Úttekt á Samvinnutryggingum aftur til ársins 1989 18. desember 2008 15:46 Frá fundi Samvinnutrygginga
Fulltrúaráðsfundur í Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar sem haldinn var í dag ákveðið að framkvæmd verði úttekt á starfsemi félagsins og dótturfélaga undanfarin nítján ár af óháðum og sérfróðum aðila. Ákveðið var fyrir tæpu einu og hálfu ári að allar eignir og skuldir Samvinnutrygginga rynnu inn í fjárfestingarfélagið Gift. Skilanefndin vann að skipta hlutabréfinu í Gift, en það er fjórir milljarðar króna að nafnverði. Á fundinum í dag skilaði skilanefnd formlega til baka umboði sínu. Ákvörðun um það var tekin eftir að upplýsingar bárust frá stjórn Gift fjárfestingarfélags um að eigið fé félagsins væri orðið neikvætt. Skilanefndin taldi starfi sínu því sjálfhætt. Verkefni skilanefndar Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar var að skipta einu eign félagsins, hlutafé að nafnvirði fjórir milljarðar króna, á milli fyrrum tryggingartaka þess og sjálfseignarstofnunarinnar Samvinnusjóðsins. ,,Hins vegar var það ekki verkefni skilanefndarinnar að selja eignir EST og koma þeim í verð og skipta síðan andvirði þeirra á milli eigenda, eins og oftast á við þegar ákveðið er að slíta félagi sem þessu, þar sem fulltrúaráðsfundur EST hafði ákveðið að stofna Gift og láta það starfa með sjálfstæðri stjórn samhliða skiptaferlinu, en eigendur EST myndu síðan eignast hlut í Gift," segir í tilkynningu. Á fundinum var nýrri stjórn falið að kalla til sérfróðan og óháðan aðila með sérþekkingu á sviði félagaréttartil að fara yfir öll málefni félagsins frá árinu 1989, þ.m.t. dótturfélagsins Giftar fjárfestingarfélagsfrá stofnun þess, til dagsins í dag. ,,Að úttekt lokinni skal skýrsla samin og lögð fyrir fulltrúaráðsfund Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, þar sem hinn sérfróði óháði úttektaraðili gerir grein fyrir niðurstöðum sínum og þeim ályktunum sem hann dregur af þeim." Á fundi fulltrúaráðsins var kjörin ný stjórn en hana skipa Gunnlaugur Aðalbjarnason, Karl Stefánsson og Ómar Valdimarsson. Stjórnin á eftir að skipta með sér verkum.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira