Tefja með því að þegja og ljúga 15. júní 2012 12:30 Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari.
Á bilinu 10 til 20 hrunmál eru í lokarennsli eða bíða ákvörðunar saksóknara um ákæru, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar sérstaks saksóknara. Hann sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá því að margir sakborningar hefðu neitað að tjá sig við skýrslutökur eða gefið rangan framburð. Hann telur dóm í Exeter-málinu hafa veigamikið fordæmisgildi og búast megi við fleiri þungum dómum. Ólafur Þór Hauksson tók við embætti í janúar 2009. Síðan hefur embættið vaxið og nú starfa hjá því um hundrað starfsmenn og starfsemin er víðtæk. Embættið hefur verið gagnrýnt bæði fyrir umfang og starfshætti víðs vegar í samfélaginu og beinist sú gagnrýni oft að Ólafi sjálfum. Spurður hvernig hann taki þeirri gagnrýni segist hann hafa þykkan skráp. „En kannski getur maður ekki metið þetta fyrr en eftir á. Það fylgir að það séu hafðar uppi stórar fullyrðingar á meðan vörn sakborninga er í ham. Við höfum séð það gerast í stórum málum áður. Svo erum við með samfélag í sárum eftir hrunið. Viðbrögðin í slíku samfélagi eru kannski ekki alltaf rökrétt. Heilt yfir finnst mér vera stuðningur við þessa vinnu og ég er sannfærður um að fólk vilji fá niðurstöðu í þessi mál. Eftir því sem lengra líður frá, finnst mér fólk geta sætt sig við hvora niðurstöðuna sem er, bara að það komi niðurstaða." Þegja eða ljúgaEitt af því sem er gagnrýnt er hversu langan tíma rannsóknirnar taka og að meintir sakborningar séu settir á hliðarlínuna sem þátttakendur í samfélaginu á meðan þær standa yfir. Að sögn Ólafs er það einfaldlega þannig að efnahagsbrotarannsóknir taka mjög langan tíma. „Í mörgum málum gerist það að sakborningur mætir og neitar að tjá sig, sem hann hefur rétt á. Það þýðir að hann veitir ekkert liðsinni við að upplýsa málið sem verið er að rannsaka. Það skýtur því dálítið skökku við þegar sami sakborningur er síðan úti í samfélaginu að býsnast yfir því hversu langan tíma þetta taki allt saman. Það er líka mjög algengt að menn gefi framburð sem ekki er réttur. Í nokkrum málum höfum við sýnt fram á mjög afgerandi stöðu um það að gögnin bendi í allt aðra átt en það sem viðkomandi hafa sagt okkur. Þegar svo horfir þá geta menn ekki talað mikið um langan rannsóknartíma nema að gangast við því að þeir hafa töluvert um þá lengd að segja." Hann segir líka nauðsynlegt að vinna alla rannsóknarvinnuna almennilega. „Ég er ekki tilbúinn að hlaupa til og fara fram með mál fyrir dóm sem er hálfbakað. Það er ábyrgðarlaust, líka gagnvart sakborningnum. Það sem við þurfum síst af öllu er uppgjör við hrunið í formi sakamála sem eru illa unnin." Mikilvægt fordæmiHæstiréttur dæmdi í síðustu viku Jón Þorstein Jónsson, fyrrum stjórnarformann Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrum forstjóra sjóðsins, í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik. Um var að ræða fyrsta hrunmálið sem niðurstaða fékkst í vegna slíkra brota. Héraðsdómur hafði áður sýknað þá báða. Ólafur segir að dómurinn hafi dregið upp mjög skýrar leiðbeiningar um þau atriði sem hann horfir sérstaklega til við ákvörðun sektar. Að því leytinu til hafi dómurinn töluvert fordæmisgildi. „Þær línur sem hann leggur eru vísbendingar í að minnsta kosti tvær áttir. Annars vegar myndar hann snið fyrir okkur sem rannsökum þessi mál sem við getum mátað önnur mál við. Hins vegar gefur hann líka leiðbeiningar til héraðsdómstólanna um með hvaða hætti þeim beri að taka á sambærilegum málum. Út frá því er þetta veigamikið fordæmi. Það er ljóst að ef það verður sakfellt í þeim málum þá stefnir í að það verði þungir dómar. Vænt tjón mun vega mjög þungt við ákvörðun refsingar. Kannski er dómurinn bara að senda skýr skilaboð út í samfélagið um að þegar höndlað er með háar fjárhæðir, eins og gert er í mörgum þessara mála, þá verði menn að sýna fyllstu varúð og ganga um það af mikilli ábyrgð." Baldur Guðlaugsson, fyrrum ráðuneytisstjóri, var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Hæstarétti í febrúar síðastliðnum fyrir innherjasvik. Það var í fyrsta sinn sem slík sakfelling hefur fengist á Íslandi. Ólafur segir embættið vera með nokkur innherjamál til meðferðar, en að þau séu býsna erfið. „Í þeim er sjaldnast fyrir að fara skriflegum fundargerðum eins og var í máli Baldurs, heldur eru þetta yfirleitt óljósari vísbendingar um innherjavitneskju. Það á því eftir að reyna á ýmislegt í því sambandi." Sérstakur saksóknari gaf einnig út ákæru í hinu svokallaða Al-Thani máli í febrúar. Þar eru helstu stjórnendur Kaupþings og einn stærsti hluthafi bankans grunaðir um umboðssvik og markaðsmisnotkun. Ólafur segir það vera næsta svið sem reynir á, hvernig dómstólar taka á markaðsmisnotkunarmálum. „Það er þegar komin sakfelling í hið svokallaða miðlaramál, sem var fyrir-hrun-mál þar sem sakfellt var fyrir markaðsmisnotkun. Sú niðurstaða gefur býsna góða vísbendingu og ákveðnar leiðbeiningar um það þegar saksóknari var að taka ákvörðun um saksókn í Al-Thani málinu." Allir þræðir liggja til LúxemborgarAllir þrír stóru bankarnir ráku starfsstöð í Lúxemborg fyrir bankahrun og var algengara en ekki að umsvifamiklar viðskiptablokkir hýstu eignarhaldsfélög með mikil umsvif á Íslandi í þeim stöðvum. Sérstakur saksóknari hefur á undanförnum árum ráðist í þrjár stórtækar gagnaöflunaraðgerðir þar í landi. Tvær þeirra fóru fram í Banque Havilland, sem byggður er á grunni Kaupþings í Lúxemborg, og á tengdum stöðum. Auk þess hófst gagnaöflunaraðgerð í Landsbankanum þar í landi, sem er nú þrotabú, í apríl síðastliðnum. Ólafur segir ljóst að margir þræðir í stórum rannsóknum þeirra liggi til Lúxemborg. „Það var alveg ljóst í mjög mörgum þessara mála að við þyrftum að fara í þessar aðgerðir í Lúxemborg til að ganga úr skugga um hvað væri að baki þeim. Við höfum verið að fá í hús á síðustu vikum gríðarlegt magn gagna sem voru haldlögð í seinni leitinni inni í Havilland í fyrra. Þau eru að detta inn núna. Það er mun meira en við tókum í fyrra skiptið, þegar við tókum 150 kíló. Þetta er að minnsta kosti helmingi meira auk rafrænna gagna. Þetta er því mikið umfang af gögnum sem við þurfum að fara í gegnum. Við leggjum kannski ekki mikið af þeim inn í málin, en það breytir því ekki að við þurfum að fara í gegnum þau." Um hundrað hrunmálÓlafur segir að um hundrað svokölluð hrunmál séu á málaskrá embættisins. „Ferli mála gengur þannig fyrir sig að fyrst eru mál opnuð. Þá eru teknar skýrslur og farið í gagnaöflun. Síðan kemur yfirferðarfasi. Þar er farið yfir símagögn, tölvupósta, framburði, öll rafræn gögn, í að bera saman framburði og svo framvegis. Þessi vinna er eiginlega stærsti hlutinn hjá okkur. Hún er að sama skapi nánast ósýnileg úti í samfélaginu. Þó það sé unnið hérna myrkranna á milli í þessum fasa þá sést það ekki. Þegar niðurstöður úr þessum fasa eru komnar þá er farið að taka fram það sem upp á vantar, bera upp á viðkomandi gögn, bera upp á viðkomandi aðra framburði, benda á ósamræmi á milli framburða sem þeir hafa gefið áður og þar fram eftir götunum. Svo er hægt að fara í að gera greinargerð. Eftir það fer málið til ákæranda. Hann getur síðan óskað eftir frekari gögnum eða rannsókn áður en hann tekur ákvörðun um hvort gefa eigi út ákæru eða ekki. Þetta er því tímafrekt." Mörg mál í lokarennsliAð sögn Ólafs eru mörg dæmi í svokölluðu lokarennsli, þar sem niðurstöður rannsóknar eru bornar upp á meinta sakborninga. „Sem dæmi um hversu mörg mál eru á þessum lokastað í yfirheyrslum þá erum við með þrjú föst yfirheyrsluherbergi hérna í húsinu og eigum möguleika á að setja upp fjórða herbergið. Þau hafa öll verið fullbókuð síðastliðinn mánuð upp á hvern einasta dag frá morgni til kvölds. Það er ekki útlit fyrir annað en að svo verði út þennan mánuð. Það er því stöðugt streymi af fólki hérna inn." Þá er þegar búið að klára rannsókn á nokkrum málum en beðið hefur verið með ákvörðun um ákæru þar til að önnur sem eru í lokarennsli klárast, enda gætu þau sameinast við ákvörðun um saksókn. „Það eru á bilinu 10 til 20 mál í þessu ferli. þó nokkuð af málum er þegar komið til saksóknara og það mun bætast vel við það í sumar." Samkvæmt uppleggi eiga hin svokölluðu hrunmál að klárast fyrir árslok 2014. Ólafur segir enn stefnt á að klára alla rannsóknarvinnu embættisins fyrir þann tíma. „Hvort það verði komin niðurstaða í öll málin skal þó ósagt látið og helgast það fyrst og fremst af málsmeðferðartímanum fyrir dómi. Sá tími sem hefur liðið frá útgáfu ákæru og þar til að málin verða tekin til aðalmeðferðar virðist ætla að teygja sig töluvert mikið."
Tengdar fréttir Málarekstur gegn SFO hefur ekki áhrif Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), framkvæmdi í mars í fyrra húsleitir á ýmsum stöðum vegna rannsóknar sinnar á lánveitingum Kaupþings til bræðranna Vincents og Roberts Tchenguiz. 15. júní 2012 06:00 Mál starfsmannanna einstakt tilvik Sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn sem starfað hafa hjá embættinu um margra ára skeið til Ríkislögreglustjóra fyrir brot á þagnarskyldu í apríl síðastliðnum. 15. júní 2012 08:00 Mest lesið Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Shein ginni neytendur til skyndikaupa Viðskipti innlent Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Viðskipti innlent Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Sjá meira
Málarekstur gegn SFO hefur ekki áhrif Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), framkvæmdi í mars í fyrra húsleitir á ýmsum stöðum vegna rannsóknar sinnar á lánveitingum Kaupþings til bræðranna Vincents og Roberts Tchenguiz. 15. júní 2012 06:00
Mál starfsmannanna einstakt tilvik Sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn sem starfað hafa hjá embættinu um margra ára skeið til Ríkislögreglustjóra fyrir brot á þagnarskyldu í apríl síðastliðnum. 15. júní 2012 08:00