Viðskipti innlent

Telur ólíklegt að íslenski viðskiptaráðherrann geti aflétt bankaleynd í Luxemburg

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.

Mér fyndist það ótrúlegt ef íslenski viðskiptaráðherrann gæti aflétt bankaleynd í Luxemborg, segir starfsmaður fjármálaeftirlitsins þar í landi, sem spyr jafnframt hvaða upplýsingar íslensk stjórnvöld vilji fá.

Í yfirlýsingu sem Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sendi frá sér í gær kemur fram að þung áherlsa sé lögð á að stjórnvöld í Lúxemborg veiti þeim sem hafa með rannsókn á falli íslensku bankanna að gera nauðsynlegan aðgang að gögnum í dótturfélögum íslensku bankanna. Á mbl.is kom fram að Björgvin hafi sent bréf til yfirvalda í Luxemborg þar sem fram kom að Íslendingar gætu ekki selt dótturfélg þar í landi eða eignir frá þeim nema það væri tryggt að aðgangur að þessum upplýsingum væri betri en núna. Lúxemborg hefur fengið undanþágu frá Evrópusambandinu varðandi lög um bankaleynd. Í borginni ríkir mjög sterk hefð fyrir bankaleynd og hefur hún verið nefnd hið fullkomna skjól fyrir fjármagnsflótta.

Patrick Wagner sem starfar í þeirri deild fjármálaeftirlitsins í Lúxemborg sem hefur eftirlit með bönkunum telur afar ólíklegt að íslenskur viðskiptaráðherra geti aflétt bankaleynd.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×