Viðskipti innlent

Dögun: Vaxtagreiðsluþak Íslandsbanka eru afleiðuviðskipti

Málefnahópur Dögunar um húsnæðismál varar neytendur við svokölluðu vaxtagreiðsluþaki Íslandsbanka.

Í ályktun segir að á ferðinni sé flókin fjármálaafurð, eða svokölluð afleiða, sem í raun verðtryggir óverðtryggð lán með þeim afleiðingum að heildarendurgreiðsla neytenda vegna slíkra lána eykst. Óásættanlegt sé að velta allri áhættu af þróun vaxta yfir á neytendur þegar kemur að viðskiptum með lánsfé.

Þá krefst Dögun þess að verðtrygging á neytendalánum verði afnumin tafarlaust og að almenn leiðrétting húsnæðislána nái fram að ganga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×