ECB endurheimtir 600 milljarða frá íslensku bönkunum 23. júlí 2012 05:25
Evrópski seðlabankinn, ECB, hefur nú endurheimt að fullu lán að fjárhæð fjórir milljarðar evra, eða rúmlega 600 milljarða króna sem veittir höfðu verið dótturfélögum Glitnis, Kaupþings og Landsbankans í Lúxemburg í október 2008. Lánveitingar voru hluti af reglulegri fyrirgreiðslu ECB á evrusvæðinu. Náið samstarf var um lausn málsins milli Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Lúxemborgar, að því er segir á vefsíðu Seðlabankans. Lausafjárfyrirgreiðslan var veitt dótturfélögum íslensku bankanna af Seðlabanka Luxemborgar fyrir hönd Evrópska Seðlabankans í samræmi við reglur bankans. Við þrot íslensku bankanna var innlausn þeirra trygginga sem lagðar höfðu verið fram vandkvæðum bundin vegna dýpkandi fjármálakreppu og náðist samkomulag um að vinna tíma til að hámarka endurheimtur. Fjórum árum síðar, hafa lánin nú verið gerð upp að fullu án afskrifta af hálfu ECB. Það samkomulag sem gert var í maí 2010 á milli Seðlabaka Íslands og Seðlabanka Lúxemborgar stuðlaði m.a. að þessari jákvæðu niðurstöðu. Samkomulagið snerist um skipulagða skuldbreytingu sérstakra veðkrafna í því skyni að forðast brunaútsölu, en hámarka þess í stað endurheimtur. Náin samvinna seðlabankanna lagði grunn að árangsríkri lausn þessa vanda og mun stuðla að áframhaldandi samvinnu á milli Seðlabanka Lúxemborgar og Seðlabanka Íslands á ýmsum sviðum seðlabankastarfsemi. Seðlabankastjóri Seðlabanka Lúxemborgar, Hr. Yves Mersch, heimsótti Ísland fyrir helgina í boði Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Bankastjórarnir ræddu meðal annars þau vandamál sem við er að glíma á Evrusvæðinu auk áframhaldandi samvinnu seðlabankanna tveggja. Mersch átti einnig fund með Oddnýu Harðardóttur fjármálaráðherra.
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira