Fleiri fréttir

Endurfjármagna lánin frá AGS og Norðurlöndunum

Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands greiða í byrjun þessarar viku samtals 171 milljarð króna. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum sem tekin voru í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var af AGS. Um er að ræða fyrirframgreiðslu að fjárhæð sem nemur 62 milljörðum króna til AGS og 109 milljörðum króna til Norðurlandanna. Að þessum fyrirframgreiðslum loknum verður búið að greiða til baka 53% af upphaflegri lánsfjárhæð frá AGS og 59% af upphaflegri lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna.

Búið að skattleggja fataverslun úr landi

Íslensk fataverslun er illa samkeppnishæf við nágrannalöndin vegna skattlagningar segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Hér á landi eru tollar lagðir á vörur auk þess sem virðisaukaskattsstigið er 25,5%.

Íslendingar kaupa sífellt minna af fötum

Verslun með föt hefur dregist mikið saman frá árinu 2008 og ekkert lát er á samdrættinum. Í maí dróst verslunin saman um 5% miðað við sama mánuð síðasta árs. Í apríl var samdrátturinn 13%. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka.

17. júní gæti orðið sögulegur fyrir Færeyjar

Dagurinn 17. júní 2012 gæti orðið söglegur fyrir Færeyjar. Þann dag var borinn settur í færeyska landgrunnið í áttundu tilraun til að finna færeysku olíuna. Þannig hefst frétt á færeyska netmiðlinum oljan.is en kínverski borpallurinn Cosl Pioneer mun bora næstu 4-5 mánuði.

Fréttaskýring: Marorka 10 ára – Komin inn í ört vaxtarskeið

Marorka hélt upp á tíu ára afmæli sitt sl. föstudag með því að undirrita samning við Eimskipafélag Íslands um innleiðingu á orkustjórnunarkerfi í skip félagsins, sem er hannað af Marorku. Fyrirtækið er leiðandi á sviði orkustjórnunar í skipum og hafa kerfi félagsins verið sett upp í flotum skipafélaga víða um heim undanfarin ár. Með innleiðingu kerfis frá Marorku skipar Eimskip sér í hóp skipafélaga, sem sjá mikilvægi þess að nýta orkustjórnunarbúnað til að lágmarka eldsneytisnotkun og stuðla þannig að verndun umhverfisins og að aukinni rekstrarhagkvæmni.

Máli gegn Tchenguiz verði hætt

Gert er ráð fyrir að efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, tilkynni í dag að stofnunin muni hætta rannsókn á máli Vincents Tchenguiz. Rannsóknin snýr að viðskiptum hans við Kaupþing banka, en bræðurnir Robert og Vincent voru á meðal helstu skuldara bankans. Stofnunin hefur meðal annars verið sökuð um að hafa beitt húsleitarheimildum við rannsóknina án nægilegs tilefnis. Breska blaðið Daily Telegraph býst við því að stofnunin sendi i dag frá sér yfirlýsingu þar sem útskýrt verði hvað fór úrskeiðis í rannsókn á málið Vincents. Telegraph segist jafnframt gera ráð fyrir að málinu gegn Robert verði haldið áfram um sinn.

Penninn seldur

Undirritaður hefur verið samningur um sölu á Pennanum á Íslandi ehf. Seljandi er Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf., og kaupandi er fjárfestahópur undir forystu Ingimars Jónssonar, Ólafs Stefáns Sveinssonar og Stefáns D. Franklín. Ráðgjafi kaupenda var Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans. Penninn á Íslandi ehf. auglýstur til sölu þann 5. janúar síðastliðinn og var gengið til viðræðna við þá sem áttu hagstæðasta boðið. Samningurinn nú er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Spænskir vextir rufu 7% múrinn í morgun

Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til tíu ára fóru yfir 7% markið í morgun og standa nú í 7,125%. Undanfarna daga hafa þessir vextir dansað rétt undir 7% mörkunum.

Fasteignaverð í Kína heldur áfram að lækka

Fasteignaverð í 55 af 70 borum í Kína lækkaði í síðasta mánuði miðað við sama mánuð árið á undan. Áhyggjur fara nú vaxandi af því að stjórnvöld hafi þrengt of mikið að fasteignamarkaðnum með aðgerðum sem í upphafi voru hugsaðar til þess að koma kæla hagkerfið niður, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá.

Uppsveifla á mörkuðum í Evrópu

Markaðir í Evrópu eru í uppsveiflu í fyrstu viðskiptum dagsins. Fylgja þeir þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt.

Meirihluti stjórnenda telur aðstæður í atvinnulífinu slæmar

Mikill meirihluti stjórnenda telur aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar og þeim fækkar verulega sem búast við að þær batni á næstunni. Þetta eru helstu niðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á vegum Samtaka atvinnulífsins.

Yfirdráttarlánin tvöfaldast á síðustu þremur árum

Yfirdráttarlán heimilanna hafa nærri tvöfaldast á síðustu þremur árum og eru nú svipuð og þau voru síðustu mánuðina fyrir hrun. Hver fjárráða einstaklingur skuldar nú að meðaltali rúmar þrjú hundruð þúsund krónur í yfirdrátt.

Burger King ætlar að opna 1000 staði í Kína

Hamborgarakeðjan Burger King stefnir að því að opna um þúsund veitingastaði í Kína á næstu fimm til sjö árum. Nú þegar eru 60 staðir í landinu en með þessu ætlar keðjan að hasla sér völl á þessum risastóra markaði. Keðjan á þó langt í land samanborið við samkeppnisaðilann McDonalds sem er með 1400 útibú í Kína. Á síðustu mánuðum hefur keðjan opnað hundruði staða í Rússlandi og Brasilíu. Yfir 12.500 Burger King-staðir eru víðsvegar um heiminn, flestir í Evrópu.

Forstjóri Regins: Vonandi fær félagið trúverðuga og góða eigendur

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, sem skráð verður á markað síðar í sumar, segist binda vonir við að félagið fái góða og trúverðuga eigendur, sem tilbúnir verið að styðja við skynsamlegar ákvarðanir. Félagið sé stöðugt og gott rekstrarfélag með langatímaleigusamninga á góðum stöðum, m.a. í Smáralind og Egilshöll, sem eru stærstu einstöku fasteignir félagsins, sem samtals eru 27. "Þetta er spennandi og góður lokahnykkur á langt og strangt undirbúningsferli,“ segir Helgi í ítarlegu viðtali í nýjasta þætti Klinkisins.

Hvað er gengistryggt lán? - Hæstiréttur klofnar

Í dag féll dómur í Hæstarétti þar sem tekist var á um hvort ákveðið lán væri lán í íslenskum krónum, bundið gengi erlendra gjaldmiðla (gengistryggt lán) eða hvort það væri lán í erlendum gjaldmiðli. Hæstiréttur klofnaði í afstöðu sinni en eins og kunnugt er eru gengistryggð lán ólögmæt.

Icelandair stærra en SAS

Markaðsvirði Icelandair Group, móðurfélags Icelandair, er nú orðið meira en flugfélagsins SAS, sem lengi hefur verið þekktasta flugfélag Norðurlandanna. Virði Icelandair, miðað við gengið 6,6 er 33,15 miljarðar króna en virði SAS, miðað við gengið 99,24, er 32,6 milljarðar króna.

Rektor mun ekki aðhafast í máli Ársæls Valfells

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, mun ekki aðhafast frekar í máli Ársæls Valfells, lektors við viðskiptafræðideild skólans, vegna aðildar hans í að leka trúnaðargögnum um Guðlaug Þór Þórðarson, alþingismann, frá Fjármálaeftirlitinu.

Fjórtán bæjarstjórar með yfir milljón í grunnlaun

Grunnlaun bæjarstjóra á Íslandi eru æði misjöfn. Allt frá 400 þúsund krónum og upp í 1,2 milljónir króna. Ofan á það geta svo lagst ýmis konar hlunnindi sem geta numið allt að 350 þúsund krónum.

Meiri aðstoð í boði frá Seðlabanka Evrópu

Seðlabanki Evrópu er reiðubúinn til að styðja enn frekar við bankakerfi evrusvæðisins ef nauðsyn ber til. Mario Draghi, seðlabankastjóri segir að evrusvæðið verði enn tilbúið til að "leggja viðkvæmum bönkum til lausafé ef þörf er á."

Tefja með því að þegja og ljúga

Á bilinu 10 til 20 hrunmál eru í lokarennsli eða bíða ákvörðunar saksóknara um ákæru, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar sérstaks saksóknara. Hann sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá því að margir sakborningar hefðu neitað að tjá sig við skýrslutökur eða gefið rangan framburð. Hann telur dóm í Exeter-málinu hafa veigamikið fordæmisgildi og búast megi við fleiri þungum dómum.

Richard Thomans: Bankakreppa í Evrópu í tvö ár í viðbót

Greinandinn Richard Thomas segir að óvissan á evrusvæðinu sé helsta vandamál svæðisins í augnablikinu. Bankarnir sem slíkir standi ekki eins illa og margir halda, sagði í erindi í Hörpunni á ársfundi Bankasýslu ríkisins í gær. Thomas varaði sterklega við hruni íslenska bankakerfisins sumarið 2008, en var þá sagt að hann þyrfti á endurmenntun að halda.

Áfengissalan jókst um 7,8% milli ára í maí

Sala áfengis jókst um7,8% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Velta í smásöluverslun í maí jókst í flestum vöruflokkum frá sama mánuði í fyrra. Þetta á til dæmis bæði við um mat- og drykkjarvöru.

Neyðaraðgerðir í Englandi vegna kreppunnar

Englendingar tilkynntu í gær að enskir bankar muni fá hjálp frá Seðlabanka landsins og Fjármálaráðuneytinu sem gæti numið allt að 80 milljörðum punda (rúmum 15.000 milljörðum króna).

Nýherji semur við Sendil um rafræna reikninga

Nýherji og dótturfélög hafa gert samstarfssamning við Sendil um miðlun rafrænna reikninga. Þannig gefst Nýherja og dótturfélögum kostur á því að senda og taka á móti reikningum á rafræni formi, en í því felst verulegur sparnaður og hagræðing.

Fáum sérlausnir ef ESB er samkvæmt sjálfu sér

Ísland er í góðri stöðu til að semja um sérlausnir frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, en fordæmi eru fyrir því í aðildarviðræðum ríkja við ESB að semja um sérlausnir frá sameiginlegri löggjöf. Þetta segir Dóra Sif Tynes hdl. en hún starfaði hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel og sérsvið hennar er m.a Evrópuréttur.

Lántakar geti brugðist við sveiflum

Mikilvægt er að lántakar með óverðtryggð húsnæðislán geti brugðist við sveiflum í greiðslubyrði. Þá skiptir máli fyrir lántaka með verðtryggð lán að kaupmáttur lántaka og raunverð íbúðahúsnæðis haldist nokkurn veginn í hendur á lánstímabilinu.

Ekkert samkomulag hjá OPEC, olíuverðið lækkar áfram

Olíumálaráðherrar OPEC samtakanna náðu ekki samkomulagi um að draga úr olíuframleiðslu sinni á árlegum fundi samtakana í Vín sem lauk í gærdag. Því er reiknað með að olíuverðið haldi áfram að lækka.

Málarekstur gegn SFO hefur ekki áhrif

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), framkvæmdi í mars í fyrra húsleitir á ýmsum stöðum vegna rannsóknar sinnar á lánveitingum Kaupþings til bræðranna Vincents og Roberts Tchenguiz.

OR einbeiti sér að kjarnastarfsemi

Uppstokkun í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er lokið en glíman við skuldastabba fyrirtækisins heldur áfram. Þetta sagði Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, á opnum ársfundi fyrirtækisins í gær.

Spá hagvexti hér á landi yfir meðaltali á heimsvísu og minnkandi atvinnuleysi

Hagvöxtur hér á landi verður 2,8 prósent á þessu ári samkvæmt spá Íslandsbanka, en ef það gengur eftir verður hann með því hæsta sem þekkist í Evrópu og yfir meðaltali á heimsvísu. Þá verður atvinnuleysi 6 prósent og mun lækka enn frekar á næstu árum. Íslandsbanki birti þjóhagsspá sína í dag en samkvæmt henni verður 2,8% hagvöxtur á þessu ári og verður hann drifinn áfram af einkaneyslu, fjárfestingum og útflutningi. Þá mun jinnflutningur á vörum til landsins mun fara vaxandi samhliða auknum útflutningi.

Lilja vill eintak af kolsvartri skýrslu PwC um SpKef

Þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir hefur farið fram á að allir nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd fái fái eintak af skýrslu PwC um SpKef. Auk þess óska hún eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd, þar sem nefndarmönnum eru kynntar niðurstöður skýrslunnar.

Þarf að greiða 80 milljónir til viðbótar vegna málskostnaðar

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að 30 milljón króna greiðsla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, vegna málskostnaðar Glitnis í Englandi, væri ekki fullnaðargreiðsla. Þannig þarf Jón Ásgeir að greiða 80 milljónir til viðbótar vegna kyrrsetningaraðgerða Glitnis.

Afkoma Orkuveitunnar á síðasta ári sú besta í sögu fyrirtækisins

Mikill árangur í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur en mikil skuldabyrði var meginstefið í erindum forstjóra og fjármálastjóra Orkuveitu Reykjavíkur á opnum ársfundi fyrirtækisins í dag. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að afkoma síðasta árs sé sú besta í sögu fyrirtækisins og hún þarf a vera það vegna hárra afborgana af lánum á næstu árum.

Dómur í máli Jóns Ásgeirs gegn Glitni

Í dag verður kveðinn um dómur í Hæstarétti í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Glitni. Málið varðar málskostnað vegna kyrrsetningaraðgerða í Englandi þar sem eignir Jóns í London voru frystar.

Maðurinn sem þurfti „á endurmenntun að halda“ heldur erindi í Hörpu

Maðurinn sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, sagði að þyrfti á endurmenntun að halda vegna ummæla sinna um bráðavanda íslensku bankanna sumarið 2008, og að stjórnvöld þyrftu tafarlaust að bregðast við, heldur erindi á ársfundi Bankasýslu ríkisins klukkan þrjú í dag.

Stýrivaxtahækkunin kom Jóhönnu á óvart

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans kom Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á óvart. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Töpuðu 50 milljörðum á tveggja ára tímabili

Sparisjóðurinn í Keflavík tapaði 50 milljörðum króna á árunum 2008-2010. Á sama tíma jukust innlán hans um tugi milljarða. Rekstrarkostnaður sjóðsins árið 2009, meðal annars launagreiðslur, var 2,3 milljarðar.

Bein útsending frá fundi Íslandsbanka og VÍB

Íslandsbanki og VÍB bjóða til opins fundar í Norðurljósasal Hörpunnar í dag. Fundurinn hófst klukkan 11:45 en á honum verður ný þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka kynnt auk þess sem sérfræðingar Íslandsbanka og VÍB fjalla um áhrif óverðtryggðra og verðtryggðra vaxta á húsnæðislán og sparnað landsmanna.

Sjá næstu 50 fréttir