Viðskipti innlent

Rólegt í kauphöllinni

Markaðurinn í kauphöllinni opnaði á rólegum nótum í morgun. Viðskiptin eru orðin 20 talsins og heildarupphæðin rúmlega 83 milljónir kr. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,25% og stendur í 376 stigum.

Mesta hækkun hefur orðið hjá Marel eða 1,7% og Össur eða 1.1%.

Mesta lækkun hefur orðið hjá Exista eða 16,7% og kostar hluturinn þar núna 5 aura. Straumur hefur lækkað um 2,6%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×