Viðskipti innlent

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 stig. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6% (áhrif á vísitölu -0,2%) en vélar, flutningur og orkunotkun hækkaði samtals um 0,9% (0,1%).

Horft til síðustu tólf mánaða hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7 prósent.

Nánari upplýsingar um vísitölu byggingarkostnaðar á vefsíðu Hagstofu Íslands má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×