Viðskipti innlent

Fjöldi kaupsamninga undir meðallagi

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga vegna húsnæðiskaupa var í síðustu viku talsvert undir meðallagi síðustu tólf vikna, sem líka er langt undir meðaltali sömu tólf vikna í fyrra.

Á síðustu tólf mánuðum hefur húsnæðisverð lækkað um tæplega tvö og hálft prósent að nafnviðri, en samkvæmt nýrri skýrslu IFS-greiningar hefur húsnæðisverð lækkað um 16 prósent að raunverði. IFS spáir að það þurfi að lækka enn um 25 til 30 prósent svo að jafnvægi náist á markaðnum miðað við 10 til 15 prósenta launahækkanir á næstu þremur árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×