Evran gæti kostað 300 krónur án gjaldeyrishaftanna 5. maí 2010 11:38 Óttinn við hrun krónunnar þegar höftunum yrði aflétt kann einnig að halda aftur af erlendri fjárfestingu.
Lauslegt mat með þjóðhagslíkani Seðlabankans gefur til kynna að án gjaldeyrishaftanna hefði gengi krónunnar hæglega getað lækkað í 260-300 kr. gagnvart evru og jafnvel enn meira við ákveðin skilyrði. Þetta er svipað gengi og á aflandsmarkaðnum þegar það var lægst.Þetta kemur fram í Peningamálum Seðlabankans sem birt voru í morgun en þar er sérkafli um gjaldeyrishöftin. Þar segir að þótt ótvírætt virðist að gengi krónunnar hefði lækkað enn frekar hefðu höftin ekki verið sett á, er afar erfitt að meta hversu mikið gengi krónunnar hefði getað lækkað.Gjaldeyrishöftin hafa átt mikinn þátt í því að koma á gengisstöðugleika, sérstaklega eftir að þau fóru að virka sem skyldi þegar líða tók á síðasta ár. Þau eru hins vegar umdeild, enda ekki gallalaus.Meðal ókosta þeirra má t.d. nefna hefðbundinn efnahagslegan kostnað sem fylgir viðskiptahindrunum af hvaða tegund sem er og þá hagrænu sóun sem skapast þegar einstaklingar og fyrirtæki eyða kröftum sínum í að leita leiða fram hjá þeim og stjórnvöld kröftum sínum í að koma í veg fyrir brot á reglunum.Allt eru þetta kraftar sem væru betur nýttir á öðrum sviðum, þjóðarbúinu til meira gagns. Innlendum aðilum er einnig gert afar erfitt að verjast gjaldmiðlaáhættu með notkun skiptasamninga. Hagnaðarvonin af því að komast hjá reglunum er einnig til þess fallin að grafa undan almennu viðskiptasiðferði og löghlýðni sem að öðru óbreyttu getur skaðað langtímahagvaxtargetu þjóðarbúsins.Samkeppnisstaða þeirra sem tilbúnir eru að brjóta reglurnar skekkist jafnframt gagnvart þeim sem löghlýðnari eru. Að lokum er líklegt að tilvist gjaldeyrishaftanna dragi að einhverju leyti úr áhuga alþjóðlegra fjárfesta á því að koma með fé inn í landið af ótta við að síðar verði nýjar reglur settar sem komi í veg fyrir að þeir geti tekið fé sitt út úr landinu á ný.Óttinn við hrun krónunnar þegar höftunum yrði aflétt kann einnig að halda aftur af erlendri fjárfestingu.Þessi kostnaður er ekki eins sýnilegur og ábatinn af því skjóli sem höftin veita krónunni, en hann er alveg jafn raunverulegur. Hins vegar er líklegt að kostnaðurinn hafi hingað til verið minni en ella þar sem aðrar ástæður hafa haldið aftur af innstreymi erlends fjármagns inn í landið.Kostnaðurinn mun hins vegar ágerast eftir því sem tíminn líður, auk þess sem framfylgd haftanna verður æ erfiðari eftir því sem einstaklingar og fyrirtæki finna leiðir fram hjá þeim í leit að skjótfengnum ábata. Því er mikilvægt að gjaldeyrishöftin verði afnumin svo fljótt sem auðið er. Afnám þeirra má þó ekki verða til þess að grafa undan gengi krónunnar og tefla þar með endurreisn þjóðarbúskaparins í tvísýnu, að því er segir í Peningamálum.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira