Fréttaskýring: Stýrivaxtalækkun og afnám gjaldeyrishafta Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 13. mars 2009 14:18 Mark Flanagan, formaður sendinefndar AGS á Íslandi.
Tveir mjög jákvæðir punktar komu fram í máli fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) nú fyrir hádegið á blaðamannafundi í Seðlabankanum. Annarsvegar var um að ræða að svigrúm hefur myndast fyrir stýrivaxtalækkun og hinsvegar að fyrstu skrefin í afnámi gjaldeyrishaftanna eru í sjónmáli. Eins og Mark Flanagan benti á í máli sínu hefur verðbólgan á Íslandi minnkað nokkuð meir en menn gerðu ráð fyrir þegar fyrstu áætlanir AGS og stjórnvalda voru settar saman. Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að verðbólgan í mælist rétt rúmlega 16% í mars og sagði Ingvi Örn Kristinsson forstöðumaður deildarinnar í samtali við Fréttastofu í vikunni að stýrivaxtalækkun upp á 2 til 3 prósentustig væri ekki fjarri lagi. Það þykir ekki góð hagfræði að lækka stýrivexti niður fyrir verðbólgustigið, þegar verðbólgan er mikil. Því má fastlega gera ráð fyrir að stýrivaxtalækkun Seðlabankans í næstu viku verði 2 prósentustig. Hið jákvæða er að hagfræðideildin gerir ráð fyrir að verðbólgan í apríl muni mælast í kringum 12%, þegar aprílmælingin frá í fyrra dettur út, og því má gera ráð fyrir að þá verði stýrivextir lækkaðir um 3 til 4 prósentustig í viðbót. Miðað við þau orð Flanagan á fyrrgreindum fundi að viðsnúningur í íslensku efnahagslífi hefjist ekki fyrr en undir lok árs má gera ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í þjóðfélaginu með tilheyrandi minnkun verðbólgunnar. Því er ekki fjarri að áætla að stýrivextirnir nái eins stafs tölu strax í sumar, eða í síðasta lagi í haust. Hvað varðar afnám gjaldeyrishaftanna í áföngum sem eiga að hefjast á næstunni væri bjartsýni að telja að slíkt afnám verði á næstu þremur mánuðum eða jafnvel lengur. Enda er ekkert að finna, hvorki í máli Flanagan eða fréttatilkynningu frá AGS í morgun um það mál. Það er annað en almennt orðalag um að það standi fyrir dyrum að hefja afnámið í áföngum. Og raunar sagði Flanagan á fyrrgreindum fundi að mikil áhætta væri samfara því að afnema höftin strax. Stöðugleiki í gengi krónunnar er önnur höfuðforsenda þess að hægt sé að hefja afnám gjaldeyrishaftanna. Hin höfuðforsendan er að samningar náist við þá erlenda fjárfesta sem brunnið hafa inni með fé sitt á Íslandi. Er þá einkum átt við eigendur krónubréfa og þá sem eiga mikið fé bundið í ríkisbréfum. Gengi krónunnar tók nokkra dýfu í gærdag þegar það féll um 2,4% og hefur sú veiking haldið að hluta til áfram í dag. Sérfræðingar telja að skýringuna sé m.a. að finna í að fimm milljarða kr. vaxtagreiðslur af stórum flokki ríkisbréfa eru framundan í næstu viku. Greiðslurnar þarf Seðlabankann að gera upp í gjaldeyri til erlendra fjárfesta sem eiga nær allan flokkinn Fimm milljarðar eru hreinir smáaurar í sögulegu ljósi gjaldeyrismarkaðarins hér á síðustu árum. Að krónan geti sveiflast svona mikið af svona litlu tilefni bendir ekki til mikils stöðugleika á henni. Hið jákvæða er að samningar eru hafnir við hina erlendu fjárfesta og hefur viðskiptaráðherra sagt að stefnt sé að því að þeim ljúki í apríl. Það er vitað að gjaldeyrishöft eru eitur í beinum AGS enda er frjálst flæði fjármagns milli landa einn af hornsteinunum í stefnu sjóðsins. Því má gera ráð fyrir að sjóðurinn muni þrýsta mjög á við næstu endurskoðun á samstarfi hans og íslenskra stjórnvalda eftir þrjá mánuði að ítarleg áætlun liggi fyrir um afnám gjaldeyrishaftanna.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira