Viðskipti innlent

Eggert stefnir Björgólfi vegna West Ham

Björgólfur Guðmundsson.
Björgólfur Guðmundsson.

Eggert Magnússon hefur stefnt Björgólfi Guðmundssyni og enska knattspyrnufélaginu West Ham fyrir samningsbrot. Hann krefst ríflega 200 milljóna króna vegna vanefnda á starfslokasamningi. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum RÚV.

Eggert tók við starfi stjórnarformanns hjá West Ham haustið 2006, eftir að Björgólfur Guðmundsson keypti meirihluta í félaginu. Björgólfur keypti hlut Eggerts í West Ham og leysti hann frá störfum ári seinna.

Samið var um að félagið myndi greiða Eggerti laun í 3 mánuði frá uppsögn. Samkvæmt stefnu málsins skuldbatt Björgólfur sig og félagið jafnframt til að greiða Eggerti eina milljón evra og tvö hundruð þúsund pund í tveimur jöfnum greiðslum.

Þessar greiðslur hafa ekki borist, fyrir utan eitt hundrað þúsund pund sem Björgólfur greiddi Eggerti úr eigin vasa í febrúar. Eggert krefur því Björgólf og West Ham um ríflega tvö hundruð milljónir króna miðað við gengi Seðlabanka Íslands.

Samkvæmt upplýsingum Vísis ætlar Björgóflur Guðmundsson ekki að tjá sig um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×