Lánshæfismat ríkisins fer hríðversnandi 12. desember 2008 11:14
Lánshæfismat ríkisins hefur nú hríðversnað á undaförnum vikum sem er til marks um gjörbreytta stöðu ríkissjóðs sem hefur á skömmum tíma farið frá því að vera nánast skuldlaus í að vera einn sá skuldugasti meðal OECD ríkja. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis í tilefni þess að þrjú stæstu matsfyrirtækin hafa nú lækkað einkunnir ríkissjóðs. Auk þess að hafa slæm áhrif á fjármögnunarkostnað ríkisins þá hefur þetta afar slæm áhrif á fjármögnunarkostnað ríkisfyrirtækja sem þurfa að fjármagna sig á erlendum lánsfjármörkuðum. Fitch, sem lækkaði mat sitt í gær, hefur líkt og S&P og Moody´s áhyggjur af vaxandi skuldaklafa ríkisins. Mikilvægasta verkefnið framundan er að mati Fitch að koma stöðugleika á gengi krónunnar sem gæti verið ærið verkefni vegna þeirra fjárhæða sem eru í eigu erlendra aðila sem eflaust vilja komast út með fé sitt við fyrsta tækifæri. Fitch áætlar að stöðutaka erlendra aðila í krónunni nemi að minnsta kosti 400 milljörðum kr. Fitch segir að í gegnum tíðina hafi það sannast að sveigjanleiki íslenska hagkerfisins sé mikill og getan til að takast á við áföll því mikil. Hinsvegar segir Fitch að nú sé önnur staða uppi þar sem áfallið sé mun stærra en við höfum áður séð og þá sé ytra umhverfið afar erfitt en flest stærstu viðskiptalönd Íslands séu nú á leið inn í versta samdrátt sem sést hefur í áratugi. Þá hafi álverð lækkað mjög mikið að undanförnu á heimsmarkaði. Þetta mun gera það að verkum að verulega mun reyna á íslenska hagkerfið á næstu árum.
Mest lesið „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Viðskipti innlent Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum Viðskipti erlent Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Að sleikja narsisstann upp í vinnunni Atvinnulíf Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Viðskipti innlent Íslendingur missir leyfið fyrir KFC í Danmörku eftir meiriháttar hneyksli Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað Sjá meira