Viðskipti innlent

Gistinóttum fjölgaði um 11% í mars

Aukning gistinátta á hótelum í mars er eingöngu hægt að rekja til erlendra gesta, en gistinóttum þeirra fjölgaði um rúm 18% miðað við mars 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 5%.
Aukning gistinátta á hótelum í mars er eingöngu hægt að rekja til erlendra gesta, en gistinóttum þeirra fjölgaði um rúm 18% miðað við mars 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 5%.

Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 93.700 en voru 84.500 í sama mánuði árið 2009. Þetta er 11% fjölgun milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þarsegir að fjölgun gistinátta nær til allra landsvæða en þeim fjölgaði hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 61.400 í 69.300 eða um 13% miðað við mars 2009.

Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 1.700 í 1.900 eða um 12%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um 10%, voru 1.600 samanborið við 1.800 í mars 2009. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 7% milli ára og fóru úr 11.200 í 11.900. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 2%, voru 5.100 samanborið við 5.300 í mars 2009. Gistinætur á Suðurnesjum eru svipaðar milli ára um 3.500.

Aukning gistinátta á hótelum í mars er eingöngu hægt að rekja til erlendra gesta, en gistinóttum þeirra fjölgaði um rúm 18% miðað við mars 2009 á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 5%.

Gistinætur fyrstu þrjá mánuði ársins voru 225.500 en voru 212.000 á sama tímabili 2009. Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 14%, á Suðurlandi um 9% og um 7% á Höfuðborgarsvæðinu samanborið við fyrsta ársfjórðung 2009. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á Suðurnesjum um 8%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×