Viðskipti innlent

Kjaradeilu sjómanna vísað til sáttasemjara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Friðrik Arngrímsson er framkvæmdastjóri LIÚ.
Friðrik Arngrímsson er framkvæmdastjóri LIÚ.
Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útvegsmanna og sjómanna til ríkissáttasemjara.

Samningar hafa verið lausir frá því í janúar í fyrra. Frá þeim tíma hafa aðilar tvisvar sinnum samið sérstaklega um hækkun á kauptryggingu og kaupliðum í samræmi við launahækkanir á almennum vinnumarkaði.

Útvegsmenn segja að frá því að síðustu kjarasamningar voru gerðir hafi ýmsir kostnaðarliðir og álögur á útgerðina hækkað umtalsvert sem kalla á breytingar á kjarasamningum aðila.

„Umtalsverð hækkun hefur orðið á veiðigjaldi, nýr skattur hefur verið lagður á olíu auk þess sem verð á olíu hefur hækkað verulega frá því að síðustu kjarasamningar voru gerðir," segir Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×