Fleiri fréttir

Hlutabréf tóku dýfu á nýjum fjórðungi

Það er ekki hægt að segja annað en að þriðji ársfjórðungur hafi byrjað með skelli í Kauphöll Íslands í dag. Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, féll um 7,7 prósent og Existu um 7,45 prósent.

Bandaríkjadalur að snúa við

Gengi bandaríkjadals gagnvart öðrum gjaldmiðlum er að nálgast lægsta gildi og mun hækka fljótlega á ný. Þetta sagði David Darst, forstöðumaður hjá bandaríska fjárfestingabankanum Morgan Stanley á viðskiptafréttastöðinni CNBC í dag.

Veltumesta hálfa ár í sögu Kauphallarinnar

Nú þegar helmingur ársins er liðinn er veltan á árinu orðin 4.290 milljarðar og er það 31% meiri velta en á síðari hluta síðasta árs. Eins og fram hefur komið hefur verið gríðarleg velta með skuldabréf og er hún 80% af heildarveltu ársins.

Starfsfólk Iceland Express beðið um að taka launalaust leyfi

Lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er að stærstum hluta í eigu Fons sem einnig rekur Iceland Express hyggst segja upp 200 manns vegna hækkandi eldneytisverðs. Jafngildir þar um 20% fækkun starfsfólks. Iceland Express hefur einnig gripið til aðgerða til að hagræða í rekstri.

Fjórðungur fyrirtækja skilar ársreikningi of seint

Um fjórðungur fyrirtækja á enn eftir að skila ársreikningum fyrir tekjuárið 2006, tíu mánuðum eftir að skilafrestur rann út. Þetta kemur fram í könnun fyrirtækisins CreditInfo Ísland. Í tilkynningu frá féalginu segir að þetta þýði að að fjöldi fyrirtækja sem enn eigi eftir að skila ársreikningum sé ríflega 6100.

Íslenskir fjárfestar kaupa apótekakeðju í Úkraínu

Íslenskir fjárfestar undir forystu Jónasar Tryggvasonar hafa fest kaup á apótekakeðjunni Salve í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MP Fjárfestingarbanka sem hafði milligöngu um viðskiptin.

Glitnir gerir ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum

Greiningadeild Glitnis gerir ráð fyrir að bankastjórn Seðlabankans muni ákveða að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 15,5% á vaxtaákvörðunardegi sínum næstkomandi fimmtudag.

Landic að leggja undir sig Kvosina

Fasteignafélagið Landic Property hefur keypt húsnæði Tryggingamiðstöðvarinnar við Aðalstræti 6 og 8 og verður með því langstærsti eigandi atvinnuhúsnæðis í Kvosinni í Reykjavík.

Úrvalsvísitalan niður um 1,49% í morgun

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,49% í morgun. Mest lækkaði gengi bréfa í Exista hf. um 5,85%, SPRON hf. lækkaði um 2,10% og Glitnir banki hf. lækkaði um 1,95%.

Útlit fyrir versta hlutabréfaár Kauphallar frá upphafi

Greiningardeild Kaupþings segir að ef fram haldi sem horfi á íslenskum hlutabréfamarkaði og árslokagildi Úrvalsvísitölunnar verði hið sama og nú verði um mestu lækkun á einu ári frá því útreikningur hófst árið 1993.

Færeyingar rísa og falla

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hækkaði um 3,85 prósent í Kauphöll Íslands í dag en það er jafnframt mesta hækkunin. Á sama tíma féll gengi bréfa í Eik banka um 6,93 prósent.

Baugur og Fons selja Woodward Foodservice

Baugur og Fons hafa selt bresku matvælakeðjuna Woodward Foodservice eftir því sem fram kemur í Daily Telegraph í dag. Áætlað söluverð er um þrír milljarðar samkvæmt heimildum Vísis.

Fjögur félög hafa hækkað í dag

Fjögur félög hafa hækkað í Kauphöll Íslands í dag. Þeirra mest hefur Færeyski bankinn hækkað en Eik Banki hefur lækkað mest. Úrvalsvísitalan hefur farið niður um 0,92% og stendur nú í tæpum 4.377 stigum.

Engar uppsagnir í bönkunum

„Engar fréttir eru góðar fréttir í þessu,“ segir Friðbert Traustason formaður félags íslenskra bankastarfsmanna þegar Vísir spyr hvort hann hafi heyrt af einhverjum fjöldauppsögnum hjá bönknum um þessi mánaðarmót. Friðbert segist ekkert hafa heyrt.

Álútflutningur mildar högg af háu eldsneytisverði

Greiningardeild Glitnis segir að höggið af háu innflutningverði á eldsneyti sé mildað af áhrifum hás orkuverðs á útflutningstekjur á áli. Þetta kemur fram í Morgunkorni dagsins þar sem fjallað er um minnkandi vöruskiptahalla.

Æðstu stjórnendur Icelandair ætla ekki að lækka launin sín

Icelandair sagði nýlega upp 240 manns í viðamiklum aðgerðum sem sagðar eru miða að því að endurskipuleggja rekstur félagsins og bregðast við breyttu rekstrarumhverfi vegna hækkandi eldsneytisverðs og óvissu í efnahagsmálum. Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri félagsins segir félagið ekki ætla að skera niður laun æðstu stjórnenda fyrirtækisins.

Stjórnvaldssekt á hendur Sundum felld úr gildi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um einnar milljónar króna stjórnvaldssekt á hendur félaginu Sundi vegna ófullnægjandi upplýsingagjafar.

Krónan styrkist eilítið

Gengisvísitala krónunnar veiktist eilítið við opnun gjaldeyrismarkaða í morgun, eða um 0,30 prósent.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði um einn dal í morgun

Heimsmarkaðsverð á olíutunnu hækkaði um einn dal í morgun og stendur nú í 142 bandaríkjadölum. Reuters fréttastofan hefur eftir Mark Pervan sérfræðingi hjá ANZ bankanum í Melbourne í Ástralíu að ástæðuna megi rekja lágs gengis Bandaríkjadals og spennu í samskiptum Ísraela og Írana

Vilja flytja Moss Bros af aðallista kauphallarinnar í London

Hluthafar í Moss Bros hafa farið fram á að félagið verði tekið af aðallista kauphallarinnar í London og skráð á AIM-listann sem er hliðarlisti í kauphöllinni. Telja menn að menn því sé hægt að spara töluverða peninga.

Hamborgari seldist upp á Burger King

Burger King veitingastaður í London sem keppir um að afgreiða dýrasta hamborgara í heimi lenti í því að sá hamborgari seldist upp. Og þó kostaði stykkið af honum tæplega 15.000 kr.

Jón Ásgeir: Eyði ekki tíma mínum í að hata aðra menn

Jón Ásgeir Jóhannesson starfandi stjórnarformaður Baugs segir að Baugur muni á næstunni flytja einhver íslenskra félaga sinna úr landi líkt og Vísir greindi frá 12. júní síðastliðinn. Sjálfur muni hann segja sig úr stjórnum allra félaga Baugs sem verða áfram innanlands innan fjögurra mánaða.

Ilva Jákups í gjaldþrotameðferð

Breska húsgagnakeðjan Ilva Furniture er komin í gjaldþrotameðferð eftir því sem bresk blöð greina frá. Ilva er í eigu íslenska fjárfestingafélagsins Lagersins sem er aftur í eigu Jákups Jacobsen, sem oftast er kenndur við Rúmfatalagerinn.

Kaupþing skráir indverskan sjóð á AIM markaðinum í London

Kaupþing mun á mánudag skrá indverskan fjárfestingasjóð á AIM markaðinum sem er einn af undirmörkuðum kauphallarinnar í London. Sjóðurinn ber nafnið Infrastructure India og ræður yfir 40 milljónum punda, eða um 6 milljörðum kr. til að byrja með.

Kaupþing lækkar vexti

"Við erum mjög ánægð með þessa niðurstöðu," segir Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Kaupþings sem mun lækka vexti á húsnæðislánum um 0,35% á mánudaginn.

Spron lækkaði mest í Kauphöllinni

Spron hf. lækkaði mest allra félaga í Kauphöll Íslands í dag eða um 2,92%. Alls lækkuðu níu félög en sjö félög hækkuðu. Úrvalsvísitalan lækkaði.

Krónan veik í morgunsárið

Gengisvísitalan hefur hækkað um 1,48 prósent það sem af er á markaði í dag. Krónan hefur því veikst sem því nemur og er vísitalan nú í 165 stigum. Engar hækkanir hafa verið í kauphöllinni enn sem komið er en sex félög hafa lækkað.

Einkunn TM lækkuð vegna skulda FL Group

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað einkunn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og dótturfélags þess, Nemi Forsikring ASA í Noregi, úr BBB í BBB-.

Hlakkar til aukinnar samkeppni

Halldór Óskar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi, er spenntur fyrir aukinni samkeppni þegar verslunin opnar hér á landi. Halldór var gestur Sindra Sindrasonar í viðskiptaþættinum Í lok dag.

Sjá næstu 50 fréttir