Landsbankinn setur fasteignafélagið Reginn A3 í sölu 24. nóvember 2010 11:03
Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu segir að tilgangur Regins A3 ehf. er kaup, sala og rekstur fasteigna. Félagið er með 24 leigusamninga við 19 leigutaka. Heildarfjöldi útleigðra fermetra er um 7.800. Starfsemi félagsins er í dag að fullu úthýst til Regins ehf. Seljandi hlutafjárins er Reginn atvinnuhúsnæði ehf. sem er í eigu Regins ehf. Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna. Aðilar þurfa jafnframt að gefa til kynna það verð sem þeir eru reiðubúnir að greiða fyrir hlutafé félagsins. Frestur til að skila inn bindandi tilboði rennur út klukkan 16:00, mánudaginn 20. desember 2010. Skilyrði fyrir þátttöku í söluferlinu er að fjárfestar fylli út upplýsingaeyðublað (fjárfestaform) og trúnaðaryfirlýsingu sem finna má á vef Landsbankans (www.landsbankinn.is). Söluferlinu er skipt upp í 4 skref: Aðilar sem óska eftir að bjóða í hlutafé félagsins skulu skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að fylla út upplýsingaeyðublað er m.a. útlistar hæfni þeirra til þátttöku í söluferlinu. Þar skal einnig koma fram verðhugmynd. Þátttakendur sem uppfylla skilyrði til þátttöku í söluferlinu fá send frekari gögn um félagið ásamt aðgangi að rafrænu gagnaherbergi. Rafrænt gagnaherbergi verður opið fyrir þátttakendur frá 26. nóvember til 20. desember. Aðilar skila inn bindandi tilboði á þar til gerðu formi ásamt staðfestingu á handbæru fé eða útlistun á fjármögnun. Frestur til að skila inn tilboði rennur út kl. 16.00, mánudaginn 20. desember 2010. Horft verður til eftirfarandi atriða við val á fjárfestum inn í ferlið: Viðeigandi reynslu og þekkingu af sambærilegum fjárfestingum. Fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna; með fjárfestingargetu er átt við handbært fé sem viðkomandi getur með trúverðugum hætti sýnt fram á að sé til reiðu til að greiða fyrir hið selda hlutafé. Samkeppnisstöðu; viðkomandi fjárfestir þarf að tilgreina hver staða hans er á íslenskum fasteignamarkaði. Mat fjárfesta á virði hlutafjár í félaginu; Stutt sölulýsing inniheldur fullnægjandi upplýsingar um félagið til að aðilar geti út frá sínum eigin arðsemiskröfum gefið seljanda til kynna óskuldbindandi verðhugmynd.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira