Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Takið bílnúmerin af og sparið „Það er fáránlegt að fólk láti bílana standa á sölu á fullri tryggingu og bifreiðagjöldum,“ segir Trausti Jónsson, löggiltur bifreiðasali í Bílfangi Trausti telur það vera bæði hag bíleigenda og bílasala að bílar í sölumeðferð séu teknir af númerum. 14.12.2008 09:00
Ísland á ofarlega á blaði yfir stærstu fjármálaklúður ársins Tímaritið Time hefur sett saman lista yfir tíu verstu fjármálaklúður ársins. Ísland er þar á blaði ásamt öðrum stórslysum í fjármálaheiminum þetta árið; Lehman Brothers, AIG, orðspori Alan Greenspan, bandarískum bílaframleiðendum, Freddie Mac og Fannie Mae, matsfyrirtækjum, vogunarsjóðum og öðrum sem þótt hafa borið af í vandræðagangi árið 2008. 13.12.2008 18:53
Kröfuhöfum kynnt ferlið Kröfuhöfum gömlu bankanna eru um þessar mundir kynntur ferillinn við endurskipulagningu bankakerfisins, uppskiptingu bankanna og verðmat eigna þeirra, á fundum með skilanefndum bankanna. 13.12.2008 06:00
Hlutabréf hækkuðu í Bandaríkjunum Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu lítillega í dag vegna væntinga til þess að björgunaraðgerðir í þágu bandarískra bílaframleiðanda nái fram að ganga og bjartra vona í garð tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum. Dow Jones hækkaði um 0,75%, Standard & Poor hækkaði um 0,7% og Nasdaq hækkaði um 2,18%. 12.12.2008 22:11
Straumur semur við Saga Capital um viðskiptavaka Straumur hefur samið við Saga Capital um viðskiptavaka með hlutabréf í Straumi fyrir eigin reikning Saga Capital. 12.12.2008 18:17
Vonast til að salan á Kaupþing Lux klárist fyrir jól Vonast er til að sala á Kaupþingi í Lúxemburg klárist fyrir jól, samkvæmt heimildum Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Eins og greint var fyrst frá í fréttum Stöðvar 2 er verið að vinna að samningum um sölu á Kaupþingi í Luxemburg við líbýskan banka. 12.12.2008 17:30
Landsbankinn í Luxemborg tekinn til gjaldþrotaskipta Dómstóll í Luxemborg hefur fyrirskipað að Landsbankinn þar í landi verði tekinn til gjaldþrotaskipta. Jafnframt hafa tveir skiptastjórar verið skipaðir til að fara með mál þrotabúsins. 12.12.2008 16:19
Málsókn gegn Bretum á hendi kröfuhafa Kaupþings Kröfuhafar í þrotabú Kaupþings munu verða þeir sem endanlega ákveða hvort mál verður höfðað gegn breskum stjórnvöldum. Þetta segir skilanefnd Kaupþings. 12.12.2008 15:51
Engin skerðing hjá Frjálsa lífeyrissjóðinum Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem rekinn er af eignastýringu Kaupþings, hefur lokið endurmati eigna í samráði við löggilta endurskoðendur. Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum þarf ekki að skerða réttindi eða lífeyri sjóðfélaga í samtryggingahluta sjóðsins. Sjóðfélagar eru rúmlega 40 þúsund. 12.12.2008 15:00
Markaður með einkaþotur er hruninn Hundruð einstaklinga og félaga vilja selja einkaþotur sínar en hvergi er hægt að finna kaupenda að þeim í augnablikinu. Markaðurinn með einkaþotur r algerlega hruninn. 12.12.2008 14:30
Skattrannsókn fékk allar tiltækar upplýsingar frá Landsbankanum Með vísan til fjölmiðlaumræðu undanfarið vill Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. taka fram að hún hefur veitt skattrannsóknarstjóra allar þær upplýsingar sem henni eru tiltækar og óskað hefur verið eftir. 12.12.2008 14:16
Hlutir í JJB Sports hrynja eftir nýtt verðmat Citigroup Hlutabréf í JJB Sports hafa hrunið um rúmlega 30% á markaðinum í London í dag eftir að Citigroup gafa út nýtt verðmat á félaginu. Citigroup telur hlutinn nú aðeins 1 pens virði. Exista er meðal eigenda JJB Sports. 12.12.2008 14:04
Niðurskurður Rio Tinto kemur ekki við kaunin í Straumsvík Hin umfangsmikli niðurskuður hjá Rio Tinto mun ekki hafa bein áhrif á starfsemi álversins í Straumsvík. Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi álversins segir að þeir muni þurfa að hagræða í rekstri sínum eins og kostur er eftir sem áður. 12.12.2008 13:05
Innlán voru stærsti hluti peningasjóðs Kaupþings Innlán voru tveir þriðju eigna peningamarkaðssjóðs Kaupþings. Annað var í skuldabréfum og voru bréf frá Kaupþingi og Existu rúmlega 18% af eignum sjóðsins. 12.12.2008 12:48
Stjórnvöld samþykkja sölu Kaupþings í Svíþjóð Búið er að ráða Christer Villard sem forstjóra Kaupþings í Svíþjóð og hefur honum jafnframt verið falið að selja bankann. Samkvæmt frétt á Dagens Industri hafa íslensk stjórnvöld gefið grænt ljós á söluna. 12.12.2008 12:23
Lánshæfismat ríkisins fer hríðversnandi Lánshæfismat ríkisins hefur nú hríðversnað á undaförnum vikum sem er til marks um gjörbreytta stöðu ríkissjóðs sem hefur á skömmum tíma farið frá því að vera nánast skuldlaus í að vera einn sá skuldugasti meðal OECD ríkja. 12.12.2008 11:14
Krónan veikist um 0,7 prósent Gengi krónunnar hefur veikst um 0,7 prósent frá því gjaldeyrisviðskipti hófust í morgun og stendur gengisvísitalan nú í 204,5 stigum, samkvæmt gjaldeyrisborði Kaupþings. Gengisskráning krónunnar hefur verið nokkuð á reiki eftir að gjaldeyrishöft voru samþykkt á Alþingi fyrir hálfum mánuði og nokkur gengi í gangi á gjaldeyrismörkuðum. 12.12.2008 10:26
Landsbankinn opnar fyrir viðskipti með Úrvalsbréf Stjórn Landsvaka hefur ákveðið að opna fyrir viðskipti með Úrvalsbréf Landsbankans að nýju. Lokað hefur verið fyrir viðskiptin síðan að Landsbankinn hrundi í haust. 12.12.2008 10:20
Moody´s lækkar lánshæfi Orkuveitunnar Matsfyrirtækið Moody's hefur gefið Orkuveitu Reykjavíkur lánshæfiseinkunnina Baa1. Það er lækkun frá fyrri einkunn Orkuveitu Reykjavíkur og er hún í samræmi við breytingu Moody's á lánshæfismati ríkissjóðs. Horfur eru taldar neikvæðar. 12.12.2008 10:06
Century Aluminum fellur um rúm sjö prósent Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, skall niður um 7,62 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag og stendur gengi bréfa í félaginu í 1.030 krónum á hlut. Á eftir fylgdir gengi bréfa í Bakkavör, sem féll um 4,79 prósent og í Straumi, sem féll um 4,76 prósent. 12.12.2008 10:05
Rauð jól á flestum hlutabréfamörkuðum Rauður jólalitur hefur einkennt hlutabréfamarkaði um gervalla heimsbyggðina eftir að bandarískir öldungadeildarþingmenn felldu tillögu um að veita bandarískum bílaframleiðendum neyðarlán til að koma þeim yfir erfiðan hjalla og forða þeim frá því að keyra í þrot. 12.12.2008 09:49
Kaliforníubúar óttast nú íslensk örlög Kaliforníubúar óttast nú að lenda í sömu örlögum og Íslands hvað efnahag ríkisins varðar. Kalifornía er tíunda stærsta hagkerfi heimsins en í febrúar mun ríkið verða uppiskroppa með fé að öllu óbreyttu og þar með sé ríkið komið í "efnahagslegan heimsenda" eða financial Armageddon" eins og það er orðað. 12.12.2008 09:43
Kreppan knýr dyra hjá Rússum Aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands segir að landið sé nú í kreppu og bætist landið þar með í hóp fjölda annarra sem svipað er ástatt fyrir. 12.12.2008 09:39
Landsframleiðslan dróst saman um 0,8% að raungildi Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,8% að raungildi á 3. fjórðungi ársins 2008 frá sama fjórðungi árið áður. Á sama tíma má ætla að þjóðarútgjöld hafi dregist saman um tæplega 10% þar sem einkaneysla dróst saman um tæplega 7% og fjárfesting um tæplega 28%. 12.12.2008 09:37
Áldrifin endurreisn Íslands gæti tafist að mati Fitch Matsfyrirtækið Fitch Ratings telur að áætlanir íslenskra stjórnvalda um áldrifna endurreisn Íslands muni líklega taka lengri tíma en stjórnvöld telja. Hækkandi álverð og þar með útflutningsverðmæti landsins eru lykilatriði í áætlunum stjórnvalda en raunveruleikinn verður annar. 12.12.2008 08:35
Hlutabréf í Asíu snarlækka Hlutabréf snarlækkuðu í verði á Asíumörkuðum í morgun eftir að fregnir bárust af því að ekkert yrði af aðstoð við bandarísku bílaframleiðendurna. 12.12.2008 08:21
Bílalán í óláni Bílaframleiðendurnir General Motors og Chrysler sitja í súpunni eftir að frumvarp um 14 milljarða dollara neyðarfjárveitingu þeim til handa náði ekki tilskildum atkvæðafjölda í öldungadeild Bandaríkjaþings í gærkvöldi. 12.12.2008 08:19
Fasteignaverð fjarri jafnvægi Til þess að fasteignaverð nái hér jafnvægi á ný þarf það að lækka um 25 til 30 prósent á næstu þremur árum. Er þá miðað við að laun hækki á sama tíma um 10 til 15 prósent. 12.12.2008 06:00
Telur ólíklegt að íslenski viðskiptaráðherrann geti aflétt bankaleynd í Luxemburg Mér fyndist það ótrúlegt ef íslenski viðskiptaráðherrann gæti aflétt bankaleynd í Luxemborg, segir starfsmaður fjármálaeftirlitsins þar í landi, sem spyr jafnframt hvaða upplýsingar íslensk stjórnvöld vilji fá. 11.12.2008 20:14
Viðisaukaskattur og vörugjöld felld af útfluttum bílum Alþingi samþykkti í dag lög sem heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts og vörugjalda af notuðum ökutækjum sem eru afskráð og flutt úr landi. 11.12.2008 19:04
Exista hækkaði um 20 prósent Gengi hlutabréfa í Existu endaði í tuttugu prósenta plús og sex aurum á hlut eftir nokkrar sveiflur. Þegar best lét í byrjun dags rauk það upp um 100 prósent, úr fimm aurum í tíu. 11.12.2008 16:36
Vogunarsjóðir töpuðu 7.000 milljörðum kr. í nóvember Tap vogunarsjóða heimsins nam 64 milljörðum dollara eða um 7.000 milljörðum kr. í nóvember. Þetta kemur fram í tímaritinu Eurekahedge sem tekið hefur saman upplýsingar um rekstur vogunarsjóða á þessu ári. 11.12.2008 16:02
Gengi krónunnar veiktist um rúmt prósent Gengi krónunnar veiktist um 1,1% í dag og stendur gengisvísitalan í rúmlega 204 stigum. 11.12.2008 15:58
Finna lausnir á lausafjárvanda Einar Sigurðsson forstjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, segir að félagið sé núna að móta það vinnulag sem haft verður á því að leita eftir nýju hlutafé á næstu dögum og vikum. Eins og komið hefur fram í fréttum er staða félagins erfið. Unnið er að því nú að fá nýtt hlutafé inn í félagið og hefur töluverður hópur fólks sýnt félaginu áhuga. 11.12.2008 15:03
Al-Thani lítur á fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani lítur á 25,5 milljarða kr. fjárfestingu sína í Kaupþingi sem glatað fé. Að sögn Telmu Halldórsdóttur talsmanns Q Iceland Finance mun Al-Thani hafa greitt fyrir 5% eignarhlut sinn í Kaupþingi með reiðufé og mjög tryggum veðum í eignum sínum erlendis. 11.12.2008 14:34
Asger Jensby skuldar FIH bankanum 7 milljarða króna Asger Jensby skuldar FIH bankanum, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, 350 milljónir danskra kr. eða um 7 milljarða kr.. Jensby er ein höfuðpersónan í IT Factory málinu í Danmörku sem er mesta fjármálahneyksli sem þar hefur komið upp árum saman. 11.12.2008 14:11
Sveitarfélögin fá einn milljarð kr. aukalega úr ríkissjóði Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur eftir forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar að aukaframlag að fjárhæð 1,0 milljarður króna verði í þeim fjárlögum sem endanlega verða samþykkt og að ekki verði gerðar breytingar á álagningarhlutfalli fasteignaskatts á ríkiseignir. 11.12.2008 13:43
Sögufrægur demantur sleginn fyrir metfé hjá Christie´s Hinn sögufrægi Wittelsbach demantur var sleginn fyrir 16,3 milljónir punda á uppboði hjá Christie´s í London í vikunni eða hátt í 3 milljarða kr.. Um er að ræða hæsta verð sem nokkurn tímann hefur fengist fyrir demant á uppboði. Fyrirfram var talið að um 9 milljónir punda fengjust fyrir gripinn. 11.12.2008 13:09
Klámdrottning verður forstjóri í eigin fyrirtæki Danska klámmyndastjarnan fyrrverandi, Katja Kean, er orðin forstjóri í eigin fyrirtæki og gengur rekstur þess með afbrigðum vel. Í dag ber Katja nafnið Sussi La Cour sem er raunar upprunalegt nafn hennar. 11.12.2008 12:56
Ríkissjóður þarf að greiða út 50 milljarða kr. á morgun Ríkissjóður þarf að öllum líkindum að greiða út yfir 50 milljarða kr. á morgun vegna gjalddaga ríkisbréfa. Erlendir fjárfestar geta væntanlega á sama tíma keypt gjaldeyri fyrir upphæð sem samsvarar vaxtagreiðslum til þeirra, og gætu þau kaup hlaupið á 6-8 milljörðum króna. 11.12.2008 11:50
Yfir 8.000 manns eru nú atvinnulausir Í dag 11. desember eru 8.205 manns skráðir atvinnulausir en í lok nóvembermánaðar voru 6.350 skráðir atvinnulausir. 11.12.2008 11:00
Björn Bjarnason segir gagnsæi skorta í störfum FME Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að gagnsæi skorti í störfum Fjármálaeftirlitsins (FME). Þetta kemur fram á vefsíðu Björns í dag. Þar er ráðherran að fjalla um frumvarp sitt um sérstakan saksóknara til að rannsaka bankahrunið. 11.12.2008 10:51
Abramovich tapar gríðarlega á gullnámu sinni Auðjöfurinn Roman Abramovich er í tómu tjóni með fjárfestingu sína í gullnámufyrirtækinu Highland Gold. Frá því að hann keypti 4% hlut í fyrirtækinu fyrir ári síðan hefur hann tapað um 35 milljörðum kr.. 11.12.2008 10:32
FME ætlar í endurmat á eignum og skuldum bankanna Fjármálaeftirlitið (FME) ætlar að framkvæma gagngert endurmat á eignum og skuldum nýju bankanna við upphaf starfsemi þeirra. 11.12.2008 10:16
Exista hækkar um 100 prósent Gengi hlutabréfa í Existu rauk úr fimm aurum í tíu í tveimur viðskiptum upp á 50 þúsund krónur í fyrstu viðskiptunum í Kauphöllinni í dag. Það jafngildir 100 prósenta hækkun. Þá hækkaði gengi bréfa í Century Aluminum um 8,78 prósent, Straums um 1,75 prósent og Bakkavarar um 0,56 prósent. 11.12.2008 10:12