Richard Thomans: Bankakreppa í Evrópu í tvö ár í viðbót Magnús Halldórsson skrifar 15. júní 2012 12:15 Thomas er greinandi hjá Bank of America Merill Lynch bankanum, en Bank of America eignaðist Merill Lynch árið 2009.
Greinandinn Richard Thomas segir að óvissan á evrusvæðinu sé helsta vandamál svæðisins í augnablikinu. Bankarnir sem slíkir standi ekki eins illa og margir halda, sagði í erindi í Hörpunni í gær. Thomas varaði sterklega við hruni íslenska bankakerfisins sumarið 2008, en var þá sagt að hann þyrfti á endurmenntun að halda. Thomas, sem er greinandi hjá Bank of America Merril Lynch bankanum, sagði í erindi sínu á ársfundi Bankasýslu ríkisins í gær, að staða banka í Evrópu væri mjög misjöfn, en heilt yfir væri áhættuálag á skuldir þjóðríkja og banka, of hátt miðað við öll helstu viðmið sem notuð væru á skuldabréfamörkuðum. Mikil óvissa væri einkennandi fyrir markaði sem hefði mikil áhrif á gang mála, og ákvarðanatöku fjárfesta, sem bæri þess glögg merki í augnablikinu að þeir vildu frekar bíða og sjá hvað myndi gerast þegar kæmi að evrusvæðinu í heild. Hann sagðist reikna með því að bankakreppa á evrasvæðinu stæði líklega yfir í a.m.k. tvö ár í viðbót, eða fram á seinnipart árs 2014. Richard Thomas vakti nokkra athygli hér á landi þegar hann sagði stöðu íslenska bankakerfisins grafalvarlega á sumarmánuðum 2008, og að stjórnvöld yrðu að bregðast við hratt og örugglega, jafnvel með þjóðnýtingu allra bankanna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona og ráðherra, brást við þeim ummælum með því að spyrja að því hvort Thomas þyrfti á endurmenntun að halda. Þorgerður Katrín baðst síðar afsökunar á ummælunum.
Mest lesið Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Viðskipti innlent Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Viðskipti innlent Shein ginni neytendur til skyndikaupa Viðskipti innlent Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Sjá meira