Viðskipti innlent

Teymi hugar að sölu eigna og endurskipulagningu

Teymi hf. hefur hafið viðræður við kröfuhafa félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna. Jafnframt hefur stjórn félagsins ákveðið að kanna sölu eigna.

Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. Teymi er að stærstum hluta í eigu Baugs en helstu eignir þess eru Vodafone á Íslandi og í Færeyjum, Tal, Kögun, Skýrr, Eskill, Landsteinar Strengur, Hugur/Ax og EJS.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×