Fleiri fréttir

ESB segir að ekki standi til að lána Portúgal

Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur blásið á sögur þess efnis að Portúgalar séu næsti í röðinni til þess að þyggja fjárhagsaðstoð frá sambandinu. Ríkisstjórn Portúgals hefur tekið í svipaðan streng og sagt sögurnar uppspuna. Portúgalir samþykktu fjárlög sín fyrir árið 2011 þar sem tekið verður á skuldavandanum. Írar hafa farið fram á aðstoð frá ESB vegna skuldavanda og telja margir að Portúgalir séu síst betur staddir.

Einar Hannesson stjórnarformaður SÍSP

Einar Hannesson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík hefur verið kjörinn stjórnarformaður, SÍSP, Sambands íslenskra sparisjóða. Einar var kjörinn einróma á aðalfundi sambandsins í gær.

Forsetinn vill aðra atkvæðagreiðslu um Icesave

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands vill að þjóðaratkvæðagreiðsla verði aftur um nýtt samkomulag í Icesave deilunni. Þetta kemur fram í viðtali við forsetann hjá Bloomberg fréttaveitunni.

NBI skilaði 3,5 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi

Afkoma NBI hf. (Landsbankans) var jákvæð um tæpa 3,5 milljarða króna eftir skatta á þriðja ársfjórðungi 2010. Samanlagður hagnaður bankans á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur 12,9 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár fyrstu 9 mánuðina er 10,9%.

Pólverjar bora eftir olíu á Suður Jótlandi

Sérfræðingar frá pólska olíufélaginu PGNiG ætla að bora eftir olíu á Suður Jótlandi. Fyrsta tilraunaholan verður boruð við bæinn Kiding sem liggur á milli Aabenraa og Sönderborgar.

Hækkun verðtryggðra lána ekki minni síðan 2003

Miðað við verðbólgumælinguna nú vegur hækkun á höfuðstól verðtryggðra lána vegna verðbóta 2,6% yfir árið 2010. Hefur hækkunin á þann mælikvarða ekki verið minni frá því árið 2003.

Straumur höfðar mál gegn David Rowland

Straumur hefur höfðað mál gegn fjárfestingarfélagi í eigu breska auðkýfingsins David Rowland. Rowland fjölskyldan á Havilland-bankann í Lúxemborg en sá banki var áður Kaupþing í Lúxemborg.

Marel fær erlent sambankalán upp á 53 milljarða

Marel hefur samið við hóp sex alþjóðlegra banka um langtímafjármögnun að upphæð 350 milljónir evra eða rúma 53 milljarða króna. Meðal vaxtakjör í upphafi samnings eru tæp 4% en er reiknað með að vaxtaálag muni lækka á lánstímabilinu, í takt við aukinn fjárhagslegan styrk fyrirtækisins.

Lög um ábyrgðarmenn stangast á við stjórnarskrá

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Suðurlands sem komst að þeirri niðurstöðu að tveir ábyrgðarmenn konu sem fór í greiðsluaðlögun skuli greiða skuldir hennar. Sparisjóður Vestmannaeyja krafðist þess að

Jón Daníelsson líkti ráðamönnum við jólasveina

Jón Daníelsson, hagfræðingur við London School of Economics, segir raunverulega hættu á því að Ísland verði fátækt land til frambúðar. Hann gagnrýnir mjög stefnu stjórnvalda í atvinnumálum og segir að atvinnustefnan virðist vera pólitískari í dag en frá því hann var barn.

Rúmlega 15 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 15,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,4% í 3,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 11 ma. viðskiptum.

Már tjáir sig um Sjóvá og ásakanir Heiðars

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að þáttur Seðlabankans í söluferli Sjóvár muni standast fína skoðun. Hann hafnar því að hafa beitt valdníðslu og brotið reglur og lög. Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir fór fyrir hópi sem átti hæsta tilboðið í Sjóvá en hópurinn hefur nú dregið tilboð sitt til baka vegna tafa við vinnslu málsins hjá Seðlabankanum.

Már útilokar ekki evruna þrátt fyrir vandræði

Már Guðmundsson seðlabankastjóri telur að það geti verið góður valmöguleiki fyrir Ísland að taka upp evru, þrátt fyrir skuldavandann. Már Guðmundsson, segir að skuldavandi evruríkja, sé ekki tilkominn vegna sameiginlegu myndarinnar heldur vegna skorts á eftirliti í bankakerfinu.

Enn óvissa um stöðu fjármálafyrirtækja

Enn er óvissa um eiginfjárstöðu fjármálafyrirtækja og skuldastöðu heimila og fyrirtækja, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í inngangsorðum í Fjármálastöðugleika, nýju riti Seðlabankans. Hann segir að mikilvægt sé að minnka þessa óvissu til að traust skapist á fjármálafyrirtækjunum og fjárfesting og þjóðarbúskapurinn nái sér á strik.

Már vildi ekki Heiðar Má og tilkynnti það símleiðis

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, tilkynnti Heiðari Má símleiðis að hann vildi ekki að hann yrði meðal þeirra fjárfesta sem keyptu Sjóvá en seðlabankastjóra grunaði Heiðar Má um viðskipti með aflandskrónur í gegnum félag sitt Ursus capital ehf.

Evran veikist áfram, skuldatryggingaálag hækkar

Enn heldur evran áfram að veikjast gagnvart helstu myntum, og líkt og undanfarið er veikingin rakin til fregna af bágri stöðu Írlands og keðjuverkandi áhrif þeirra frétta á áhyggjur manna af stöðu annarra evruríkja.

Afskriftir fasteignalána heimila nema 22 milljörðum

Bankar og sparisjóðir hafa samtals afskrifað um 22 milljarða króna hjá einstaklingum og fjölskyldum í tengslum við þau úrræði sem skuldugum heimilum standa til boða. Fjármálafyrirtækin hafa kynnt um 20 mismunandi úrræði sem ætlað er að hjálpa almenningi að takast á við greiðsluerfiðleika í kjölfar fjármálahrunsins.

Hlutabréf í Royal Unibrew á mikilli siglingu

Hlutabréf í Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðjum Danmerkur, hafa verið á mikill siglingu í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun. Hafa þau hækkað um 5% frá opnun markaðarins. Þar með hafa bréfin hækkað um tæp 127% frá áramótum.

Bónus með lægsta verðið

Bónus var oftast með lægsta verðið og Kostur oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri á mánudaginn.

Konunglegt brúðkaup kostar Breta 900 milljarða

Hið konunglega brúðkaup sem framundan er í Bretlandi á næsta ári, þar sem William prins og Kate Middleton ganga up að altarinu, gæti kostað breskt efnahagslíf allt að fimm milljörðum punda eða um 900 milljarða króna.

Þúsundir bíða enn bótanna

Í Bretlandi bíða þúsundir manna enn eftir endurgreiðslum og bótum frá flugfélögum sem felldu niður ferðir í vor vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Breska flugmálaeftirlitið hefur sent viðvaranir til flugfélaganna, enda ber þeim bæði að endurgreiða fargjöld og greiða sanngjarnar bætur vegna viðbótarkostnaðar.

Innflytjendur óttast um hag sinn

Félag atvinnurekenda geldur varhug við frumvarpi fjármálaráðherra um að heimilt verði að bjóða út innkaup í útlöndum. Í greinargerð þess er vísað til áhuga heilbrigðisráðuneytisins og Landspítala á að kanna möguleika á sameiginlegum lyfjaútboðum með hinum Norðurlöndunum.

Verður á lygnum sjó árið 2015

Orkuveitan (OR) vinnur að undir­búningi skuldabréfaútboðs og stefnir á að selja lífeyrissjóðum bréf til 24 ára fyrir fimm milljarða króna. Þetta er framhald af útboði í árslok 2009 þegar OR sótti sér jafn háa upphæð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari skuldabréfaútgáfur á innlendum markaði hjá OR. Rætt er um að auka hlut innlendra lána í lánasafni OR með því að gefa út skuldabréf með reglubundnum hætti í framtíðinni fyrir tiltölulega lágar upphæðir, hálfan til einn milljarð króna í hvert sinn.

Stefnt er að skráningu á ný

Breski fjárfestingarsjóðurinn 3i greindi frá því í gær að hann hafi keypt hollenska iðnfyrirtækið Stork Material Technologies fyrir 150 milljónir evra, jafnvirði 23 milljarða króna. Fyrirtækið var hluti af hollensku iðnsamsteypunni Stork. Söluandvirði verður nýtt til niðurgreiðslu á skuldum, að sögn breska viðskiptablaðsins Financial Times.

Harkalegt aðhald á Írlandi

Írska stjórnin kynnti í dag aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum til næstu fjögurra ára, þær harkalegustu í sögu landsins. Hugmyndin er að lækka útgjöld um tíu milljarða evra og hækka skatta um fimm milljarða evra, þannig að fjárlagahallinn minnki samtals um fimmtán milljarða evra á tímabilinu 2011 til 2014.

Stórfyrirtækin í tapi

Helmingur stærstu fyrirtækja landsins var rekinn með tapi á síðasta ári. Þriðjungur hefur ekki skilað ársreikningi til ríkisskattstjóra.

iPad til leigu í vélum Iceland Express

Iceland Express býður nú farþegum sínum til leigu iPad á flestum flugleiðum félagsins. Í tilkynningu segir að félagið sé þannig fyrst evrópskra flugfélaga til að bjóða slíka þjónustu um borð.

Skýrr komið í innsta hring hjá Microsoft

Microsoft hefur tekið íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr inn í svokallaðan „Inner Circle"-hóp samstarfsaðila Microsoft. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þangað komist einungis þau fyrirtæki sem Microsoft telur hafa sýnt bestan árangur í að nýta Microsoft Dynamics-viðskiptalausnir til að þróa og efla starfsemi viðskiptavina sinna.

Ráðherra vill fresta aðskilnaði dreifiveitna

Iðnaðarráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi um að aðskilnaði dreifiveitna frá annarri starfsemi orkufyrirtækja verði frestað til ársins 2012. Orkuveita Reykjavíkur telur að aðskilnaður framleiðslu og dreifingar orku hjá fyrirtækinu hefði leitt til enn frekari verðhækkana á orku til almennings og fyrirtækja.

Heiðar vildi borga 11 milljarða fyrir Sjóvá - kvartar til umboðsmanns

Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir, hefur sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna vinnubragða Seðlabankans við sölu á Sjóvá,sem ekkert verður af að sinni. Kauptilboðið nam ellefu milljörðum króna sem er sama upphæð og ríkið lagði inn í Sjóvá á sínum tíma.

Enn er lítið selt af atvinnuhúsnæði

Í október síðastliðnum var 101 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu öllu. Þar af var 45 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og 56 samningum á landsbyggðinni.

Landsbankinn setur fasteignafélagið Reginn A3 í sölu

Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu.

SAS gefur starfsfólki sínu ekki jólagjafir í ár

SAS flugfélagið hefur ákveðið að gefa ekki starfsfólki sínu jólagjafir í ár. Ástæðan er slæmt gengi félagsins en þetta er annað árið í röð sem starfsfólk SAS heldur jólin án gjafar frá vinnuveitenda sínum.

Heiðar Már kvartar til umboðsmanns Alþingis

Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir, hefur sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna ófaglegra vinnubragða Seðlabankans við sölu á Sjóvá, eins og hann orðar það.

Sjá næstu 50 fréttir