurskoðaða reikninga bankanna í sínar hendur. Spánverjar munu þurfa að þróa og bæta reglugerðarumhverfi bankanna. Markaðurinn hefur ekki tekið vel í tíðindin og féllu hlutabréf um 5% vegna þeirra. 20.7.2012 15:18
Kaupmáttur launa rýrnar Vísitala kaupmáttar launa í júní er 111,0 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,4%. 20.7.2012 09:12
Fyrsta tapið hjá Microsoft síðan árið 1986 Hugbúnaðarrisinn Microsoft greindi frá því í gærkvöldi að hann hefði tapað tæplega 500 milljónum dollara, eða um 62 milljörðum kr. á öðrum ársfjórðungi ársins. 20.7.2012 06:47
Olíuverðið hækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka þrátt fyrir nýjar efnahagstölur frá Bandaríkjunum um að ekkert dragi úr atvinnuleysinu þar í landi. 20.7.2012 06:42
Segir að forstjóri AGS valdi alls ekki starfi sínu Peter Doyle einn af reyndustu hagfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur látið af störfum. Hann gagnrýnir AGS harðlega í bréfi til stjórnarformanns sjóðsins og segir m.a. að þar á bæ skorti leiðtogahæfileika og að Christine Lagarde fyrsti kvenforstjóri sjóðsins valdi alls ekki starfi sínu. 20.7.2012 06:36
Byggingakostnaður lækkar Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júlí 2012 er 115,1 stig sem er lækkun um 0,2% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,8%, sem skýrir lækkun vísitölunnar. 20.7.2012 09:20
Aflaverðmætið jókst um 25,5% á fyrrihluta ársins Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 58,5 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2012 samanborið við 46,6 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11,9 milljarða eða 25,5% á milli ára. 20.7.2012 09:15