Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Störfum fjölgar í Bandaríkjunum Störfum í Bandaríkjunum fjölgaði um 200 þúsund í desembermánuði sem var að líða, samkvæmt opinberum tölum. Þetta er sjötti mánuðurinn í röð þar sem störfum fjölgar á milli mánaða og varð nokkru meiri fjölgun en búist hafði verið við. Atvinnuleysið í landinu mældist 8,5 prósent í desember sem er nokkru betri árangur en í mánuðinum á undan þegar það var 8,7 prósent. Mest fjölgaði störfum í verslun, framleiðslu og í samgöngum. 6.1.2012 14:51
Sparisjóður Svarfdæla seldur Landsbankanum Stjórn Sparisjóðs Svarfdæla og Landsbankinn hf. hafa náð samkomulagi um að Landsbankinn kaupi allar eignir og rekstur Sparisjóðsins og haldi áfram fjármálastarfsemi í Dalvíkurbyggð. 6.1.2012 11:47
Síðustu forvöð að tilnefna til vefverðlauna SVEF Samtök vefiðnaðarins veita árleg vefverðlaun sín í Tjarnarbíói þann 3. febrúar. Síðustu forvöð til að tilnefna vefi eru á morgun, 7. janúar, og eru þeir sem hyggjast tilnefna vefi sína hvattir að bregðast skjótt við. 6.1.2012 11:00
Eiginkona Hildebrand viðurkennir gjaldeyrisbraskið Eiginkona Phillip Hilderbrand formanns bankastjórnar Seðlabanka Sviss hefur viðurkennt að það var hún sem stóð að viðamiklu gjaldeyrisbraski s.l. haust og notaði til þess sameiginlegan reikning þeirra hjóna hjá Bank Sarasin. 6.1.2012 10:07
Vöruskiptin hagstæð um 14,5 milljarða í desember Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember síðastliðinn var útflutningur tæpir 59,6 milljarðar króna og innflutningur 45,0 milljarðar króna. Vöruskiptin í desember voru því hagstæð um 14,5 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 6.1.2012 09:13
Gistinóttum fjölgaði um 13% milli ára í nóvember Gistinætur á hótelum í nóvember voru 79.500 samanborið við 70.400 í nóvember 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 73% af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 19% samanborið við nóvember 2010 á meðan fjöldi gistinátta Íslendinga var svipaður á milli ára. 6.1.2012 09:04
Landaður afli í Faxaflóahöfnum jókst um tæp 13% milli ára Aukning á lönduðum afla hjá Faxaflóahöfnum milli áranna 2010 og 2011 nam um 16.800 tonnum eða um 12,8%. Aukningin var að mestu í Reykjavík en á Akranesi barst svipaður afli á land í fyrra og árið 2010. Heildaraflinn í fyrra nam 148.200 tonnum, að því er segir á heimasíðu hafnanna. 6.1.2012 09:00
Ísland áfram á leið niður listan um skuldatryggingaálög þjóða Ísland heldur áfram að falla niður lista CMA gagnaveitunnar um skuldatryggingaálag þjóða heimsins, sem er jákvæð þróun. 6.1.2012 07:37
Lítið greitt af erlendum skuldum fyrirtækja frá hruninu Greining Arion banka telur að lítið hafi verið greitt niður af erlendum skuldum fyrirtækja frá hruninu haustið 2008. 6.1.2012 07:23
Tölvuormur herjar á Facebook notendur Öryggisþjónustur á netinu hafa gefið út viðvörun um að tölvuormur hafi náð að stela 45.000 lykilorðum af samskiptavefnum Facebook. Upplýsingunum hefur aðallega verið stolið af Facebook síðum í Bretlandi og Frakklandi. 6.1.2012 07:18
Eignir lífeyrissjóða halda áfram að aukast Eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að aukast en samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands nam hrein eign lífeyrissjóða 2.078 milljarða kr. í lok nóvember síðast liðins. 6.1.2012 07:02
Skuldir Víkingaheima afskrifaðar að mestu Skuldir tveggja félaga sem halda utan um Víkingaheima í Reykjanesbæ munu lækka um 60-70% samkvæmt uppgjörssamkomulagi þeirra við stærsta eiganda sinn, Reykjanesbæ, og lánardrottinn, Landsbankann. Félögin tvö, sem heita Íslendingur ehf. og Útlendingur ehf., skulduðu samtals um 620 milljónir króna í lok árs 2010. 6.1.2012 06:00
Minna úrval vegna merkinga matvara Hagar hafa að mestu leyti skipt út matvælum sem þarf að merkja vegna reglugerðar um merkingar á erfðabreyttum matvælum sem tók gildi um áramótin, að sögn Finns Árnasonar forstjóra. 6.1.2012 06:00
Reyna enn að fá kyrrsetningu aflétt Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, reyna enn að fá kyrrsetningu eigna sinna aflétt fyrir dómstólum. Málflutningur vegna þess fer fram í Hæstarétti í næstu viku. 6.1.2012 04:00
Allt verð lækkað í verslunum Byko Byggingavöruverslunin Byko hefur kynnt nýja verðlagningarstefnu og hefur allt verð til almennra neytenda verið lækkað. 6.1.2012 04:00
Ofurálag á starfsfólk Framtakssjóðsins "Þetta er búið að vera ofurálag á síðasta ári og bæði hafa verkefnin verið erfið og fjölmiðlaumræðan framan af ári var erfið,“ segir Finnbogi Jónsson, en tilkynnt var í dag að hann myndi láta af störfum sem framkvæmdastóri Framtakssjóðs Íslands. Hann segir þó að umræðan hafi gjörbreyst til batnaðar. 5.1.2012 21:40
Skýrslutökur hafnar hjá rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs Vinna rannsóknarnefndar sparisjóðanna og rannsóknarnefndar Íbúðalánasjóðs er komin á fullan skrið og eru skýrslutökur hafnar hjá rannsóknarnefnd Íbúðalánasjóðs. 5.1.2012 18:30
Finnbogi hættur hjá Framtakssjóðnum Finnbogi Jónsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann hefur verið framkvæmdastjóri frá því að sjóðurinn var stofnaður fyrir um tveimur árum. Finnbogi mun taka að sér að sinna ákveðnum stjórnarstörfum fyrir félög sem eru í eigu Framtakssjóðsins. 5.1.2012 17:12
Ingólfur var hæfur til þess að gegna framkvæmdastjórastöðu Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úrskurð Fjármálaeftirlitsins gegn Ingólfi Guðmundssyni úr gildi í dag. 5.1.2012 16:15
Formaður bankastjórnar seðlabanka sakaður um gjaldeyrisbrask Philipp Hildebrand formaður bankastjórnar Seðlabanka Sviss hefur verið ásakaður um að hafa hagnast töluvert á gjaldeyrisbraski. 5.1.2012 09:54
Færri skipakomur til Faxaflóahafna Í fyrra komu 1454 skip, stærri en 100 brúttótonn, til hafna Faxaflóahafna eða samanlagt rétt tæpar 7 milljónir brúttótonna. 5.1.2012 09:27
Heimsmarkaðsverð á olíu ekki hærra í átta mánuði Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og hefur verðið ekki verið hærra í átta mánuði. 5.1.2012 09:26
Vöruskiptin 8 milljörðum lakari í fyrra en 2010 Fyrstu ellefu mánuðina í fyrra voru fluttar út vörur fyrir 566,0 milljarða króna en inn fyrir 468,6 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 97,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 105,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. 5.1.2012 09:06
Arion banki býður Pennann til sölu Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í Pennanum á Íslandi ehf. sem er í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf. 5.1.2012 08:09
Evrópa á barmi hruns? Í stuttri fréttaskýringarmynd ritstjórnar Wall Street Journal, Europe on the Brink, er dregin upp nöturleg mynd af stöðu mála í Evrópu. Skuldavandinn er djúpstæður og erfiður viðureignar. Myndin var birt á vef Wall Street Journal í gær. 5.1.2012 08:00
Tölvuþrjótar stálu 100 milljónum lykilorða í Kína Tölvuþrjótum hefur tekist að stela um 100 milljónum af lykilorðum frá mörgum stórum og vinsælum netþjónustum í Kína. 5.1.2012 07:55
Aflaverðmæti HB Granda 18 milljarðar í fyrra Heildaraflaverðmæti skipa HB Granda á síðasta ári nam alls um 18 milljörðum króna. 5.1.2012 07:40
Töluvert dró úr veltu á gjaldeyrismarkaðinum Töluvert dró úr veltunni á millibankamarkaði með gjaldeyri í desember síðast liðnum. Alls nam veltan 10,8 milljörðum kr. sem er 28,7% minni velta en í fyrra mánuði. 5.1.2012 07:17
Gott gengi hjá verslunum Kaupþings á Bretlandseyjum Rekstur breskra tískuverslanakeðja í eigu þrotabús Kaupþings gekk mjög vel í jólaösinni í síðasta mánuði. 5.1.2012 06:59
Vilja selja þriðjung í HS Veitum sem fyrst Reykjanesbær er að skoða að selja 15% hlut í HS Veitum til að greiða niður skuldir sínar. Sveitarfélagið á í dag 66,7% hlut í fyrirtækinu. Áætlað er að sala hlutarins fari fram á fyrstu mánuðum ársins. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar sem var samþykkt í bæjarstjórn 3. janúar síðastliðinn. Þá hefur Orkuveita Reykjavíkur (OR) hug á því að selja 16,6% eignarhlut sinn í HS Veitum í samstarfi við Reykjanesbæ. Íslandsbanki vinnur nú að verkefninu fyrir hönd sveitarfélagsins og OR. Því er samtals tæplega þriðjungshlutur í fyrirtækinu til sölu. 5.1.2012 04:00
Dótturfyrirtæki Actavis greiðir tugi milljarða króna Dótturfyrirtæki Actavis Group hefur samþykkt að greiða tæplega 119 milljónir bandaríkjadala, tæplega 15 milljarða íslenskra króna, vegna ásakana af hálfu bandarískra stjórnvalda og fjögurra fylkisstjórna í Bandaríkjunum um að hafa ofrukkað fyrrgreinda aðila vegna lyfja. 4.1.2012 23:51
Nýtt vaxtaskeið í farþegaflugi - eldgosi og ferðaátaki að þakka Flugfarþegum á Keflavíkurflugvelli fjölgaði um 17,9% á árinu 2011 miðað við árið 2010. Alls lögðu 2.112.017 farþegar leið sína um flugvöllinn á árinu, þar af tæplega 1,7 milljón á leið til og frá landinu sem er um 16,3% aukning. 4.1.2012 15:41
Nýr forstjóri Yahoo! Yahoo! réð í dag Scott Thompson sem nýjan forstjóra fyrirtækisins, en hann var áður framkvæmdastjóri PayPal, sem er undir ebay. 4.1.2012 15:17
Málsókn gegn sjömenningum lokið í NY - hugsanlega stefnt á Íslandi Skilanefnd Glitnis hefur fallið frá stefnu gegn sjömenningunum svokölluðu fyrir dómstólum í New York. Lögmenn skilanefndarinnar skilaði ekki inn gögnum til áfrýjunarréttar eftir frávísun þess í lok árs 2010 og lauk því málarekstri opinberlega um áramótin. 4.1.2012 15:13
Samfylkingin vill losna við Víkingaheima og Íslending Samfylkingin í Reykjanesbæ vill selja Víkingaheima í stað þess að selja hlut í HS veitum að því er greinir frá í bókun frá flokknum og Víkurfréttir greina frá. 4.1.2012 14:39
Þrír framkvæmdastjórar ráðnir til FME Þrír nýjir starfsmenn hafa verið ráðnir í stöður framkvæmdastjóra nýrra eftirlitssviða Fjármálaeftirlitsins.Stöður framkvæmdastjóra eftirlitssviðanna þriggja voru auglýstar í nóvember síðastliðnum og hefur Fjármálaeftirlitið nú gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra þeirra. 4.1.2012 14:06
Alls voru 373 fasteignir seldar í borginni í desember Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember s.l. var 373. Heildarvelta nam 12,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 33,2 milljónir króna. 4.1.2012 11:10
Tvöfalt meira fer í skattinn Gjaldabreytingar embættis ríkisskattstjóra á félög og fyrirtæki námu sex milljörðum króna á árinu 2011. 4.1.2012 11:00
Metár í fjölda gjaldþrota Ljóst er að nýtt met verður slegið í fjölda gjaldþrota á árinu 2011, en fyrstu 11 mánuði ársins höfðu 1.426 fyrirtæki lagt upp laupanna. Þar með er fyrra met frá árinu 2010 slegið út, þegar gjaldþrot voru samtals 982 talsins. 4.1.2012 10:54
Aldrei hafa fleiri veðjað á að evran falli í verði Aldrei í sögunni hafa fleiri fjárfestar veðjað á að evran falli í verði með því að skortselja hana. 4.1.2012 10:04
Áætla 452 milljóna halla hjá Reykjanesbæ í ár Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir þetta ár gerir ráð fyrir að 452 milljón króna halli verði á bæjarsjóði, það er A og B hluta. 4.1.2012 09:52
Vísitala framleiðsluverðs lækkar Vísitala framleiðsluverðs í nóvember síðastliðnum var 211,1 stig og lækkaði um 0,9% frá október. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 4.1.2012 09:09
Gjaldþrotum fjölgar um 63% milli ára Fyrstu 11 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 1.432 sem er um 63% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 877 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. 4.1.2012 09:05
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka en það rauk upp um yfir 3% í gærdag. Tunnan af bandarísku léttolíunni er komin í tæpa 103 dollara og tunnan af Brent olíunni er í tæpum 112 dollurum. 4.1.2012 07:56
Bankamenn ákærðir fyrir 150 milljarða skattsvik Saksóknari á Manhattan í New York hefur ákært þrjá svissneska bankamenn fyrir að hafa aðstoðað Bandaríkjamenn við skattsvik sem nema um 1,2 milljörðum dollara eða tæplega 150 milljarða króna. 4.1.2012 07:39