Fleiri fréttir

Sérfræðiaðstoð AGS hefur komið að góðu gagni

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur undanfarnar rúmar tvær vikur unnið með íslenskum stjórnvöldum að fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Sendinefndin, undir stjórn Mark Flanagans, hefur einnig átt fundi með fjölda hagsmunaðila til þess að kynna sér þróun íslensks efnahagslífs og áhrif efnahagshrunsins og hélt nefndin blaðamannafund í Seðlabankanum í dag.

Ætla að auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum

Neytendastofa og norrænar systurstofnanir hennar, sem fara með eftirlit og framkvæmd laga á sviði neytendamála á Norðurlöndunum, hafa markað sér þá sameiginlegu stefnu fyrir næsta ár að auka eftirlit með bönkum og lánastofnunum með það að markmiði að réttindi neytenda séu að fullu virt.

Danski skatturinn notar Al Capone aðferðir gegn glæpahópum

Danski skatturinn vinnur nú allan sólarhringinn með lögreglunni í Danmörku við að koma Vítisenglum og öðrum glæpahópum bakvið lás og slá. Samkvæmt Jyllands Posten notar skatturinn Al Capone aðferðir í baráttu sinni, það er reynir að ná til glæpamannanna í gegnum skattsvik þeirra og efnahagsbrot.

Heimsmarkaðsverð á olíu í mikilli uppsveiflu

Heimsmarkaðsverð á olíu var í mikilli uppsveiflu á mörkuðum í gær. Þannig hækkaði bandaríska léttolían um 11% yfir daginn og endaði í tæpum 47 dollurum á tunnuna í gærkvöldi.

Helmingur gjaldeyrisforðans á gjalddaga innan 30 daga

Helmingur af gjaldeyrisforða Seðlabankans, eða um 180 milljarðar kr., er á gjalddaga innan næstu 30 daga. Um er að ræða skammtímalán sem bankinn rúllar á undan sér en þau hafa farið vaxandi sem hlutfall af gjaldeyrisforðanum frá því á miðju síðasta ári.

Heildarlaunakostnaður eykst

Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 8,1prósent frá fyrri ársfjórðungi í samgöngum og flutningum, 6,1prósent í iðnaði, 5,7 prósent í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu og 5,3 prósent í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Á heimasíðu Hagstofunnar segir að þessi aukning sé tilkomin meðal annars vegna óreglulegra greiðslna sem féllu til á tímabilinu og vegna breytinga á samsetningu vinnuafls þar sem starfsfólki í neðri þrepum launastigans hefur fækkað hlutfallslega meira en öðrum.

Enn hækka hlutabréf í Asíu

Hlutabréf hækkuðu í verði á mörkuðum Asíu í morgun eftir að stjórnvöld í Japan og Kína blésu til frekari aðgerða gegn efnahagslægðinni.

Hlutabréf héldu áfram að hækka á Wall Street

Hlutabréf héldu áfram að hækka í kauphöllinni á Wall Street í New York í dag. Þetta þriðja daginn í röð sem þau hækka almennt en helstu hlutabréfavísitölur tóku mikla dýfu í seinustu viku.

Jón telur sig hafa forkaupsrétt á Senu

Athafnamaðurinn Jón Ólafsson telur sig hafa átt forkaupsrétt á Senu, sem seld var á dögunum og hefur falið lögfræðingum sínum að skoða málið.

Nova kærir Tal

Farsímafyrirtæið Nova hefur ákveðið að kæra samkeppnisaðila sinn Tal fyrir meiðandi ummæli. Sigmar Vilhjálmsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Tals, staðhæfði í grein í Morgunblaðinu í dag að sá sem hringir í Nova símanúmer þurfi að greiða fyrir símtalið þó ekki sé svarað í símann.

Alfesca lækkaði mest

Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 1,76%. Alfesca lækkaði um 12,5%, Bakkavör Group lækkaði um 9,38%, Marel lækkaði um 4,48 og Össur lækkaði um 3,19. Century Aluminum Company hækkaði um 3,20

Gengi krónunnar aftur að veikjast

Gengi krónunnar hefur veikst töluvert í dag eða um tæplega 2,4%. Er gengisvísitalan komin aftur yfir 190 stig en hún fór lægst í tæp 186 stig í vikunni.

Aðhaldsaðgerðir og niðurskurður hjá Nordic Partners

Fjármálakreppan hefur gert það að verkum að aðhaldsaðgerðir og niðurskurður eru nú í gangi hjá Nordic Partners. Félagið á hótelin D´Angleterre, Kong Frederik og Front ásamt veitingahúsinu Copenhagen Corner í Danmörku.

Actavis hefur starfsemi í Japan í apríl

Actavis og japanska lyfjafyrirtækið ASKA Pharmaceutical skrifuðu í vikunni undir formlegan samning um stofnun sameiginlegs samheitalyfjafyrirtækis í Japan. Starfsemi fyrirtækisins, Actavis ASKA K.K., hefst í næsta mánuði. Actavis mun eiga 45% hlut en Aska 55%.

Vilhjálmur tapaði í héraðsdómi

Vilhjálmur Bjarnason lektor tapaði í dag dómsmáli sem hann og dætur hans höfðuðu á hendur stjórnarmönnum í Straumi fjárfestingabanka. Vilhjálmur krafðist alls þrjátíu þúsund króna í bætur en hann sakaði bankann um að hafa selt bréf í bankanum á undirverði. Salan átti sér stað í Salan átti sér stað í ágúst 2007 en þá seldi Straumur fimm prósenta hlut til Drake Capital Management en kaupandinn var ekki gefinn upp á þeim tíma. Vilhjálmur og dætur hans áttu hlutabréf í Straumi.

Útlán hjá NIB slógu öll met í fyrra

Útlán hjá Norræna fjárfestingarbankanum (NIB) slógu öll met í fyrra og námu rúmum 2,7 milljörðum evra eða um 386 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að útlán bankans árið 2007 voru 2,2 milljarðar evra.

Gjaldþrotabeiðni Baugs frestast

Til stóð að taka gjalþrotabeiðni á hendur Baugi fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan hálf tólf í dag. Málinu var hins vegar frestað þar til síðar í dag. Ekki er ljóst af hvaða ástæðum málinu var frestað og tímasetning á málinu hefur ekki verið ákveðin. Þegar gjalþrotabeiðni verður tekin fyrir verður skiptastjóri skipaður.

Græddi tugi milljarða á breska bankahruninu

Vogunarsjóður bandaríska fjárfestisins John Paulson græddi 311 milljónir punda, eða um 50 milljarða kr. á hruni breska bankakerfisins í vetur. Og þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Paulson græðir tugi milljarða á því að skortselja hlutabréf í breskum bönkum.

Milljarðamæringar Forbes: Napurt ár hjá Björgólfi Thor - myndir

Enginn Björgólfur Guðmundsson er á lista Forbes tímaritsins yfir ríkustu einstaklinga veraldar. Forbes tekur saman lista yfir þá sem eru metnir á að minnsta kosti einn milljarð bandaríkjadala. Talið er að tvö þúsund milljarðar hafi horfið úr vösum þessa hóps sem telur nú 793 einstaklinga.

Færeyjabanki einn á uppleið í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hefur hækkað um 0,98 prósent í Kauphöllinni og er það jafnframt eina félagið sem hefur hækkað frá því viðskipti hófust í dag.

Reiknar með 9,5-10% atvinnuleysi í mars

Hagfræðideild Landsbankans reiknar með því að atvinnuleysi í mars muni verða 9,5-10% þrátt fyrir að teikn séu um að aðeins sé að draga úr fjölda þeirra sem skrá sig atvinnulausa.

Rektor HÍ flutti erindi í Harvard háskólanum

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands heimsótti í vikunni Harvard háskóla í Boston í Bandaríkjunum. Kristínu var boðið að flytja erindi í Menntavísindaskóla Harvard (Harvard Graduate School of Education) þar sem hún ræddi um hlutverk og ábyrgð háskóla á tímum endurreisnar efnahagslífs.

Mentis Cura hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2009

Sprotafyrirtækið Mentis Cura hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs, sem afhent voru á þéttsetnu Nýsköpunarþingi í morgun.

Atlantsolía lækkar olíuna enn

Atlantsolía lækkaði verð á dísilolíu i morgun um tvær krónur á lítrann og hefur þá lækkað olíuna um 12 krónur frá áramótum. Að sögn félagsins hefur styrking krónunnar skapað svigrúm til lækkunar. Ekki hafa borist fregnir af lækkun frá öðrum olíufélögum í morgun.

Honda lækkaði um sjö prósent

Hlutabréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði í morgun og voru það bréf fjármálafyrirtækja og bílaframleiðenda sem mest lækkuðu. Bréf Honda lækkuðu um sjö prósent vegna styrkingar jensins gagnvart dollar en mikið af bílum Honda fer á Bandaríkjamarkað.

Björgólfur fellur um 400 sæti hjá Forbes

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur fallið um 400 sæti frá því í fyrra á lista Forbes yfir ríkustu menn heims, en tímaritið birti í gærkvöldi nýjan lista yfir einstaklinga sem taldir eru eiga yfir einn milljarð bandaríkjadala.

Stjórn Baugs óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði í dag beiðni Baugs Group um framlengingu greiðslustöðvunar. Í framhaldinu hefur stjórnin félagsins ákveðið að óska eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Gengi Century Aluminum hækkar um 3,62 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 3,62 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Össuri, sem hækkaði um þrjú prósent, og Færeyjabanka, sem fór upp um 0,49 prósent.

Jón Ásgeir: Hefðum betur haldið okkur bara í smásölunni

„Mér líður hræðilega eftir þessi tíðindi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, um þá staðreynd að beiðni áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs Group var hafnað í dag. Tíðindin þýða að Baugur er gjaldþrota og Jón Ásgeir segir að þessi niðurstaða muni kosta hluthafa og kröfuhafa mikið fé.

Skráð atvinnuleysi í febrúar var 8,2%

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2009 var 8,2% eða að meðaltali 13.276 manns og eykst atvinnuleysi um 27% að meðaltali frá janúar eða um 2.820 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.631 manns.

Actavis komið á Írlandsmarkað

Actavis hóf starfsemi á Írlandi í vikunni og er gert fyrir að markaðssetja meira en 120 lyf þar í landi á næstu fimm árum. Starfsmenn Actavis á Írlandi verða um 25, auk þeirra 11 sem þar eru fyrir á vegum móðurfélagsins, Actavis Group.

Seðlabankinn vísar á bug að hafa gert kröfu um leynd

„Hér í Seðlabankanum vísa menn því alfarið á bug að bankinn hafi gert kröfu um að leynd hvíldi á lánveitingu bankans til Straums," segir Stefán Jóhann Stefánsson upplýsingafulltrúi Seðlabankans vegna fréttar um málið hér á vefnum.

Forstjóri D´Angleterre hættir og fer til keppinautar

Tony Bak forstjóri D´Angleterre hótelsins, sem er í eigu Íslendinga, hefur látið af störfum og ráðið sig til mesta keppinautar hótelsins. Á vefsíðunni business.dk segir að þetta sé þungt högg fyrir hina íslensku eigendur.

Starfsemi dótturfélaga Straums með eðlilegum hætti

Starfsemi dótturfélaga Straums í Evrópu er með eðlilegum hætti þrátt fyrir yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á bankanum s.l. mánudag. Hinsvegar liggur starfsemi útibús bankans í London, verðbréfamiðlunarinnar Teathers enn niðri að stórum hluta.

Seðlabankinn gerði kröfu um leynd á láni til Straums

Seðlabankinn gerði þá kröfu á lánveitingu til Straums í desember s.l. að henni yrði haldið leyndri samkvæmt heimildum Fréttastofu. Hér var ekki um 133 milljón evra lánið að ræða sem rætt hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu heldur annað evrulán sem Seðlabankinn veitti Straumi á sama tíma og tilkynnt var um 133 milljónirnar.

Sjá næstu 50 fréttir