Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Goldman Sachs segir Pandóru yfir 1.100 milljarða virði Bandaríski stórbankinn Goldman Sachs segir markaðsvirði danska skartgripaframleiðandans Pandóru nema 56 milljörðum danskra kr. eða rúmlega 1.100 milljarða kr. Bankinn mælir með kaupum á hlutabréfum í Pandóru. 15.11.2010 13:45
Vill rifta meintum gjafagjörningi upp á hálfan milljarð Sigurbjörn Þorbergsson, skiptastjóri Þreks sem áður rak World Class, mun á næstu dögum höfða mál til að rifta meintum gjafagjörningi. Fyrri eigendur greiddu 25 milljónir fyrir eignir sem skiptastjórinn metur á 500- 700 milljónir. 15.11.2010 12:57
Royal Unibrew býður ekki í bruggverksmiðju í Eþíópíu Næststærsta brugghús Danmerkur, Royal Unibrew, er ekki eitt af fimm brugghúsum sem boðið hefur verið að bjóða í ríkisrekna bruggverksmiðju í Eþíópíu. Meðal annarra sem keppa um þessa verksmiðju eru Heineken, SABMiller og Diego. 15.11.2010 11:59
Smálán: Bannað að lána tekjulágum Starfsemi smálánafyrirtækja verður starfsleyfisskyld. Starfandi fyrirtæki fá þriggja mánaða frest til þess að afla sér starfsleyfis, samkvæmt nýju lagafrumvarpi sem efnahags- og viðskiptaráðherra hefur boðað um starfsemi slíkra fyrirtækja. 15.11.2010 11:42
Árleg raunávöxtum lífeyrissjóða 3,1% frá árinu 1997 Íslenskir lífeyrissjóðir eru með um 3,1% árlega raunávöxtun frá árinu 1997 á meðan markaðsraunvextir hafa verið um 4,5%. Þetta kemur fram í áliti frá hinu óháða og sérhæfða fjármálafyrirtæki GAMMA þar sem fjallað er um ávöxtunnarmarkmið lífeyrissjóðanna. 15.11.2010 11:06
Fíkniefnasmyglari skuldaði Eik Bank 10 milljarða Samkvæmt upplýsingum í viðskiptablaðinu Börsen í dag skuldaði þekktur fíkniefnasmyglari Eik Bank í Danmörku um hálfan milljarð danskra kr. eða um 10 milljarða kr. 15.11.2010 10:45
Skuldasúpa Grikklands mun verri en talið var Samkvæmt tölum sem Eurostat, hagdeild ESB, birti í morgun er skuldasúpa Grikklands mun verri en áður var talið. Hve mikið verri hún er kemur sérfræðingum samt ekki á óvart. 15.11.2010 10:32
Eik Bank tapar 40 milljörðum í Danmörku Eik Bank Denmark, dótturfélag Eik Banki í Færeyjum, mun tapa helmingi af útlánum sínum til fyrirtækja þar í landi eða um 40 milljörðum kr. Alls nema þessi útlán 4,2 miljörðum danskra kr. eða ríflega 80 milljörðum kr. 15.11.2010 10:06
ReMake í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja Íslenska sprotafyrirtækið ReMake Electric er komið í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja um grænar hátæknilausnir, Cleantech Open Global Ideas Competition. 15.11.2010 09:43
Heildaraflinn jókst um 4% milli ára í október Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 4,1% meiri en í október 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,6% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. 15.11.2010 09:05
Rekstrarkostnaður íslenskra lífeyrissjóða lægstur innan OECD Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða á Íslandi og í Danmörku er lægri en í nokkrum öðrum aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. 15.11.2010 09:02
Yfirtöku á Exista lokið, 306 milljarða skuld breytt í hlutafé Kröfuhafar Exista hafa yfirtekið félagið að fullu og er endurskipulagningu þess þar með lokið. Skuldum upp á 2 milljarða evra eða um 306 milljarða kr. var breytt í hlutafé í eigu kröfuhafanna. Þetta kemur fram í Financial Times í dag. 15.11.2010 08:51
Prófessor: Nokkur Evrópuríki í hættu á íslensku hruni Bandaríski hagfræðingurinn Kenneth Rogoff, fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), segir að nokkur Evrópuríki séu í hættu á að lenda í íslensku hruni ef þeim tekst ekki að skera niður fjárlög sín til lengri tíma litið. Auk þess þurfi löndin að komast í gegnum tímabil með litlum hagvexti samhliða þessum niðurskurði. 15.11.2010 08:24
Útlán ÍLS hafa lækkað um rúma 3 milljarða milli ára Samtals námu útlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 tæpum 23 milljörðum króna samanborið við rúmlega 26 milljarða á sama tímabili ársins 2009. 15.11.2010 07:41
Írar segjast ekki þurfa neyðarlán frá ESB Írskur ráðherra hefur neitað því að landið sé undir vaxandi þrýstingi að sækja um neyðarlán hjá Evrópusambandinu. 15.11.2010 07:18
Bankarnir hömluðu nýsköpun í landinu Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra setur Alþjóðlega athafnaviku klukkan 17 í dag. Er þetta í annað sinn sem vikan er haldin hér á landi og segir Katrín ljóst að framtakið í fyrra hafi skapað nauðsynlegt og skemmtilegt umtal um þau tækifæri sem í boði eru. 15.11.2010 06:00
Hókípókí-vinnubrögð við útboð á borun á Vaðlaheiði Ræktunarsamband Flóa og Skeiða (RSFS) borar nú rannsóknarholur á Vaðlaheiði þrátt fyrir að hafa ekki mátt bjóða í verkið vegna þess að það er í greiðslustöðvun. Sambandið fór bakleið að verkinu, sem undirverktaki nátengds fyrirtækis. Vegamálastjóri segir þetta skrítið en þó löglegt. 15.11.2010 06:00
Staða ríkissjóðs betri en spáð var Staða ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins var nítján milljörðum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er fram kemur í nýjum tölum fjármálaráðuneytisins. 15.11.2010 03:30
Vill eftirlit frá Vinnumálastofnun til verkalýðsfélaga „Það fór allt í rugl þegar vinnumálastofnun fór að sjá um þetta,“ sagði Tryggvi Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um eftirlit með bótagreiðslum en honum finnst Vinnumálastofnun ekki vandanum vaxið til þess að hafa eftirlit með þeim fjölda bótaþega. 14.11.2010 19:26
Gjaldeyrissakamál hugsanlega í uppnámi vegna lagaklúðurs Gjaldeyrisreglur Seðlabankans voru ekki birtar með réttum hætti fyrr en í október síðast liðnum og voru því óskuldbindandi, að mati hæstaréttarlögmanns. Ef það verður niðurstaða dómstóla gæti það haft áhrif á fjölda mála þar sem menn eru grunaðir um að brjóta gegn höftunum. 14.11.2010 18:35
Jónína: „Hótaði ekki - talaði bara götumál sem útrásarvíkingar skilja“ Jónína Benediktsdóttir beitti verulegum þrýstingi á forstjóra Kaupþings vegna fjármuna sem hún taldi sig eiga inni hjá bankanum. Hún þvertekur þó fyrir að hafa beitt fjárkúgun. Allt að sex ára fangelsi liggur við slíku broti. 14.11.2010 18:46
Írar hafa ekki sótt um neyðarlán Írar hafa ekki sóst eftir neyðarláni frá Evrópusambandnu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum líkt og BBC greindi frá og Vísir hafði svo eftir í gær. Þá greindi BBC frá því að Írar hefðu sótt um allt að 80 milljarða evra lán hjá stofnununum. 14.11.2010 16:15
AGS: Efnahagsbati hægari vegna seinkunar á fjárfestingum Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, undir handleiðslu Julie Kozack, heimsótti Reykjavík í byrjun nóvember vegna fjórðu endurskoðun sjóðsins upp á 2,1 milljarð dollara. Þeir telja að efnahagsbatinn muni ganga hægar vegna seinkunnar á fjárfestingaverkefnum. 14.11.2010 15:25
„Evrópusambandið er ekki korter í þrjú lausn“ „Maður hristir þetta ekki bara úr erminni,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni þegar hann var spurður út í ummæli Ögmundar Jónasson dómsmálaráðherra, sem sagði í fréttum í gær að hann vildi að umsóknarferlið inn í ESB yrði klárað á tveimur mánuðum. 14.11.2010 10:59
Írar sækja um neyðarlán Írsk stjórnvöld eiga í viðræðum við Evrópusambandið um fjárhagslegan stuðning samkvæmt heimildum fréttastofu BBC. Þar kemur fram að Írar muni hugsanlega fá neyðarlán upp á 80 milljarða evra. Ráðmenn hafa ekki beinlínis neitað fréttum BBC um málið. 13.11.2010 16:26
Segir rekstrarkostnað lífeyrissjóða glórulausan „Þetta er glórulaust í þeim skilningi að sjóðirnir gera nákvæmlega það sama,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, en hann tók saman rekstrarkostnað sex stærstu lífeyrissjóðanna fyrir árið 2009. 13.11.2010 15:46
Jóhannes Jónsson hefur greitt fyrir helminghlut í SMS Jóhannes Jónsson stofnandi Bónuss hefur í dag ásamt erlendum fjárfestum greitt til Arion banka hf. kaupverð á helmingshlut í færeyska verslunarfélaginu SMS. Áður hefur komið fram að verðmæti þessa hlutar sé um 450 milljónir kr. 12.11.2010 14:53
Spá: Ársverðbólgan eitt prósent á næsta ári Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan minnki niður í eitt prósentustig á næstu þremur mánuðum. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. 12.11.2010 14:25
Ríkisendurskoðun fylgist náið með sparnaði næstu ár Ríkisendurskoðun mun leggja áherslu á vandamál stjórnvalda og stofnana vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs í stjórnsýsluúttektum sínum á næstu tveimur árum. Sérstök áhersla verður lögð á að ríkisstofnanir standi við sparnaðaráform stjórnvalda. 12.11.2010 13:56
Tívolí ætlar að reka spilavíti við Ráðhústorgið Danski skemmtigarðurinn Tívolí mun koma sér upp spilavíti og verður það staðsett í H.C. Andersen höllinni við Ráðhústorgið í miðborg Kaupmannahafnar. 12.11.2010 12:51
Segja mál sjömenninganna eiga heima á Íslandi Ný gögn sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram í New York í skaðabótamálinu gegn sjömenningunum sanna ekkert og sýna að málið á ekki heima þar heldur fyrir íslenskum dómstólum, að mati lögmanna stefndu. Þá telja þeir áhuga íslensku þjóðarinnar á málinu styðja þá kröfu. 12.11.2010 12:18
Tap lánastofnana á gengislánum nemur 108 milljörðum Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um gengistryggð lán er tap lánastofnana á ólögmæti þessara lána alls 108 milljarðar króna. Frumvarpið felur í sér að öll gengistryggð bíla- og fasteignalán verði talin í sama flokki. 12.11.2010 12:10
Þunnur þrettándi á G20 fundinum Leiðtogar G20 ríkjanna hafa samþykkt útþynnta ályktun um að aðildarríkin eigi að vera á varðbergi gagnvart hættulegu ójafnvægi í viðskiptum sín í millum. Á sama tíma er lítið gert af hálfu G20 til að fullvissa fjárfesta um að heimurinn sé orðinn tryggari gagnvart efnahagslegum hamförum. 12.11.2010 11:25
Spákaupmenn ganga af göflunum í írsku skuldabraski Nýjar tölur frá greiningarfyrirtækinu Data Explorers benda til að spákaupmenn hafi gengið af göflunum í írsku skuldabraski í sumar og það sem af er haustinu. 12.11.2010 10:41
Desemberuppbót skal greiða fyrir 15. desember Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins (SA) greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. 12.11.2010 09:51
Engar eða litlar fjárfestingar hjá 60% fyrirtækja innan SA Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 30% telja það óvíst en einungis 12% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna. 12.11.2010 09:38
Skuldabréf N1 á athugunarlista í Kauphöllinni Kauphöllin hefur sett skuldabréfaflokk útgefnum af N1 á athugunarlista hjá sér. Ástæðan er tilkynning frá félaginu um að endurfjármögnun og endurfjármögnun BNT, móðurfélags N1, muni ekki ljúka fyrr en á næsta ári. 12.11.2010 09:31
Yfir þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en eitt ár Enn fjölgar í þeim hópi einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár. Þeir voru nú í lok október 4.614 talsins en höfðu verið 4.534 í lok september. Þetta jafngildir 35% atvinnulausra í október sem er með hæsta hlutfalli sem mælst hefur. 12.11.2010 09:07
Iceland Glacial útvegar 900 milljónir í nýtt rekstrarfé Iceland Glacial, fyrirtæki Jóns Ólafssonar, hefur útvegað 8 milljónir dollara eða rétt tæpar 900 miljónir kr. í nýtt rekstrarfé. Þetta kemur fram á vefsíðunni BevNET.com en þar er haft eftir Jóni að þetta fé hafi komið frá „vinum og vandamönnum“. 12.11.2010 08:23
Vilja hefja byggingu útgerðarmiðstöðvar á Akranesi Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður leita nú að áhugasömum aðilum til að reisa útgerðarmiðstöð á Akranesi. Unnið hefur verið að undirbúningi málsins um nokkurt skeið. Um er að ræða aðstöðu fyrir útgerð smábáta og aðra hafnsækna starfsemi við Akraneshöfn. 12.11.2010 07:58
Töluverður samdráttur kortaveltu í október Heildarvelta debetkorta í október 2010 var 29,4 milljarða kr. og er þetta 4,4% samdráttur miðað við október 2009 en 4,9% samdráttur miðað við september 2010. 12.11.2010 07:44
Aðild að ESB og upptaka evru leysir myntvandann „Það er alveg klárt að aðild að Evrópusambandinu og evrusvæðinu myndi leysa myntvandann sem birtist í fjármálakreppunni hér, bæði frá sjónarhóli verðstöðugleika og frá sjónarhóli fjármálastöðugleika,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á hádegisfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) um peningamál í gær. Um leið áréttaði hann að landið gæti sam 12.11.2010 06:15
Stærsta átak í heimi á sviði nýsköpunar Alþjóðlega athafnavikan á Íslandi hefst á mánudaginn næstkomandi. Að vikunni koma um 100 lönd og er þetta í annað sinn sem vikan er haldin á Íslandi og í þriðja sinn á heimsvísu. 12.11.2010 05:00
Þarf ekki að taka við stórri lóð Reykjavíkurborg er ekki skyldug til að taka við stórri lóð undir atvinnuhúsnæði í Hádegismóum, samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Dómurinn, sem er fordæmisgefandi, kann að hafa áhrif á réttindi lóðarhafa sem vilja skila lóðum sínum vegna brostinna forsendna. 11.11.2010 21:21
Bankar og lífeyrissjóðir enn á móti flatri niðurfellingu skulda Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion, sagði þetta að loknum samráðsfundi í dag. „Það er bara verið að velta upp mörgum leiðum, nú þarf að horfa á hvaða leið eru færar.“ Spurður hvort bankinn útiloki almenna aðgerðir sagði Höskuldur: „Já, okkur finnst það liggja í augum uppi að það sé ekki sú leið sem á að fara” 11.11.2010 18:45