Endurfjármagna lánin frá AGS og Norðurlöndunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. júní 2012 17:35 Oddný Harðardóttir er fjármálaráðherra.
Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands greiða í byrjun þessarar viku samtals 171 milljarð króna af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum. Lánin voru tekin í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var af AGS. Um er að ræða fyrirframgreiðslu að fjárhæð sem nemur 62 milljörðum króna til AGS og 109 milljörðum króna til Norðurlandanna. Að þessum fyrirframgreiðslum loknum verður búið að greiða til baka 53% af upphaflegri lánsfjárhæð frá AGS og 59% af upphaflegri lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna. Í frétt á vef fjármálaráðuneytisins segir að þessi ákvörðun um fyrirframgreiðslu sé tekin í framhaldi af skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum í maí síðastliðnum að fjárhæð 1.000 milljónir bandaríkjadala, eða 125 milljarðar króna. Sú aðgerð undirstriki aðgang Íslands að erlendum lánsfjármörkuðum og veiti svigrúm til að endurgreiða önnur lán sem séu til skemmri tíma sem tekin voru sem hluti af efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS. Fyrirframgreiðslan nú nær til gjalddaga sem falla á árinu 2013 og 2014 í tilfelli AGS-lána. Greiðslur til Norðurlandanna eru vegna gjalddaga sem falla á árunum 2016, 2017 og 2018.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira