Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kostnaður við að bjarga bönkum gerir Íra brjálaða í skapinu Hjúkrunarkonur, slökkviliðsmenn og þúsundir opinberra starfsmanna á Írlandi hóta nú verkfallsaðgerðum ef laun þeirra verða lækkuð til að mæta kostnaði hins opinbera við að bjarga bönkum landsins. Almenningur á Írlandi telur almennt að kostnaðurinn muni verulega íþyngja komandi kynslóð landsins. 13.11.2009 10:42
Fyrrum bankastjórar að kaupa gjaldþrota banka Nokkrir fyrrverandi bankastjórar hyggjast bjóða í gjaldþrota banka sem brátt fara á uppboð hjá innistæðustryggingarsjóði Bandaríkjanna (FIDC). Bankastjórarnir eru studdir af bönkum á borð við Goldman Sachs og Deutsche Bank. 13.11.2009 09:42
Afli íslenskra skipa minnkaði um 3,2% í október Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 3,2% minni en í október 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 5,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. 13.11.2009 09:14
Atlantic Airways tapar 110 milljónum á 3. ársfjórðung Færeyska flugfélagið Atlantic Airways tapaði 4,4 milljónum danskra kr. eða 110 milljónum kr., fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi. Hinsvegar er hagnaður upp á 7,8 milljónir danskra kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. 13.11.2009 09:09
Eignir lífeyrissjóða hækkuðu um 26 milljarða í september Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.734 milljarðar kr. í lok september sl. og hækkaði um 26,1 milljarðar kr. í mánuðinum. Sé miðað við september 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 49,2 milljarðar kr. eða 2,8 %. 13.11.2009 08:20
Hagsjá: Spáir því að ársverðbólgan lækki í 8,4% Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga milli október og nóvember mælist 0,5%. Gangi spáin eftir, lækkar 12 mánaða verðbólga úr 9,7% niður í 8,4% en í nóvember í fyrra hækkaði VNV um 1,7% milli mánaða. 13.11.2009 08:05
Össur með viðskiptavakt hjá Nýja Kaupþingi og Saga Capital Össur hf. hefur gert nýjan samning við Nýja Kaupþing Banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins. Í tilkynningu segir að um sé að ræða endurnýjun á fyrri samningi frá febrúar 2005. Þessi samningur er einungis vegna skráningar félagsins á Íslandi. Össur hefur einnig samið við Saga Capital um viðskiptavakt. 13.11.2009 07:57
Bakkavör hækkaði um 36% í dag Bakkavör Group hækkaði um 36,36% í dag, Icelandair hækkaði um 10,94% og Marel hækkaði um 1,66%. 12.11.2009 17:52
6,56 milljarða velta á skuldabréfamarkaði Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 6,56 milljörðum króna. Þar af námu viðskipti með óverðtryggð 6,15 milljörðum króna og íbúðabréf 0,41 milljörðum. 12.11.2009 17:43
Vilhjálmur: Við munum aldrei una skattahækkunum „Samtök atvinnulífsins munu aldrei una skattahækkunum sem eru til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna og geta heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilja leiðir,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í pistli sem birtist á heimasíðu samtakanna. 12.11.2009 16:58
Grímur Sæmundsen varaformaður SA Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins (SA) nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður samtakanna. 12.11.2009 15:29
Telja að skattahækkanir muni fækka ferðamönnum Í fréttum að undanförnu hefur verið greint frá alls kyns hugmyndum og tillögum um miklar skattahækkanir á m.a. flestallar greinar ferðaþjónustu og ef hugmyndir þessar ná fram þá stefnir augljóslega í fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands. 12.11.2009 15:20
Áform sjávarútvegsráðherra eru nánast óframkvæmanleg „Hafnarvog Vestmannaeyjahafnar hefur hvorki tæki né þau tól sem til þarf við að brúttóvigta öll ílát sem berast að landi í viku hverri ... Við núverandi aðstæður telja hafnaryfirvöld það nánast óframkvæmanlegt miðað við það magn af afla sem berst að landi á þeim skamma tíma sem um ræðir," segir í bréfi sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent til sjávarútvegsráðherra. 12.11.2009 14:06
Daníel og Stefnir neita sök í Kaupþingsmáli Daníel Þórðarson og Stefnir Ingi Agnarsson, sem unnu hjá Kaupþingi, neituðu báðir sök við aðalmeðferð máls Ríkislögreglustjóra gegn þeim. 12.11.2009 13:37
Straumur seldi rekstur Magasin en heldur fasteignunum Solstra Holding seldi Debenhams aðeins reksturinn í Magasin du Nord en heldur áfram fasteignum verslunarinnar. Þar að auki fylgdi með í kaupum Debenhams 25 ára leigusamningur á fasteignunum sem hýsa Magasin du Nord. 12.11.2009 13:24
Marel að selja Stork Food and Dairy Systems Marel hefur undirritað viljayfirlýsingu við hollenska fjárfestingasjóðinn Nimbus varðandi sölu á Stork Food and Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Stefnt er að því að ljúka viðskiptunum fyrir árslok. 12.11.2009 12:13
Mikill áhugi í útboði ríkisvíxla í morgun Alls bárust 68 gild tilboð í flokkinn RIKV 10 0315 að fjárhæð 64.7 milljarða kr. að nafnverði í útboði í morgun. Tilboðum var tekið fyrir 20 milljarða kr. að nafnverði á verðinu 97,425 (flatir vextir 8,00%). 12.11.2009 11:55
Leigumarkaðurinn heldur áfram að vaxa Alls voru þinglýstir 861 leigusamningar nú í októbermánuði sem eru 20% fleiri samningar en gerðir voru á sama mánuði í fyrra. Þessi aukning er í takt við þá þróun sem hefur verið á árinu og lýsir hún aukinni sókn í leiguhúsnæði. 12.11.2009 11:24
Íslenskir fjárfestar í samstarf við rafbílaframleiðendann REVA Íslenska fjárfestingarfélagið Northern Lights Energy og rafbílaframleiðandinn REVA undirrita samkomulag um sölu og markaðssetningu REVA á Íslandi. Fyrstu eitthundrað rafbílarnir verða afhendir á næsta ári og hagkvæmisathugun er í gangi um uppsetningu samsetningaverksmiðju rafbíla hér á landi. 12.11.2009 11:15
Moody´s segir óvissu um getu stjórnvalda til að styðja OR Lánsmatsfyrirtækið Moody´s segir í áliti sínu um nýtt lánshæfismat sitt á Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að lækkunin á matinu niður í rusl-flokk sé meðal annars vegna óvissu um hvort stjórnvöld geti staðið við bakið á fyrirtækinu. 12.11.2009 10:52
Hollenska ING bankasamstæðan velur íslenskt hugvit Hollenska ING banka- og tryggingasamstæðan hefur valið íslenska hugbúnaðarfélagið Applicon til þess að vinna að innleiðingu á SAP bankahugbúnaði fyrir útlán bankans. ING er í hópi 25 stærstu banka Evrópu þegar miðað er við markaðsvirði. 12.11.2009 10:23
Forstjóri Magasin mjög ánægður með kaup Debenhams Jón Björnsson forstjóri Magasin du Nord er mjög ánægður með kaup bresku verslunarkeðjunnar Debenhams á dönsku stórversluninni. „Það er óskastaða fyrir Magasin að vera nú komið í eigu verslunarmanna," segir Jón í samtali við börsen.dk. 12.11.2009 10:02
Mat Moody´s: Takmarkar aðgengi Landsvirkjunnar að lánsfé Landsvirkjun segir að ný lánshæfiseinkunn fyrirtækisins hjá Moody´s muni takmarka aðgengi fyrirtækisins að erlendu lánsfé. Þar að auki muni lánskjörin versna. 12.11.2009 09:32
Actacvis býður rúma 372 milljarða í Ratiopharm Samkvæmt frétt á Reuters er Actavis í hópi tíu fyrirtækja/fjárfesta sem gert hafa tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Tilboðin liggja á bilinu 2 til 2,5 milljarðar evra eða 372 til 465 milljarða kr. 12.11.2009 09:01
Debenhams kaupir Magasin du Nord á 2,5 milljarða Breska verslunarkeðjan Debenhams hefur fest kaup á dönsku stórversluninni Magasin du Nord. Kaupverðið er 12,3 milljónir punda eða um 2,5 milljarðar kr. 12.11.2009 08:40
Orkuveitan í ruslflokk Lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið lækkuð hjá matsfyrirtækinu Moody's og er nú í svokölluðum ruslflokki. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 12.11.2009 08:33
Nýtt mat Moody´s hreyfði lítið við skuldatryggingarálaginu Lækkun Moody´s á lánshæfismati ríkissjóðs í gærdag hreyfði lítið við skuldatryggingarálaginu á íslenska ríkinu samkvæmt bæði Credit Market Analysis (CMA) og Markit Itraxx vísitölunni. 12.11.2009 08:22
Seðlabankastjóri: Bankakerfinu ekki hleypt í áhættusama starfsemi Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að núverandi bankakerfi landsins verði ekki leyft að fara í mjög áhættusama starfsemi út fyrir landamærin eins og gömlu bankarnir gerðu. „Við höfum enga burði til að verja slíkt og við eigum ekki að verja okkar fjármunum í það," segir Már. 12.11.2009 08:12
Innistæðubréf Seðlabankans tvöfölduðust í útboði Seðlabankinn tók tilboðum í innstæðubréf fyrir 30 milljarða kr. í gær sem er það hámark sem peningastefnunefnd ákvað á síðasta vaxtaákvörðunarfundi. Innstæðubréfaflokkurinn nærri tvöfaldaðist í útboðinu og er nú orðinn 64,8 milljarða kr. þar sem endurkaupadagur var á bréfum fyrir 10,6 milljarða kr. sem voru seld 14. október s.l. 12.11.2009 07:55
Ræða tímabundinn skatt á lífeyrissjóði Tímabundinn skattur á fjármagnstekjur lífeyrissjóða hefur verið ræddur í efnahags- og skattanefnd Alþingis. Lífeyrissjóðirnir hafa ekki verið skattlagðir með þeim hætti áður. 12.11.2009 06:00
Segja allar upplýsingar um Sjóð 9 hafa verið aðgengilegar Stjórnendur Íslandssjóða, sem áður kölluðu sig Glitnissjóði, fullyrða að fjárfestingar og eignasafn Sjóðs 9 hafi verið í samræmi við fjárfestingarheimildir eins og lög og reglur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða geri ráð fyrir. Þetta kemur fram í orðsendingu sem stjórnendur sjóðsins hafa sent Vísi vegna fréttar af fyrirhugaðri málshöfðun gegn Íslandssjóðum vegna taps sem sjóðsfélagar í Sjóði 9 urðu fyrir þegar sjóðunum var slitið. 11.11.2009 22:14
Landsbankinn tapaði 19 milljörðum frá þjóðnýtingu til áramóta Nýi Landsbankinn tapaði nítján milljörðum króna frá því bankinn var tekinn yfir af ríkinu eftir hrun á síðasta ári til áramóta. Á þessum rúmu tveimur mánuðum hagnaðist Nýja Kaupþing hins vegar um fimm milljarða. Þetta kemur fram í nýrri vinnuskýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu efnahagsmála á Íslandi sem birt var í síðustu viku. 11.11.2009 18:30
Century Aluminum Company hækkaði um 4,47% Hlutabréf í Century Aluminum Company, móðurfélagi Norðuráls, hækkuðu um 4,47% í Kauphöllinni í dag og hlutabréf í Marel hækkuðu um 0,46%. Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum lækkaði um 9,78% og Føroya Banki um 0,73%. Gengi krónunnar lækkaði um 0,05% 11.11.2009 17:53
Heildarvelta skuldabréfa 15,36 milljarðar Heildarvelta skuldabréfa í dag var 15,36 milljarðar. Þar af voru 5,08 milljarðar í íbúðabréfum en 10,28 milljarðar í óverðtryggðum ríkisbréfum. 11.11.2009 17:40
Stefna Glitnissjóðum vegna Sjóðs 9 Hópur hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóðnum Sjóður 9 sem starfræktur var á vegum Glitnis hyggst stefna sjóðnum. „Útgreiðsluhlutfallið úr Sjóði 9 var 85,12% miðað við síðasta skráða gengi sjóðsins þann 6. október í fyrra,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergó lögmönnum, sem undirbýr málsóknina. 11.11.2009 17:13
Kaupþing ætlar að höfða mál vegna áfrýjunarnefndar neytendamála Nýi Kaupþing banki hefur sent Neytendasamtökunum svar við fyrirspurn samtakanna um það hvernig bankinn hyggst bregðast við úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála varðandi skilmála bankans um kjörvexti erlendra lána. 11.11.2009 16:25
Ný jarðvarmaveita á vegum Enex Kína og Sinopec Shaanxi Green Energy, félag í eigu Enex Kína og kínverska fyrirtækisins Sinopec Star hefur skrifað undir samkomulag við yfirvöld Xiong sýslu í Kína um uppbyggingu jarðvarmaveitu. 11.11.2009 15:28
Moody´s lækkaði líka matið á Íbúðalánasjóði Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s lækkaði í dag lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í Baa3 úr Baa1. Lækkunin kemur í kjölfar lækkunar á lánshæfismati íslenska ríkisins í Baa3 úr Baa1. 11.11.2009 15:23
Landsbankinn semur við tæknilega gjaldþrota Gift Skilanefnd Landsbankans hefur höfðað skuldamál á hendur Gift fjárfestingafélaginu sem var í eigu Samvinnutrygginga. Fyrirtaka fór fram í málinu í morgun en þar var málinu frestað fram í desember. Þar kom einnig fram að Landsbankinn og Gift eiga í samningaviðræðum varðandi skuldina. 11.11.2009 15:21
Kolaport fyrir milljarðamæringa á netinu Milljarðamæringar hafa nú fengið sinn eigin útimarkað eða kolaport á netinu. Síðan heitir billionaireXchange.com og þar getur maður m.a. skipta á villunni sinni í Beverly Hills fyrir víngarð í Frakklandi. 11.11.2009 15:05
Intermarket semur við Rothschild vegna kaupa á West Ham Fjármálafyrirtækið Intermarket, sem staðsett er í London, segir að það hafi nægilegt fjármagn til þess að kaupa enska úrvalsdeildarliðið West Ham. David Byrne forstjóri Intermarket segir í samtali við blaðið Telegraph að fyrirtækið hafi gert samning við Rothschild bankann sem sýni getu þeirra til að kaupa liðið. 11.11.2009 13:42
Nordea: Flensan gæti kostað Dani 225 milljarða Helge J. Petersen aðalhagfræðingur Nordea bankans hefur reiknað það út að flensufaraldurinn sem herjar á Danmörku gæti kostað þjóðarbúið 9 milljarða danskra kr. eða um 225 milljarða kr. 11.11.2009 13:15
AGS: Hættuleg niðursveifla íbúðaverðs var stöðvuð Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir í nýjustu skýrslu sinni um íslensk efnahagsmál að komið hafi verið í veg fyrir flóð framboðs íbúðarhúsnæðis hér á landi með frystingu í fjárnámi í íbúðarhúnæði, skuldbreytingu íbúðalána og aukinni notkun markaskiptasamninga. Segir sjóðurinn að með þessu hafi verið komið í veg fyrir hættulega niðursveiflu íbúðaverðs. 11.11.2009 12:16
Neytendasamtökin fordæma Nýja Kaupþing opinberlega „Þar sem Neytendasamtökin eru nú orðin úrkula vonar um að þeim berist svar sjá þau sig knúin til að fordæma verklag bankans opinberlega." 11.11.2009 12:09
Skráð atvinnuleysi var 7,6% í október Skráð atvinnuleysi í október 2009 var 7,6% eða að meðaltali 12.682 manns og eykst atvinnuleysi um 4,4% að meðaltali frá september eða um 537 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,9%, eða 3.106 manns. 11.11.2009 12:03