Skýrr komið í innsta hring hjá Microsoft 24. nóvember 2010 15:00
Microsoft hefur tekið íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr inn í svokallaðan „Inner Circle"-hóp samstarfsaðila Microsoft. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þangað komist einungis þau fyrirtæki sem Microsoft telur hafa sýnt bestan árangur í að nýta Microsoft Dynamics-viðskiptalausnir til að þróa og efla starfsemi viðskiptavina sinna. „Fyrirtæki sem komast í innsta hring hjá Microsoft halda nafnbótinni eitt ár í senn. Í ár komast einungis 72 af samstarfsaðilum Microsoft í innsta hring hjá Microsoft og í ljósi þess að samstarfsaðilar Microsoft skipta þúsundum á heimsvísu er árangur Skýrr afar eftirtektarverður." „Við erum eðlilega mjög stolt af þessari útnefningu, því Microsoft er kröfuharður og metnaðarfullur samstarfsaðili," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. „Skýrr hefur árum saman unnið markvisst að því að breikka og dýpka framboð sitt í þjónustu við Microsoft-lausnir. Sú þróun hefur verið knúin áfram af óskum okkar viðskiptavina. Við lítum á útnefninguna sem góða viðurkenningu og ákveðinn áfanga á langri vegferð," Tilkynnt var um árangur Skýrr á samstarfsaðilaráðstefnu í Washington og var formleg viðurkenning afhent fyrirtækinu nú í vikunni. Við útnefninguna lagði Microsoft áherslu á hversu góðum árangri Skýrr hafi náð við að þróa viðskiptalausnirnar Microsoft Dynamics NAV og AX, innleiða þær og nýta til að auka hagkvæmni í starfsemi viðskiptavina Skýrr á Íslandi. Auk Inner circle-nafnbótarinnar hefur Skýrr einnig fengið inngöngu í svokallaðan „President's Club" hjá Microsoft, sem einnig er viðurkenning fyrir samstarfsaðila Microsoft í viðskiptalausnum sem hafa náð góðum árangri í starfi sínu.
Mest lesið Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Raufarhafnarbúar taka á móti sínu fyrsta skemmtiferðaskipi Viðskipti innlent Gróði af verklokum réttlætti áhættu Viðskipti innlent Hefði ekki í „blautustu, villtustu draumum“ órað fyrir óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira