Ríkissjóður þarf að greiða út 50 milljarða kr. á morgun 11. desember 2008 11:50
Ríkissjóður þarf að öllum líkindum að greiða út yfir 50 milljarða kr. á morgun vegna gjalddaga ríkisbréfa. Erlendir fjárfestar geta væntanlega á sama tíma keypt gjaldeyri fyrir upphæð sem samsvarar vaxtagreiðslum til þeirra, og gætu þau kaup hlaupið á 6-8 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að slíkir vaxtagreiðsludagar virðast raunar vera eina leið erlendra fjárfesta til að selja krónur fyrir erlendan gjaldeyri um þessar mundir. Vaxtagjöld teljast til þáttagjalda og falla því innan þeirrar skilgreiningar Seðlabankans á gjaldeyrisviðskiptum tengdum viðskiptajöfnuði sem heimilar eru samkvæmt nýlegum reglum bankans. Miklar vangaveltur hafa verið á markaði um hvort veruleg gjaldeyriskaup muni eiga sér stað á morgun samhliða gjalddaga ríkisbréfaflokksins RIKB 08 1212. Líklega má rekja veikingu krónunnar í gær og fyrradag að einhverju leyti til þess að seljendur gjaldeyris haldi að sér höndum fram á morgundaginn í von um að fá þá betra verð fyrir hann. Áhugi fjárfesta á nýjum ríkisbréfaflokki, RIKB 10 1210, var fremur dræmur í fyrsta útboði þess flokks í gær. Alls bárust tilboð í þann flokk að fjárhæð tæplega 20 milljarða kr. og var tilboðum tekið fyrir 11,5 milljarða kr. að nafnvirði. Ávöxtunarkrafa í útboðinu var 14,25%. Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að Seðlabankinn muni taka í taumana ef útlit er fyrir verulega veikingu krónu vegna útflæðis tengt þessum vaxtagreiðslum. Gæti hann til að mynda gripið til þess ráðs að greiða hinum erlendu fjárfestum beint af gjaldeyrisforða sínum eða lagt til gjaldeyri á millibankamarkað. "Verður fróðlegt að sjá hvað verður uppi á teningnum á morgun í þessu efni því það mun væntanlega gefa ákveðið fordæmi fyrir komandi vaxtagreiðsludaga ríkistryggðra bréfa," segir í Morgunkorninu
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira