Áldrifin endurreisn Íslands gæti tafist að mati Fitch 12. desember 2008 08:35
Matsfyrirtækið Fitch Ratings telur að áætlanir íslenskra stjórnvalda um áldrifna endurreisn Íslands muni líklega taka lengri tíma en stjórnvöld telja. Hækkandi álverð og þar með útflutningsverðmæti landsins eru lykilatriði í áætlunum stjórnvalda en raunveruleikinn verður annar. Í nýrri skýrslu Fitch um Íslands sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans kemur m.a. fram að verð á áli og annarri hrávöru á heimsmarkaðinum fari nú lækkandi. Ísland reiði sig hinsvegar á tekjur af álútflutningi eftir bankahrunið enda er útflutningsverðmætið á áli nú hærra en á fiskinum. Álið nam um 40% af öllum útflutningi Íslands á fyrstu tíu mánuðum ársins samanborið við 27% á sama tímabili í fyrra. "Hinsvegar um leið og Ísland hefur orðið háðara áltekjum hefur verðið lækkað um 30% á árinu," segir Fitch. Ástæðan er einföld segir Fitch. Mikið af nýjum álverum hafa komist í gagnið á þessu ári og því síðasta, á sama tíma og markaðsverðið lækkar og verulega er verið að draga úr framleiðslunni. Fitch segir að á sama tíma og íslensk stjórnvöld byggi helst vonir sínar á skörpum viðsnúningi á viðskiptahalla landsins, keyrður að miklu leyti á minnkandi innflutningi, gætu versnandi efnahafshorfur á alþjóðavísu sett strik í reikninginn.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira