Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fulltrúadeild samþykkir aðstoð til bílarisa Samþykkt var í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gærkvöldi að veita General Motors, Ford og Chrysler 14 milljarða dollara aðstoð úr ríkissjóði Bandaríkjanna. 11.12.2008 07:57
Dræm þátttaka í útboði ríkisbréfa Tilboðum að upphæð 11,5 milljörðum króna að nafnverði var tekið í útboði á nýjum flokki ríkisbréfa sem fram fór í gærdag hjá Seðlabanka Íslands. Fyrirfram var búist við meiri þátttöku. 11.12.2008 04:00
Bjarni hættur hjá N1 til að einbeita sér að stjórnmálum Bjarni Benediktsson hefur látið af stjórnarformennsku í félögunum N1 og BNT til að geta helgað stjórnmálunum krafta sína. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Bjarni hefur verið orðaður við framboð til forystu í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins í janúar. 10.12.2008 21:43
Kröfuhafar Kaupþings vilja ekki eignast banka á Íslandi Erlendir kröfuhafar Kaupþings, sem nú funda hérlendis, eru tregir við að verða hluthafar bankans. Það sé ekki efst á óskalista þeirra að eiga fjármálastofnun á Íslandi. 10.12.2008 18:32
Bílarisar bíða lengur eftir láni Ríkisstjórn George W. Bush, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, hefur ekki nægan stuðning öldungadeildarþingmanna vestanhafs til að búa til embætti aðgerða- eða skiptastjóra, sem muni knýja bílarisana General Motors og Chrysler í þrot nái stjórnendur fyrirtækjanna ekki að leggja fram nýja rekstraráætlun í mars á næsta ári. 10.12.2008 21:47
Umboðsaðili Apple á Norðurlöndum gjaldþrota Humac, umboðsaðli Apple á Norðurlöndum er gjaldþrota. Skuldirnar eru ekki undir einum milljarði króna en stærsti kröfuhafinn er Glitnir. 10.12.2008 18:42
Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg vill hjálpa Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg er reiðubúið að veita íslenskum yfirvöldum upplýsingar um Kaupþing þar ef það er í samræmi við lög og reglur. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 10.12.2008 18:20
Exista fallið í fimm aura á hlut Gengi hlutabréfa í Existu féll um 64,29 prósent í dag og endaði í fimm aurum á hlut. Gengi bréfa í félaginu, sem fór úr níu vikna salti Fjármálaeftirlitsins í gær og verður tekið af markaði á föstudag, hefur aldrei verið lægra. 10.12.2008 16:33
Bílaframleiðendur vongóðir um fjárstuðning Bandarískir þingmenn ákveða í dag hvort hið opinbera veiti bandarísku bílarisunum General Motors og Chrysler fimmtán milljarða dala til að komast yfir erfiðasta hjallann og forða þeim frá gjaldþroti. 10.12.2008 15:50
Ernst & Young taki við Glitni Eins og greint var frá fyrr í dag hefur endurskoðunarfyrirtækið KPMG sagt sig frá úttekt á framkvæmd reglna um innra eftirlit í tengslum við yfirtöku ríkisins á Glitni. Í tilkynningu frá skilanefnd Glitnis banka hf., segir að tekin hafi verið ákvörðun, í samráði við Fjármálaeftirlitið, um að taka upp viðræður við endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young hf. um að þeir taki verkið yfir og ljúki því eins fljótt og verða má. 10.12.2008 15:36
Pundið aldrei lægra gagnvart evru Íslenska krónan er ekkert eyland því gengi breska pundsins hefur lækkað talsvert upp á síðkastið. Er nú svo komið að það hefur aldrei verið lægra gagnvart evru og öðrum gjaldmiðlum. 10.12.2008 13:46
KPMG segir sig frá rannsókn á Glitni Endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur óskað eftir því við skilanefnd Glitnis að það verði leyst undan því verkefni að rannsaka gamla Glitni í aðdraganda bankahrunsins. Gagnrýni hefur komið fram um að KPMG sé vanhæft í rannsókninni þar sem margir af helstu eigendum Glitnis hafi verið í viðskiptum við KPMG. Þessu hafnar fyrirtækið en segir ljóst að vinnufriður verði aldrei nægjanlegur og hætta sé á að allar niðurstöður verði gerðar tortryggilegar. 10.12.2008 12:14
Vatn Jóns í evrópskar einkaþotur Fyrirtæki Jóns Ólafssonar, Icelandic Water Holdings, hefur gert þriggja ára samning við þotuleiguna NetJets Europe, um sölu á Iceland Glacial vatni sínu í vélar félagsins. 10.12.2008 12:00
Stjórnvöld í Lúxemburg veiti aðgang að gögnum um bankahrunið Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur óskað eftir því við stjórnvöld í Lúxemburg að þau veiti öllum þeim aðilum sem hafa með rannsókn á falli íslensku bankanna að gera og aðdraganda þess 10.12.2008 11:49
Frumvarp um að félög geti gert upp í erlendri mynt í ár Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp um að félög geti sótt um heimild ársreikningaskrár til að gera upp í erlendri mynt á þessu ári fyrir 15. desember. 10.12.2008 11:25
Alþjóðabankinn spáir mun minni hagvexti en áður Alþjóðabankinn spáir því að hagvöxtur á heimsvísu verði 0,9% árið 2009 sem er talsvert minni hagvöxtur en stofnunin gerir ráð fyrir á þessu ári eða 2,5%. 10.12.2008 11:15
Tesco finnur fyrir samkeppninni frá Iceland Þekktasta stórmarkaðakeðja Bretlands, Tesco, finnur nú verulega fyrir samkeppninni við lágvörukeðjur á borð við Iceland og Aldi í Bretlandi. Söluaukningin hjá Iceland á síðustu þremur mánuðum nemur 11% en keðjan er að stórum hluta í eigu Baugs. 10.12.2008 10:31
Bakkavör hækkar - Exista fellur Gengi hlutabréfa í Bakkavör hækkaði um 2,27 prósent í byrjun dags í Kauphöllinni og Straums um 0,68 prósent. Á sama tíma féll verðmæti bréfa í Existu úr 14 aurum í 10, eða um rúm 28 prósent. 10.12.2008 10:08
Rio Tinto dregur saman seglin um allan heim Hið risastóra námafélag, Rio Tinto, sem meðal annars á álverið í Straumsvík er í miklum skuldavandræðum og hefur tilkynnt um uppsagnir á liðlega fjórtán þúsund starfsmönnum fyrirtækisins víðsvegar um heim. Tilkynnt var um aðgerðirnar í morgun en fyrirtækið hefur sett upp áætlun sem miðar að því að lækka gríðarlegar skuldirfélagsins sem eru taldar nema um 40 milljörðum bandaríkjadala. 10.12.2008 09:59
Lánuðu sjálfum sér Nítján svonefndar stórar áhættuskuldbindingar voru hjá stóru bönkunum þremur, um síðustu áramót. Heildarfjárhæð þessara skuldbindinga var ríflega 930 milljarðar króna og um 95 prósent af eiginfjárgrunni bankanna. 10.12.2008 09:45
Sparisjóðabankinn fær frest til enda janúar Seðlabankinn hefur frestað veðkalli á hendur Sparisjóðabankanum (áður Icebank) sem taka átti gildi í dag. Fresturinn er til 28. janúar á næsta ári. 10.12.2008 09:43
Carnegie í mál við sænsk stjórnvöld, deilt um forsvarið Hlutafjáreigendur í móðurfélagi Carnegie bankans í Svíþjóð ætla í mál við Lánastofnun sænska ríkisins (Riksgälden) og forstjóra hennar Bo Lundgren vegna yfirtöku sænska ríkisins á Carnegie fyrr í vetur. 10.12.2008 09:31
Bretland á barmi kreppu Breska hagkerfið dróst saman um eitt prósent frá september fram í enda nóvember, sam kvæmt nýbirtum gögnum bresku hagstofunnar. Dragist hagvöxtur saman tvo fjórðunga í röð má segja að samdráttarskeið sé runnið upp, samkvæmt þumalfingursreglum. Sú stund er nú næstum runnin upp í Bretlandi en hagkerfið dróst saman um hálft prósentustig á þriðja ársfjórðungi. 10.12.2008 09:04
Bylgja af gjaldþrotum skellur á Danmörku Bylgja af gjaldþrotum fyrirtækja skellur nú á Danmörku af miklum krafti og sjá því margir Danir fram á fremur döpur jól í ár. 10.12.2008 07:44
Heimsmarkaðsverð á olíu fer aftur hækkandi Heimsmarkaðsverð á olíu fer nú aftur hækkandi þar sem menn telja auknar líkur á að OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja muni draga verulega úr framleiðslu sinni í þessum mánuði. 10.12.2008 07:42
Töluverð uppsveifla á Asíumörkuðum Töluverð uppsveifla varð á mörkuðunum í Asíu í nótt, þriðja daginn í röð í þessari viku. 10.12.2008 07:35
Landsbankinn óskar eftir gjaldþroti í Bandaríkjunum Landsbankinn hf. hefur óskað eftir gjaldþroti í Bandaríkjunum og hafa þá allir þrír stóru bankarnir hérlendis óskað eftir slíku. 10.12.2008 06:30
Miðlað af reynslu Svía „Lærdómur Svía af fjármálakreppu tíunda áratugarins – byrðunum dreift og nýjar vonir vaktar,“ nefnist fyrirlestur sem Göran Persson fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, heldur í hátíðasal Háskóla Íslands klukkan 12 í dag. 10.12.2008 06:00
Innlausn sjóða enn frestað „Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga útgefna af SPRON er enn í gildi, er innlausnum hlutdeildarskírteina í tveimur sjóðum gamla Glitnis áfram frestað,“ segir í tilkynningu bankans. 10.12.2008 06:00
Alþingi samþykkti upprunalega áætlun um Icesave Alþingi samþykkti á föstudag þingsályktun sem heimilar ríkisstjórninni að ganga til samninga um Icesave málið. Forsenda þeirra viðræðna er að Íslendingar ábyrgist innistæður á reikningum upp að 20.887 evrum á hvern reikning. Málið tengist náið efnahagsaðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ýmsum þjóðum. En sem kunnugt er fékkst sú aðstoð ekki fyrr en Icesave málinu var landað. 10.12.2008 00:01
Bakkabræður forðuðu þroti Existu Allir núverandi hluthafar Existu fá að vera með í forgangsréttarútboði félagsins á næsta ári. Heimild til hlutafjáraukningar verður lögð fyrir hluthafafund félagsins fyrir áramót. 10.12.2008 00:01
Heilræði Schraders eiga sérstakt erindi nú Þýskættaður Bandaríkjamaður að nafni George H. F. Schrader eyddi hér síðustu þremur árum ævi sinnar áður en hann fyrirfór sér árið 1915, aðeins 57 ára gamall. Schrader bjó á Akureyri og sinnti margvíslegu menningar- og uppbyggingarstarfi. Hann skrifaði bók um hesta og aðra þar sem hann deildi fróðleik sínum úr heimi viðskiptanna í Bandaríkjunum. Sú bók heitir „Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum“ og er nýkomin út í þriðju útgáfu. 10.12.2008 00:01
Lækkun í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag. Hlutabréf í Bandaríski póstþjónusturisinn FedEx Corp. féll um 10,8 prósent og versnar staða fyrirtækisins með degi hverjum. 9.12.2008 21:21
KPMG vill fá óháðan aðila til að skoða störf sín fyrir Glitni KPMG vill að fenginn verði sérstakur óháður aðili til að rannsaka störf sín fyrir Glitni. Fjármáleftirlitið fól skilanefndum gömlu bankanna að ráða óháðan aðila til að kanna ákveðin skilgreind atriði í aðdraganda bankahrunsins. 9.12.2008 17:05
Illinois ríki í stríð við Bank of America Fjölskyldufyrirtækið Republic Windows & Doors í Chicago tilkynnti með þriggja daga fyrirvara að fyrirtækinu yrði lokað vegna þess að Bank of America hefði lokað lánalínum. 9.12.2008 18:15
Stendur sterkt og á 140 milljónir punda hjá Nýja Kaupþingi Bakkavör á 140 milljónir punda hjá Nýja Kaupþingi banka og stendur sterkt samkvæmt tilkynningu frá stjórn Bakkavör Group. Þar kemur fram að rekstur félagsins sé arðbær, sjóðsmyndun sterk og félagið njóti góðra tengsla við bæði viðskiptavini og birgja og viðskiptakjör milli aðila séu eðlileg. 9.12.2008 17:52
Úrvalsvísitalan komin aftur á miðjan síðasta áratug Úrvalsvísitalan féll um rúm 40% í dag og er gildi hennar, 395 stig, því komið aftur á þær slóðir sem það var um miðjan síðasta áratug. 9.12.2008 16:48
Kópavogsbær gerir ráð fyrir hallalausum rekstri á næsta ári Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2009, sem verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, er gert ráð fyrir hallalausum rekstri. 9.12.2008 16:37
Gengi krónunnar veiktist um eitt prósent í dag Gengi krónunnar veiktist um eitt prósent í dag og stendur gengisvísitalan því í rúmlega 195 stigum eftir daginn. 9.12.2008 16:15
Innlausn tveggja sjóða Glitnis enn frestað Þar sem tímabundin stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga útgefnum af SPRON er enn í gildi, er innlausnum hlutdeildarskírteina í tveimur sjóðum gamla Glitnis áfram frestað. 9.12.2008 16:10
Skattrannsóknarstjóri fékk allar tiltækar upplýsingar Skilanefnd Kaupþings banka hf. hefur veitt skattrannsóknarstjóra allar þær upplýsingar sem henni eru tiltækar og óskað var eftir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. 9.12.2008 16:00
Kauphöllin fær undanþágu frá gjaldeyrisreglum SÍ Seðlabanki Íslands (SÍ) hefur ákveðið að viðskipti með erlend verðbréf í kauphöllinni verði undanþegin takmörkunum á fjárfestingu. Þar með er framtíð færeysku félaganna fjögurra tryggð áfram í kauphöllinni. 9.12.2008 15:19
Líbanon, landið sem lenti ekki í fjármálakreppunni Íbúar Beirut í Líbanon hlægja nú alla leiðina í banka sína. Landið er nær það eina í heiminum sem ekki hefur lent í fjármálakreppunni. Það geta Líbanonbúar þakkað útsjónarsömum og framsýnum seðlabankastjóra sínum, Riad Salameh að nafni. 9.12.2008 14:58
Siv heldur áfram að spyrja um Icesave á Alþingi Siv Friðleifsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins heldur áfram að spyrja ráðherra um Icesave-ábyrgðir á alþingi. 9.12.2008 14:00
FME, SÍ og bankarnir rúnir trausti meðal almennings Fjármálaeftirlitið (FME), bankakerfið og Seðlabankinn (SÍ) eru þær stofnanir sem flestir segjast bera lítið traust til. Þannig eru 80% sem setjast bera lítið traust til Fjármálaeftirlitsins og bankakerfisins en 74% segjast bera lítið traust til Seðlabankans. 9.12.2008 13:43