Viðskipti innlent

Viðisaukaskattur og vörugjöld felld af útfluttum bílum

Alþingi samþykkti í dag lög sem heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts og vörugjalda af notuðum ökutækjum sem eru afskráð og flutt úr landi. Verulega hefur dregið úr sölu nýrra og notaðra bifreiða hérlendis á síðustu mánuðum og nú er svo komið að verulegur fjöldi ónotaðra ökutækja hefur safnast upp. Með lögunum er ætlað að greiða fyrir sölu notaðra bifreiða úr landi sem auka mun gjaldeyristekjur þjóðarbúsins til skamms tíma, jafnframt því að ýta undir það að hjól atvinnulífsins fari að snúast á ný. Þá er vonast til þess að lögin flýti fyrir fjölgun vistvænna ökutækja í umferðinni.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×