Bankinn þurfti heimild fyrir yfirdráttarláninu Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. mars 2012 16:14
Banka er óheimilt að stofna til yfirdráttarskuldar reikningseiganda í bankanum nema til komi sérstakt samþykki frá reikningseigandanum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands í máli sem Arion banki höfðaði gegn hjónum. Hjónin gerðu samning um eignastýringu við Kaupþing banka, sem nú heitir Arion banki, haustið 2007. Í samningnum fólst að bankinn tók að sér að taka við fjármunum til fjárfestingar fyrir hjónin. Með samningnum hafi stefndu veitt bankanum fullt og ótakmarkað umboð til kaupa og sölu á fjármálagerningum samkvæmt fjárfestingarstefnu sem viðskiptavinur valdi samhliða samningnum. Bankinn hafði umboð til að stofna reikning í nafni fólksins sem var gert. Reikningnum var svo lokað í byrjun árs 2009 en þá var staða hans neikvæð um tæpar 4,8 milljónir. Bankinn stefndi því hjónunum til greiðslu skuldarinnar. Hjónin báru fyrir dómi að hvergi hafi komiið fram að þau hafi veitt Arion banka eða Kaupþingi umboð til að stofna til yfirdráttar á reikningnum. Bankinn hafi því ekki haft heimild til að stofna til yfirdráttarins. Undir þessi sjónarmið hjónanna tók dómurinn. Hjónin voru því sýknuð af kröfu bankans um endurgreiðslu á 4,8 milljóna króna skuldar.
Mest lesið Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Atvinnulíf Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Neytendur Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Sjá meira