Viðskipti innlent

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, er stór hluthafi, seldi 680 þúsund hluti í Marel í dag á genginu 153, eða fyrir sem nemur um 100 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu um viðskiptin til Kauphallar Íslands.

Eftir viðskiptin eru um 4,7 milljónir hluta í Marel tengdir Helga í gegnum ýmis félög, en markaðsvirði þeirra er um 700 milljónir í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×