Segir Kaupþing hafa brotið gegn lögum um neytendalán 13. mars 2009 14:45
Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að Kaupþing banki hf. hafi brotið gegn ákvæðum laga um neytendalán, vegna skilmála bankans á lánum í erlendri mynt með því að tilgreina ekki í skilmálum myntkörfulánssamnings með hvaða hætti vextirnir eru breytilegir og við hvaða aðstæður þeir breytist. Í skilmálum bankans segir m.a. í 1. gr.: „Í vexti af höfuðstól skuldar þessarar eins og hann er á hverjum tíma, ber skuldara að greiða breytilega vexti eins og þeir eru ákveðnir að Kaupþingi Búnaðarbanka hf. á hverjum tíma og tekur það jafnt til kjörvaxta hverrar myntar og vaxtaálags. Kaupþingi Búnaðarbanka hf. er heimilt að breyta vöxtum á 3ja mánaða fresti til samræmis við þá vexti sem gilda gagnvart nýjum sambærilegum og/eða hliðstæðum lánum." Í tilkynningu um málið segir að samkvæmt mati Neytendastofu uppfyllir framangreindur samningsskilmáli ekki ákvæði 9. gr. laga um neytendalán þar sem ekki komi fram með hvaða hætti vextirnir séu breytilegir og við hvaða aðstæður þeir breytist. Kaupþing hefur því ekki gefið lántaka nægar upplýsingar um vexti í samræmi við fyrrgreind lög. Neytendastofa hefur því bannað Kaupþingi að notast við framangreindan samningsskilmála. Hafi lántaki ekki fengið þær upplýsingar sem kveðið er á um og hann hafi því mátt ætla að kjör hans væru betri en þau síðar reyndust vera getur það skapað lánveitanda skaðabótaábyrgð. Neytendastofa hefur ekki heimild til að taka ákvarðanir um skaðabætur og verða því lántakendur að rekja slík mál á grundvelli skaðabótalaga fyrir dómstólum.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira