Fleiri fréttir

Svissnesk yfirvöld vilja forðast íslensk örlög

Sviss á eitt sameiginlegt með Íslandi fyrir hrun, bankakerfi sem er margföld landsframleiðsla landsins að stærð. Þetta veldur svissneskum yfirvöldum áhyggjum og leita þau nú leið til að brjóta upp stærstu banka landsins til að forðast íslensk örlög í framtíðinni.

Íslendingar eiga 1800 milljarða í lífeyrissjóðunum

Uppbygging lífeyrissjóða er eitt af því sem best hefur tekist hjá Íslendingum undanfarin ár og áratugi, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í grein í Fréttablaðinu í dag.

BankNordik skilaði methagnaði á fyrsta ársfjórðungi

BankNordik, áður Færeyjabanki, skilaði methagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaður, fyrir skatta, reyndist 411 milljónir danskra kr. eða rúmlega 9 milljörðum kr. Til samanburðar nam hagnaður bankans 52 milljónum danskra kr. á sama tímabili í fyrra.

Lada bílar aftur framleiddir í Bretlandi

Ákveðið hefur verið að hefja aftur framleiðslu á Lada bílum í Bretlandi. Það eru frönsku bílasmiðirnir Renault sem standa að baki þessum áformum.

Loka þurfti spjallrásum Facebook vegna galla

Stjórnendur Facebook brugðust skjótt við þegar galli kom í ljós á þessari vinsælustu vefsíðu heimsins. Loka þurfti spjallrásum á síðunni meðan vandamálið var leyst.

Efnahagsbatinn lætur bíða lengur eftir sér

Verulegar líkur eru á að Seðlabankinn dragi á öll lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Norðurlöndunum og Póllandi til að sýna fram á styrk bankans. Þetta segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Hann bendir á að staðan sé betri en reiknað hafi verið með og áhyggjur af getu ríkissjóðs til að standa í skilum við lán sem falla á gjalddaga á næsta og þarnæsta ári úr sögunni.

Banki í gjaldeyrisbraski

Grunur leikur á að banki sem er starfandi hér á landi hafi misnotað undanþágu á gjaldeyrishöftunum til að hagnast á því. Málið er nú til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra.

Sér fyrir endann á samdrættinum

Það sér fyrir endann á samdrættinum hér á landi segir aðalhagfræðingur Seðlabankans, það sé þó lengra í að kreppunni ljúki. Samdráttarskeiðið sé það dýpsta og með því lengsta sem vestrænt ríki hafi upplifað.

FA fagnar dóminum um ólögmæti iðnaðarmálagjalds

Félag atvinnurekenda (FA) fagnar dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í sl. viku þess efnis að innheimta svokallaðs iðnaðarmálagjalds stæðist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Dómurinn dæmdi íslenska ríkið til að greiða 26 þúsund evrur í málskostnað til Varðar Ólafssonar sem höfðaði málið.

Töluverður samdráttur í sölu áfengis

Það sem af er árinu hefur sala á áfengi dregist saman í lítrum talið um 7,8% miðað við sama tímabil árið 2009. Ekki er raunhæft að bera saman sölu í apríl á milli ára þar sem páskarnir hafa mikil áhrif en í ár voru páskarnir í mars en voru í apríl í fyrra.

SÍ: Verðbólga þrálát og atvinnuleysi nær óbreytt

Seðlabankinn (SÍ) gerir nú ráð fyrir nokkuð meiri verðbólgu í ár en áður var spáð og telur nú að verðbólgan verði að meðaltali 6,1% í ár í stað 5,6% áður. Þá gerir ný þjóðhagsspá bankans ráð fyrir að atvinnuleysi verði nær óbreytt út árið.

Evran gæti kostað 300 krónur án gjaldeyrishaftanna

Lauslegt mat með þjóðhagslíkani Seðlabankans gefur til kynna að án gjaldeyrishaftanna hefði gengi krónunnar hæglega getað lækkað í 260-300 kr. gagnvart evru og jafnvel enn meira við ákveðin skilyrði. Þetta er svipað gengi og á aflandsmarkaðnum þegar það var lægst.

Efnahagsbatanum seinkar að mati Seðlabankans

Seðlabankinn gerir ráð fyrir að efnahagsbata landsins seinki um einn ársfjórðung, til þriðja ársfjórðungs þessa árs. Samkvæmt því mun efnahagssamdrátturinn hér á landi vara í tíu ársfjórðunga eða tvö og hálft ár sem er lengra en í öðrum iðnríkjum.

Ólíklegra en áður að Icesave breyti lánshæfismati

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að það sé ólíklegra en áður að tafir á lausn á Icesavedeilunni muni hafa áhrif á lánshæfismati landsins. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóra á fundi í Seðlabankanum sem nú stendur yfir. Á fundinum var gherð grein fyrir vaxtalækkun bankans í morgun.

Nox Medical hlaut Vaxtarsprotann í ár

Fyrirtækið Nox Medical ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2010 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Fyrirtækið meira en tífaldaði veltu sína milli áranna 2008 og 2009 úr 16,5 milljónum kr. í um 175 milljónir kr. Fyrirtækin Hafmynd, Menn og Mýs og Valka fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt á síðasta ári.

Starfsmaður Nordic eMarketing kosinn í stjórn SEMPO

Kristján Már Hauksson starfsmaður og einn eiganda Nordic eMarketing hefur verið kosinn í stjórn SEMPO sem eru stærstu samtök fagaðila í leitarvélamarkaðssetningu. Tæplega 40 manns voru í framboði og voru 13 sæti í boði. Kosið er til tveggja ára í senn og er verður Kristján í stjórn fram í Apríl 2012.

Álftanes rekið með 322 milljóna tapi í fyrra

Rekstrarniðurstaða fyrir A hluta sveitarfélagsins Álftanes varð neikvæð um 322 milljónir kr. á síðasta ári en það er 64 milljóna kr. verri útkoma er endurskoðuð fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Gistinóttum fjölgaði um 11% í mars

Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 93.700 en voru 84.500 í sama mánuði árið 2009. Þetta er 11% fjölgun milli ára.

Misvísandi mælingar á skuldatryggingaálagi Íslands

Þær tvær gagnaveitur sem mæla skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands gefa misvísandi upplýsingar um mat markaðarins á stöðu landsins. Önnur segir álagið fara lækkandi en hin segir það fara hækkandi.

Danir hagnast á grísku kreppunni

Það eru ekki margar þjóðir í Evrópusem beinlínis hagnast á grísku kreppunni. Það gera þó frændur vorir Danir.

Hlutabréf féllu vegna stöðu Grikklands

Helstu vísitölur á hlutabréfamörkuðum féllu í gær. Ástæðan er sú að ekki hefur dregið úr áhyggjum manna af skuldastöðu ýmissa ríkja í Evrópu. Eftir lokun markaða í gær hafði evran ekki verið lægri í 13 mánuði gagnvart bandaríkjadal.

Vill rukka fyrir ríkisábyrgð

Ríkið á að krefjast gjalds vegna ríkisábyrgðar á innstæður í bönkunum. Þetta er mat Lilju Mósesdóttur, formanns viðskiptanefndar Alþingis og þingmanns Vinstri grænna. Hún segir að líta megi á það sem borgun fyrir trygginguna.

Fleiri tækifæri eftir kreppuna

John Conroy, forstjóri írska verðbréfafyrirtækisins Merrion Capital, hefur sagt starfi sínu lausu og tekið við stýrinu á fyrirtækjasviði fyrirtækisins. Í myndinni er að hann kaupi helmingshlut í þessum hluta Merrion Capital. Írska dagblaðið Independent hafði eftir Conroy í síðustu viku að fjármögnunarþörf írskra fyrir­tækja sé nú mikil og vilji hann einbeita sér að þeim markaði.

Endurskoðendur getaorðið blindir á bækurnar

Endurskoðendur hafa sloppið furðu vel þrátt fyrir að hafa brugðist við gerð ársreikninga banka og fjármálafyrirtækja fyrir hrun. Þetta er mat Bjarna Frímanns Karlssonar, lektors í reikningsskilum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Hyundai ryður sér til rúms með látum

Þegar stjórnarformaður bílaframleiðandans Hyundai, Mong-Koo Chung, tók við af föður sínum árið 1999 varð áherslubreyting hjá fyrirtækinu. Í stað þess að áhersla væri lögð á að framleiða sem flesta bíla, var markið sett á að auka gæði framleiðslunnar.

Gnúpur í rannsókn hjá skilanefnd Glitnis

Gnúpur er til rannsóknar hjá skilanefnd Glitnis og er ekki útilokað að einhver þeirra mála sem upp kunna að koma endi á borði sérstaks saksóknara, samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins. Gnúpur var fyrsta fjárfestingarfélagið sem féll í aðdraganda bankahrunsins en fór ekki í þrot. Óskað verður eftir gjaldþrotaskiptum á næstu vikum.

Opin kerfi í aldarfjórðung

Tölvugeirinn hér lifir góðu lífi þrátt fyrir áföllin sem dunið hafa á efnahagslífinu, að sögn Gunnars Guðjónssonar, forstjóra Opinna kerfa. Hann segir ágæt sóknarfæri fram undan enda stjórnendur fyrirtækja góðu vanir og geri þeir miklar kröfur.

Mikilvægt að temja sér betri vinnubrögð

„Íslendingar þurfa að temja sér agaðri vinnubrögð. Góðar ákvarðanir þurfa að vera byggðar á rökum og gögnum en ekki tilfinningum,“ segir Guðrún Johnsen, lektor í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Mikilvægt að setja dyggðir á stall

„Bankahrunið er dæmi um það hvað þeir lestir sem fylgt hafa mannkyninu alla tíð geta leitt okkur í ef við leyfum þeim að ná tökum á okkur,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um þann lærdóm sem viðskiptalífið getur dregið af rannsóknarskýrslunni. Hann segir græði, óhóf og hroka hafa verið ofarlega á blaði í viðskiptalífinu fyrir hrun.

Pláss fyrir fjórða matið

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) á að skoða stofnun nýs matsfyrirtækis sem mun meta lánshæfi ríkja og fyrirtækja innan ESB. Þetta segir Michel Barnier, sem fer með málefni innri markaða sambandsins. Hann fundaði með efnahags- og viðskiptanefnd ESB í gær og sagði Fitch, Moody‘s og Standard & Poor‘s hafa gert Grikkjum erfitt fyrir, að sögn Financial Times.

Bankavextir freista erlendra fjárfesta

Rúmur helmingur af allri erlendri nýfjárfestingu sem komið hefur inn í landið frá því slakað var á gjaldeyrishöftum í lok október í fyrra hefur farið inn á innlánsreikninga í bönkunum. Erlendir aðilar hafa fjárfest hér á landi fyrir 15,9 milljarða króna frá 1. nóvember í fyrra til 8. apríl á þessu ári, samkvæmt gögnum frá Seðlabankanum.

Fyrirtækið Snjöll nýting innlends hráefnis í áliðnaði

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur sýnt fram á að það er bæði tæknilega mögulegt og fjárhagslega hagkvæmt að nýta kísilryk sem fellur til við framleiðslu járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga til að framleiða háhitaeinangrun. Notagildið er mikið og er einangrunin til dæmis nýtt í kerfóðringar og hafa íslensk álver sýnt vinnunni áhuga.

Sjá næstu 50 fréttir