Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kauphöllin og endurreisnin Kauphöll er spegill efnahagslífsins. Þegar vel gengur leita kauphallarvísitölur upp en þegar blikur eru á lofti leita þær niður – og þegar virkilega á bjátar falla þær eins og steinar. Bankahrunið hér á landi hefur svo sannarlega birst í NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi. Þannig er Úrvalsvísitalan nú 375 stig samanborið við um og yfir 4000 fyrir bankakreppu eftir því hvaða tími er valinn til viðmiðunar. Engin dæmi eru til um svona mikla lækkun meðal þróaðra þjóða í seinni tíð. Spegillinn sýnir því ekki fagra mynd um þessar mundir. 17.12.2008 00:01
Ný lög um fjármálamarkað Viðskiptaráðherra hyggst skipa nefnd til að endurskoða lög um fjármálamarkað. Kanna á „viðskipti starfsmanna við fjármálafyrirtæki, töku hlutabréfa fjármálafyrirtækja sem veð gegn láni, hlutverki, hæfisskilyrðum og reglur stjórna, krosseignarhald, takmarkanir á stórum áhættum og náin tengsl“, að því er segir í tilkynningu. Fylgjast á með sambærilegri vinnu á vegum ESB. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum 15. apríl næstkomandi. - ikh 17.12.2008 00:01
Kröfuhafar flytja hingað Fulltrúar erlendra kröfuhafa í íslensku bankanna hafa mikið verið í ferðum hingað og sumir opnað skrifstofur. Þetta staðfestir Sigmundur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. 17.12.2008 00:01
Margar og þéttar greinar í uppgjörstrénu Lykilpersónur íslenska bankahrunsins tengjast með einum eða öðrum hætti. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson gerði tilraun til að rýna í tengslatréð og komst að því að greinarnar eru margar, flóknar og tengjast bæði fjölskyldu- og vinaböndum. 17.12.2008 00:01
Er bannað að benda? Miklu máli skiptir að geta verið í friði með sitt. Maður vill gjarnan geta rætt við lækninn sinn í trúnaði, sálfræðinginn eða lögfræðinginn. Nú og auðvitað bankann sinn. 17.12.2008 00:01
Vilhjálmur skrifar AGS „Ég mótmælti því að þessi gjaldeyrishöft væru sett. Áhrifin væru þveröfug við þau sem ætlast væri til,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 17.12.2008 00:01
Refresco á sölulista Stoða í fjóra mánuði Stoðir reyna að selja helmingshlut sinn í hollenska drykkjaframleiðandanum Refresco. Íslenskt eignarhald er félaginu óþægilegt. Vífilfell og Kaupþing eiga félagið ásamt Stoðum. 17.12.2008 00:01
Enska lánið Nokkuð virðist til í því að sagan snúi alltaf aftur. Árið 1921 sigldi þjóðarskútan inn í þvílíkan brimskafl í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar að gríðarlegur hallarekstur blasti við í ríkisbúskapnum og þrot fyrir bönkunum, Landsbanka og þáverandi Íslandsbanka. Brugðið var á ýmis ráð, svo sem innflutningshöft á óþarfa glysvarning. 17.12.2008 00:01
Obama: Seðlabankann skortir fleiri tæki eftir stýrivaxtalækkun Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í dag að lækka stýrivexti og verða þeir á bilinu 0 til 0,25%. Þeir hafa aldrei í sögu bankans verið lægri en þeir voru fyrir lækkunina 1%. Fram kom að bankinn hyggst leita allra leiða og ráða til að vinna gegn fjármálakreppunni. 16.12.2008 22:15
Ekki hafa borist skuldbindandi tilboð í West Ham ,,Við höfum ekki fengið nein skuldbindandi tilboð enn sem komið er en við höfum bundist trúnaðarsamkomulagi við allnokkra. Við höfum ekki gefið upp hverjir það eru en það er hópur manna og þeir hafa fengið ákveðnar upplýsingar um félagið," segir Ásgeir Friðgeirsson, varaformaður stjórnar West Ham og talsmaaður Björgólfs Guðmundssonar aðaleiganda Hansa efh. 16.12.2008 17:58
Exista féll um 33,33 prósent Gengi hlutabréfa í Existu féll um 33,33 prósent í dag og endaði í fjórum aurum á hlut. Það hefur aldrei verið lægra. Dagurinn einkenndist af lækkun í Kauphöllinni. 16.12.2008 16:35
Hansa fær lengri greiðslustöðvun - Sala á West Ham í fullum gangi Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á það í dag að veita Hansa ehf, sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, framlengingu á greiðslustöðvun félagsins til 6. mars 2009. MP Banki, einn af lánadrottnum félagsins krafðist þess að beiðninni væri hafnað en dómari féllst ekki á það. Ein helsta ástæða þess að dómari féllst á lengri greiðslustöðvun er sú að sala á fótboltaliðinu West Ham, sem er langstærsta og verðmætasta eign Hansa, er í fullum gangi. Vonast er til að um 250 milljónir punda fáist fyrir félagið. Hansa bendir á að salan á félaginu sé grundvallarforsenda þess að félaginu takist að koma skikk á fjármál sín. 16.12.2008 16:26
Pattstaða vegna kaupa á 5 milljarða króna hlut í Glitni Pattstaða er komin upp vegna mögulegra málaferla Salt Invest gegn gamla Glitni. Salt keypti hlutabréf fyrir bréf í bankanum sem námu alls 5 milljörðum að markaðsvirði örfáum dögum áður en að bankinn var þjóðnýttur og hafa forsvarsmenn Salt sagt að til greina komi að stefna Glitni vegna málsins. 16.12.2008 16:18
Seðlabankinn losar nokkuð um gjaldeyrishöft sín Seðlabanki Íslands hefur gefið út nýjar reglur um gjaldeyrismál að fengnu samþykki viðskiptaráðherra. Meginbreytingar frá fyrri reglum lúta að undanþágum sem veittar eru tilteknum hópum vegna brýnna hagsmuna og því að litlar líkur eru taldar á að viðskipti þeirra muni valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum. 16.12.2008 16:08
Heimsmarkaðsverð á áli ekki lægra í fimm ár Heimsmarkaðsverð á áli er nú 1.435 dollarar á tonnið og hefur verðið ekki verið lægra síðan í október árið 2003. Um mitt þetta ár var tonnið hinsvegar á yfir 3.000 dollara. 16.12.2008 13:48
Raunlækkun húsnæðisverðs nemur um 17% frá áramótum Húsnæðisverð hefur lækkað nokkuð á þessu ári. Að raunvirði er lækkunin á höfuðborgarsvæðinu um 17% frá upphafi árs. 16.12.2008 13:30
Símafélagið MNI býðst til að kaupa 31% af hlut Novators í Netia Pólska símafélagið MNI hefur boðist til að kaupa 31,3% hlut Novators í símafélaginu Netia. Þetta segir forstjóri MNI í samtali við CNBC. 16.12.2008 12:52
Nefnd skipuð til að endurskoða lög um fjármálamarkaðinn Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir tilnefningum í nefnd sem hann hyggst skipa til að fara yfir lög á sviði fjármálamarkaðar í ljósi þeirrar reynslu sem unnt er að draga af fjármálaáfallinu. 16.12.2008 11:53
Aukning þorskafla gæti skilað milljarði á mánuði í kassann Með grófri nálgun má áætla að fjórðungs aukning þorskafla geti skilað í námunda við milljarð króna á mánuði í auknar útflutningstekjur miðað við núverandi forsendur um verð og horfur á gengi krónu. 16.12.2008 11:48
Evrópsk lyfjafyrirtæki brjóta ekki samkeppnislög Engar vísbendingar eru um að samkeppnislög hafi verið brotin af evrópskum lyfjafyrirtækjum. Þetta kemur skýrt fram í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem nýverið var gefin út í kjölfar húsleitar og rannsóknar á samkeppnisumhverfi evrópskra lyfjafyrirtækja fyrr á þessu ári. 16.12.2008 10:55
Rauð byrjun í kauphöllinni Kauphöllin opnaði í morgun með rauðum tölum. Viðskiptin voru aðeins fjögur í byrjun og upphæð þeirra tæpar 20 milljónir kr.. 16.12.2008 10:23
Fjöldi af breskum krám er á barmi gjaldþrots Mikil fjöldi af breskum krám, eða pöbbum, rambar nú á barmi gjaldþrots eða eru þegar orðnar gjaldþrota vegna fjármálakreppunnar. Nú síðast varð kráarkeðjan Orchid lýst gjaldþrota en hún er sú fimmta stærsta á Bretlandseyjum. 16.12.2008 10:09
Geir segir stjórnvöld vera að skoða aðgerðir FME í Bretlandi Geir Haarde forsætisráðherra segir í samtali við BBC að íslensk stjórnvöld séu að skoða hvort aðgerðir breska fjármálaeftirlitins hafi leitt til þess að Singer & Friedlander banki Kaupþings hafi fallið. 16.12.2008 09:38
Lækkanir áberandi hjá námu- og málmfyrirtækjum Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í morgun og voru lækkanir hjá námu- og málmvinnslufyrirtækjum áberandi. Til dæmis lækkuðu bréf japanska stálrisans JFE um tæp sex prósentustig, námufyrirtækið Billington lækkaði einnig og kolaframleiðandinn Macarthur lækkaði um heil 22 prósentustig. 16.12.2008 08:34
Salan á hótel D’Angleterre fyrir rétt í Kaupmannahöfn Í dag hefjast réttarhöld í Kaupmannahöfn vegna sölunnar á hótel D’Angleterre, og fleiri eignum, til Nordic Partners sem er í eigu Íslendinga. Það er fasteignasali sem stefnt hefur fyrri eigendum D’Angleterre, Remmen fjölskyldunni. Telur fasteignasalinn sig eiga inni söluþóknun hjá fjölskyldunni. 16.12.2008 08:30
Beðið eftir stýrivaxtalækkun vestanhafs Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í dag. Helsta skýringin á því er eftirskjálfti af völdum handtöku Bernands Madoffs, sem var handtekinn í síðustu viku vegna fjármálasvindls. Þá vofir enn yfir hugsanlega slæm tíðindi af bílaiðnaðinum í Bandaríkjunum eftir að bandaríkjaþing hafnaði forsvarsmönnum bílarisanna þriggja um neyðarlán sem myndi ýta þeim yfir erfiðasta hjallan framhjá hugsanlegu gjaldþroti. 15.12.2008 21:49
Eimskip sendir frá sér afkomuviðvörun Eimskipafélag Íslands hefur sent frá sér afkomuviðvörun afkomuviðvörun vegna fyrirséðrar gjaldfærslu á 4. ársfjórðungi. Ábyrgð Eimskips vegna XL flugfélagsins verður gjaldfærð.. 15.12.2008 17:09
Gjaldfærðir vextir aukast um 11 milljarða kr. frá fjárlögum Samkvæmr frumvarpi til fjáraukalaga er gert ráð fyrir að gjaldfærðir vextir af skuldum ríkissjóðs hækki um rétt tæpa 11 milljarða kr. frá fjárlögum 2008 en að greiddir vextir hækki um tæpa 7,5 milljarða kr.. 15.12.2008 16:52
Exista hækkaði um 16,67 prósent Gengi hlutabréfa í Existu skaust upp um 16,67 prósent í þrettán viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfanna, sem fóru úr salti Fjármálaeftirlitsins fyrir viku, stendur nú í sjö aurum á hlut. 15.12.2008 16:30
Álverið í Straumsvík heldur sínu striki í framkvæmdum Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi álversins í Straumsvík segir að álverið muni halda sínu striki hvað framkvæmdir varðar á næsta ári. Frétt Fréttablaðsins í dag um að hætt hafi verið við stækkun álversins sé einfaldlega röng. 15.12.2008 16:22
Heimsmarkaðsverð á olíu skríður yfir 50 dollara tunnan Heimsmarkaðsverð á olíu skreið yfir 50 dollara á tunnuna í dag. Þetta kom í framhaldi af yfirlýsingu frá Chakib Khelil forsta OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, um að Saudi-arabar hefðu þegar dregið úr framleiðslu sinni. 15.12.2008 15:26
Landic Property vinnur að stefnumótun fyrir framtíðina Landic Property vinnur nú að því að móta nýja stefnu fyrir félagið í kjölfarið á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. 15.12.2008 13:47
Viðskiptaráð vill í aðildarviðræður Stjórn Viðskiptaráðs Íslands hefur sent frá sér ályktun varðandi mögulega aðild Íslands að ESB. Viðskiptaráð er þeirrar skoðunar að kostirnir í stöðunni verði ekki skoðaðir til hlítar nema með aðildarumsókn. 15.12.2008 13:36
Skip Atlantic Petroleum fær vopnaða vernd á Aden-flóanum Atlantic Petroleum hefur fengið afhent olíuframleiðslu-og geymsluskipið Aoka Mizu frá skipasmíðastöð í Singapore. Ætlunin er að flytja það frá Singapore til Rotterdam á næstunni. Leið skipsins mun liggja um Aden-flóann og segir Wilhelm Petersen forstjóri Atlantic að á þeirri leið muni skipið fá vopnaða vernd. 15.12.2008 13:21
Bandaríkjamenn vilja reisa 120 herbergja hótel við höfnina Bandarísk hótelkeðja hefur áhuga á því að byggja 120 herbergja hótel við Ægisgarð við hliðina á Mýrargötureitnum. ABZ-A hefur fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags sótt um lóð undir hótelið á þessum stað. 15.12.2008 13:05
Spáir 17,8% verðbólgu í desember Að mati greiningar Glitnis mun vísitala neysluverðs (VNV) hækka um 1,2% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 17,2% í 17,8%. 15.12.2008 11:24
Gjaldeyrishöftin fæla erlenda fjárfesta frá landinu Ímynd Íslands sem ákjósanlegs áfangastaðar fyrir erlenda fjárfestingu hefur augljóslega beðið talsverðan hnekki á undanförnum vikum. Fátt er eins til þess fallið að fæla frá erlent fjármagn og gjaldeyrishöft, og þótt stjórnvöld hafi lýst því yfir að höftunum verði aflétt eins fljótt og það þykir óhætt munu erlendir fjárfestar væntanlega hafa varann á gagnvart landinu á næstu misserum. 15.12.2008 11:07
Segir stýrivexti óbreytta fram í mars en lækki þá hratt Stýrivextir verða óbreyttir í 18% fram til mars á næsta ári að mati greiningar Glitnis. Þá reiknar greiningin með því að þá hefji Seðlabankinn vaxtalækkunarferil sinn og að hann lækki vexti nokkuð hratt. 15.12.2008 10:54
Rólegt í kauphöllinni Markaðurinn í kauphöllinni opnaði á rólegum nótum í morgun. Viðskiptin eru orðin 20 talsins og heildarupphæðin rúmlega 83 milljónir kr. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,25% og stendur í 376 stigum. 15.12.2008 10:31
Hitnar í kolunum hjá Carnegie, forstjórinn hættir Anders Fällman forstjóri móðurfélags Carnegie bankans hefur látið af störfum. Þessa ákvörðun tók hann eftir að Bo Lundgren forstjóri Lánastofnunnar sænska ríkisins (Riksgälden) hraunaði yfir hann í sjónvarpsviðtali fyrir helgina. Milestone á hlut í Carnegie í gegnum félag sitt Moderna Finans. 15.12.2008 09:37
Tekjuhallinn nam 15 milljörðum á þriðja ársfjórðungi Tekjuhalli hins opinbera á þriðja ársfjórðungi 2008 nam 15 milljörðum króna samanborið við um 17 milljarða króna tekjuafgang á sama tíma 2007, eftir því sem fram kemur í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. 15.12.2008 09:23
Dönsk klámstöð sektuð fyrir að nota nafnið Tívolí Dönsk klámstöð hefur komist að því sér til töluverðrar hrellingar og fjárútláta að nafnið Tívolí er verndað vörumerki í Danmörku. Stöðin var dæmd til að borga 6 miljónir kr. í skaðabætur og eina milljón í sekt sökum þessa fyrir Sjó- og Kauprétti Kaupmannahafnar. 15.12.2008 09:08
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf hækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun eftir að trú manna jókst á að bandarísk yfirvöld muni koma bílaframleiðendunum Chrysler og General Motors til aðstoðar en þau ramba á barmi gjaldþrots. 15.12.2008 08:09
Enn einn þýskur banki tapar stórt á íslenska bankahruninu Þýski bankinn HSH Nordbank bætist nú í hóp banka þar í landi sem tapa stórt á hruni íslensku bankanna. Samkvæmt þýska blaðinu Focus mun bankinn tapa um einum milljarði evra á árinu eða um 157 milljörðum kr. en fleiri en íslensku bankarnir eiga þar hlut að máli. 15.12.2008 08:09
Fjöldi kaupsamninga undir meðallagi Fjöldi þinglýstra kaupsamninga vegna húsnæðiskaupa var í síðustu viku talsvert undir meðallagi síðustu tólf vikna, sem líka er langt undir meðaltali sömu tólf vikna í fyrra. 15.12.2008 07:16