Hagnaður Eimskips 2,1 milljarður á síðasta ári 22. mars 2012 14:42
Hagnaður Eimskipafélagsins á árinu 2011 eftir skatta var um 2,1 milljarður króna og rekstrarhagnaður var um 7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Heildareignir félagsins í lok síðasta árs voru 45 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfallið 62,3%. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir að rekstrarniðurstaða ársins sé í takt við væntingar þrátt fyrir erfitt rekstrarumhverfi hérlendis og erlendis. Stefnt er að því að skrá félagið í Kauphöll Íslands fyrir lok þessa árs og er vinna við undirbúning þess í fullum gangi. Vaxtaberandi skuldir félagsins á síðasta ári vou 9,8 milljarðar króna og handbært fé var 6,9 milljarðar króna. Flutningamagn í siglingakerfum félagsins á Norður Atlantshafi jókst um rúm 5% á milli ára. Rekstrarhagnaður (EBITDA) á fjórða ársfjórðungi var um 1,4 milljarður króna og hagnaður eftir skatta var um 100 milljónir króna. „Það er enn á brattann að sækja varðandi reksturinn á Íslandi en hægur bati er í inn- og útflutningi til og frá landinu. Starfsemin hefur gengið vel á öðrum markaðssvæðum félagsins bæði á Norður Atlantshafinu sem og í frystiflutningsmiðlun félagsins víða um heim," segir Gylfi í tilkynningu. „Rekstrarárangur ársins 2011 mun auðvelda Eimskip að fara í nauðsynlegar fjárfestingar við endurnýjun á skipastól félagsins, gámum og öðrum tækjum til að tryggja áreiðanleika og hátt þjónustustig fyrir viðskiptavini félagsins. Eimskip vinnur markvisst að því að auka afkastagetu í siglingakerfum félagsins sem og að þétta þjónustuframboð um allan heim."
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira