Afskriftir fasteignalána heimila nema 22 milljörðum 25. nóvember 2010 10:35
Bankar og sparisjóðir hafa samtals afskrifað um 22 milljarða króna hjá einstaklingum og fjölskyldum í tengslum við þau úrræði sem skuldugum heimilum standa til boða. Fjármálafyrirtækin hafa kynnt um 20 mismunandi úrræði sem ætlað er að hjálpa almenningi að takast á við greiðsluerfiðleika í kjölfar fjármálahrunsins.Í tilkynningu frá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) segir að yfir 5 þúsund einstaklingar hafa nýtt sér úrræði banka og sparisjóða sem snúa að lækkun höfuðstóls á fasteignaveðlánum. Þessu til viðbótar eru 44 þúsund fasteignaveðlán, eða um 51% allra slíkra lána einstaklinga á Íslandi í greiðslujöfnun, sem var opinbert úrræði og stóð öllum til boða.Yfir 1700 einstaklingar hafa nýtt sér það úrræði sem felur í sér að erlendu láni er breytt yfir í verðtryggt eða óverðtryggt lán í krónum og með því móti er höfuðstóll lánsins lækkaður um 25% að meðaltali.Samtals hafa 9,7 milljarðar króna verið afskrifaðir af fasteignaveðlánum einstaklinga með þessum hætti.Yfir 1300 einstaklingar hafa nýtt sér höfuðstólsleiðréttingu á íslenskum fasteignaveðlánum og nemur heildarafskriftin 2,2 milljörðum króna.Ríflega 1600 einstaklingar hafa nýtt sér hina svokölluðu 110% leið sem hefur leitt til afskrifta upp á um 8 milljarða króna.Alls hafa 140 einstaklingar farið í gegnum sértæka skuldaaðlögun og nema afskriftir hjá þeim rúmum milljarði króna.Hátt í 300 mál hafa verið afgreidd í greiðsluaðlögun og er áætluð afskrift lána a.m.k. 1,1 milljarður króna.Fyrir Alþingi liggur frumvarp um endurútreikning erlendra fasteignaveðlána og breytingu þeirra í íslensk lán til samræmis við dóma Hæstaréttar. Ljóst er að verði það frumvarp að lögum mun það leiða til enn frekari afskrifta á höfuðstól fasteignaveðlána."Þessar tölur sýna að það hefur verið mikill vilji hjá bönkum og sparisjóðum að aðstoða viðskiptavini í greiðsluerfiðleikum. Fjármálafyrirtækin hafa sýnt eins mikinn sveigjanleika og kostur er í þeim samskiptum. Hins vegar er ljóst að þegar kemur að því að semja um skuldir einstaklinga, þá strandar sjaldnast á bankakerfinu. Þröskuldarnir virðast miklu fremur liggja hjá opinberum aðilum, " segir Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri SFF.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira