Viðskipti innlent

Landic Property vinnur að stefnumótun fyrir framtíðina

Landic Property vinnur nú að því að móta nýja stefnu fyrir félagið í kjölfarið á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Vinnan felur m.a. í sér úttekt á rekstri og efnahag félagsins með það að markmiði að styrkja fjárhagsstöðu þess. Landic Property hefur samið við UBS Investment Bank og Catella Corporate Finance um ráðgjöf við stefnumótunina. Niðurstöðu er að vænta fyrir lok janúar 2009, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

„Ég er bjartsýnn eftir frumviðræður við helstu hagsmunaaðila félagsins að þessi vinna skili góðum árangri og að eftir standi sterkt fasteignafélag," segir viðars Þorkelsson forstjórai Landic. Og jafnframt að áhugi hefur komið fram um að fjárfesta í félaginu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×