Fleiri fréttir

Býðst að greiða 5000 af hverri milljón

Viðskiptavinum Arion banka með íbúðalán hjá bankanum sem hafa verið endurreiknuð býðst nú að greiða 5 þúsund krónur af hverri milljón. Gildir þetta einnig um þá greiðsluseðla sem þegar hafa verið sendir út og birtir í Netbanka Arion banka.

Veðurskynjari í síma

Fyrirtækið Google hefur tryggt sér réttinn til að nota kerfi sem byggir á að selja auglýsingar byggðar á veðrinu. Þannig gæti sá sem heldur á síma í rigningu mögulega séð auglýsingu um hvar næstu regnhlíf er að finna.

Sívirkni á Facebook merki um sjálfhverfu

Þeir Facebook-notendur sem uppfæra stöðu sína reglulega og merkja sjálfa sig með nafni inn á myndir eru sjálfhverfari en aðrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Chris Carpenter, prófessors við Western Illinois-háskólann í Bandaríkjunum.

Kaupmáttur eykst og laun hækka áfram

Vísitala kaupmáttar launa í febrúar s.l. er 112,0 stig og hækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,6%.

Hollt að láta hugann reika

Fólk sem á það til að láta hugann reika á meðan það vinnur er líklegra til að búa yfir betra vinnuminni en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri grein í tímaritinu Psychological Science.

Arion banki semur við MP banka um viðskiptavakt

Arion banki hf. hefur samið við MP banka hf. um að annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf, útgefnum af Arion banka hf., sem eru í viðskiptum í Kauphöll Íslands (ARION CBI 34).

Nýr iPad rokseldist áður en hann lenti á landinu

"Þetta er ekki bara leikjatölva," segir Hörður Ágústsson, framkvæmdastjóri Maclands. Sala á þriðju kynslóð iPad-spjaldtölvunnar frá Apple hefst í dag. Hundruðir Íslendinga höfðu forpantað tölvuna samkvæmt verslunum Maclands og Epli.is, sem sérhæfa sig í sölu á vörum frá Apple.

Meniga semur við Skandiabanken í Noregi

Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur samið um heimilisfjármálahugbúnað sinn við Skandiabanken í Noregi. Meniga lausnin er nú orðin hluti af netbanka Skandiabanken og aðgengileg rúmlega 300 þúsund viðskiptavinum bankans og á innan við viku hafa yfir 10% netbankanotenda Skandiabanken hafið notkun á lausninni.

Seðlabankinn fylgdi ekki verklagsreglum

Verklagsreglum Seðlabanka Íslands var ekki fylgt þegar bankinn lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra 6. nóvember 2008. Þá var ekki kannað hver staða Seðlabankans væri varðandi fullnustu á veðinu, en Kaupþing setti fram veð í danska FIH-bankanum. Þetta kemur fram í svari Seðlabankans við fyrirspurn Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar.

FME hefur lokið rannsókn 149 mála

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið rannsóknum á 149 málum tengdum bankahruninu en alls hefur FME tekið 191 mál til rannsóknar. Stefnt er að því að rannsóknum á öllum málunum verði lokið í árslok. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta eintaki Fjármála, nýs vefrits FME.

Hagnaður Félagsbústaða 2,9 milljarðar í fyrra

Mikil umskipti urðu á rekstri Félagsbústaða í Reykjavík milli síðustu tveggja ára. Í fyrra varð 2,9 millljarða króna hagnaður af rekstrinum en árið áður skilaði reksturinn tapi upp á 1,9 milljarða króna.

SÍ segist líklega munu tapa á FIH

Vegna tímaskorts var verklagsreglum ekki fylgt þegar ákvörðun var tekin um lán upp á 500 milljónir evra, 6. október 2008. Af sömu ástæðu var ekki kannað hver staða Seðlabankans væri varðandi fullnustu á veðinu sem Kaupþing lagði fram, sem var hlutur í danska bankanum FIH.

300 milljóna greiðsla lögleg

Þrjú hundruð milljóna króna greiðsla Þreks ehf., fyrrverandi rekstrarfélags World Class, til Lauga ehf., núverandi rekstrarfélags, stendur óhögguð samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Björn Leifsson í World Class stofnaði bæði félögin en Þrek er farið í þrot og taldi skiptastjóri þess að greiðslan hefði verið gjafagerningur.

TM í söluferli á næstu dögum

Sala Stoða á hlutabréfum í TM mun hefjast á allra næstu dögum. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í dag. Samkvæmt ársreikningi var hagnaður TM á árinu 2011 um 3,4 milljarðar króna. Þar af voru 2,4 milljarðar króna vegna hækkunar á gangvirði fjárfestingareigna á síðasta ári.

Bankinn þurfti heimild fyrir yfirdráttarláninu

Banka er óheimilt að stofna til yfirdráttarskuldar reikningseiganda í bankanum nema til komi sérstakt samþykki frá reikningseigandanum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands í máli sem Arion banki höfðaði gegn hjónum.

Björgólfur Thor: Uppgjörið við hrunið er að mistakast

"Helsti lærdómurinn af Landsdómi er að uppgjörið við hrunið er að mistakast. Þau sakamál sem eru til umfjöllunar hjá sérstökum saksóknara eða eru komin fyrir héraðsdóm eru afmörkuð og munu ekki svara spurningum um það hvar Íslendingar sem þjóð og samfélag misstigu sig.“ Þetta segir Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir og fyrrum kjöfestueigandi hlutafjár í Landsbankanum og Straumi, í bloggfærslu á vefsíðu sinni, btb.is.

Hagnaður Eimskips 2,1 milljarður á síðasta ári

Hagnaður Eimskipafélagsins á árinu 2011 eftir skatta var um 2,1 milljarður króna og rekstrarhagnaður var um 7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Heildareignir félagsins í lok síðasta árs voru 45 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfallið 62,3%. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir að rekstrarniðurstaða ársins sé í takt við væntingar þrátt fyrir erfitt rekstrarumhverfi hérlendis og erlendis. Stefnt er að því að skrá félagið í Kauphöll Íslands fyrir lok þessa árs og er vinna við undirbúning þess í fullum gangi.

Samkeppniseftirlitið ætlar að áfrýja - fallast ekki á rök dómara

Samkeppniseftirlitið ætlar að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms í olíusamráðsmálinu til Hæstaréttar. Dómarinn hélt því fram að félögin hafi ekki átt kost á að nýta sér andmælarétt í málinu þar sem að málið hafi á tímabili einnig verið til rannsóknar hjá lögreglu. Því hafi félögin átt það á hættu að upplýsingar sem þau veittu samkeppnisyfirvöldum kynnu að rata á borð lögregluyfirvalda og verið notaðar gegn þeim þar. "Við þessar aðstæður var andmælaréttur stefnenda lítils virði," segir í dómnum. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að ekki sé hægt að fallast á þetta og eru nokkur rök talin upp í því sambandi:

iPad fer í sölu á miðnætti

Miðnæturopnun verður í verslunum Epli.is á Laugavegi 182 og í Smáralind. Dyr verslananna opna klukkan 00:01 og munu íslenskir Apple aðdáendur fá að handleika þriðju kynslóð iPad spjaldtölvunnar í fyrsta sinn.

Laugar halda 300 milljónum

Rekstrarfélag World Class, Laugar ehf, sem er í eigu Björns Leifssonar, var í dag sýknað af 300 milljóna króna kröfu þrotabús Þreks ehf. Þrek ehf var upphaflega rekstrarfélag World Class og í eigu Björns en félagið fór í þrot eftir bankahrun. Eignir þess voru þá færðar inn í Laugar ehf.

Nýr framkvæmdastjóri hjá McDonald's

Jim Skinner, forstjóri McDonald's-skyndibitakeðjunnar, ætlar að láta af störfum í júní næstkomandi en hann hefur gegnt starfinu frá árinu 2004. Stjórn fyrirtækisins segir að Skinner ætli að setjast í helgan stein enda verður hann 67 ára á þessu ári. Stjórnin þakkar Skinner fyrir störf sín en hann byrjaði fyrir 40 árum síðan sem yfirmaður á einum af stöðunum í Bandaríkjunum. Við starfinu tekur Donald Thompson, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í tvo áratugi en hann verður fyrsti svarti framkvæmdastjórinn í sögu fyrirtækisins sem var stofnað árið 1955. Á þessu ári gerir skyndabitakeðjan ráð fyrir að opna þrettán hundruð nýja staði víðsvegar um heiminn.

Olíusamráð: Ríkið endurgreiði einn og hálfan milljarð

Héraðsdómur felldi í dag úr gildi ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála um sektargreiðslur vegna olíusamráðsins svokallaða árin 1993 til 2001. Íslenska ríkinu er því gert að greiða olíufélögunum Olís, Skeljungi og ESSO, einn og hálfan milljarð króna. Eftir úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála í ársbyrjun 2005 greiddu félögin sektina, með fyrirvara um lögmæti hennar. Tekist hefur verið á um málið fyrir dómstólum allar götur síðan.

Lækka vexti á nýjum íbúðalánum

Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka verðtryggða húsnæðislánavexti. Lækkunin tekur til nýrra verðtryggðra húsnæðislána með föstum vöxtum með vaxtaendurskoðunarákvæði á 5 ára fresti. Annars vegar lækka vextir verðtryggðra húsnæðislána sem takmarkast við 70% af fasteignamati og fyrsta veðrétt í 4,10% fasta vexti í 5 ár. Hins vegar lækka vextir verðtryggðra viðbótarlána sem takmarkast við 80% af markaðsverði í 4,95% fasta vexti í 5 ár.

Húsaleiguverð lækkar í höfuðborginni

Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu lækkaði í febrúar s.l. miðað við fyrri mánuð. Vísitala leiguverðs sem Þjóðskrá Íslands mælir reyndist 109,9 stig í febrúar og lækkaði um 1%.

Aðstoðarritstjóri Wall Street Journal: Gengur kínverska módelið upp?

Aðstoðarritstjóri Wall Street Journal, John Bussey, segir að yfirvöld í Kína hafi náð að róa markaði með aðgerðum til þess að sporna við verðbólgu. Hins vegar séu komnar upp alvarlegri spurningar um það, hvort kínverska módelið svokallaða, það er uppbygging kínverska hagkerfisins í heild sinni, gangi upp. Er þar einkum horft til þess að hið opinbera er við allar hliðar borðsins í hagkerfinu.

Kamprad gefur milljarða króna

Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, vill að velgjörðarsjóður fyrirtækisins verði meðal þeirra stærstu í heimi. Markmiðið er að taka þátt í að hjálpa hundrað milljónum barna til ársins 2015, hefur Dagens Industri eftir Per Heggenes, framkvæmdastjóra sjóðsins.

Þotueldsneyti unnið úr trjám

Airbus hefur gengið til liðs við fyrirtækjasamtök sem hafa það að markmiði að þróa sjálfbæran orkugjafa fyrir flugiðnað.

Eimskip hagnaðist um 2,1 milljarð króna

Hagnaður Eimskipafélagsins á síðasta ári eftir skatta var um 2,1 milljarðar króna og rekstrarhagnaður, eða EBITDA, var um 7 milljarðar króna. Heildareignir félagsins í lok ársins voru 45 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfallið 62,3%. Vaxtaberandi skuldir voru 9,8 milljarðar króna og handbært fé var 6,9 milljarðar króna. Á vef Eimskips segir að stefnt sé að skráningu í Kauphöll fyrir lok ársins 2012 og vinna við undirbúning þess sé í fullum gangi.

Bandarískt lyfjafyrirtæki vill kaupa Actavis

Talið er að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson Pharmaceuticals Inc. ætli að kaupa Actavis. Fréttastofan Reuters greinir frá þessu í dag en talið er að kaupvirðið sé um 7 milljarðar dollara.

Ætla að kæra verkfallsboðun til Félagsdóms

Boðun Flugreyjufélags Íslands á verkfalli flugliða hjá Iceland Express eftir viku er ólögleg að mati Iceland Express og verður kærð til Félagsdóms samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.

Fjármálastjórar þurfa þekkingu á sífellt fleiri sviðum

Dr. David Schwarzkopf er gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík. Hann segir framfarir í upplýsingatækni hafa breytt því hvernig endurskoðendur og fjármálastjórar sinna störfum sínum þar sem nýtilkomið flóð tiltækra gagna hafi stórfjölgað mælikvörðum.

Rauðar tölur lækkunar á hlutabréfamarkaði

Gengi bréfa íslenskra félaga, sem skráð eru í Kauphöll Íslands, lækkuðu flest í dag og sýndu því rauðar tölur. Þannig lækkaði gengi í Haga um 1,12 prósent og er það nú 17,65. Gengi bréfa í Icelandair lækkaði um 0,34 prósent og er 5,90. Gengi bréfa í Marel lækkaði um 0,34 prósent, og er nú 146, og gengi bréfa í Össuri um 0,5 og er nú 198.

Fréttaskýring: 150 milljarða hagnaður frá hruni

Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki högnuðust samtals um 30 milljarða króna í fyrra. Þeir færðu niður eignir sínar um 64 milljarða vegna gengislánadómsins sem féll í febrúar síðastliðnum. Landsbankinn tók á sig rúmlega helming þeirrar niðurfærslu.

Már um afnámsáætlun: Þú færð hvergi betri ávöxtun

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir það vera það "eina rétta" fyrir íslenska lífeyrissjóði að selja eignir erlendis, og fjárfesta í íslenskum ríkisskuldabréfum, á grundvelli áætlunar Seðlabanka Íslands um afnám gjaldeyrishafta. "Þú færð hvergi betri ávöxtun, það er bara þannig," sagði Már, aðspurður um þátttöku lífeyrissjóðanna í útboðum Seðlabankans, sem eru hluti af áætlun um afnám hafta.

Sjá næstu 50 fréttir