Viðskipti innlent

Glitnir gerir ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum

Bankastjórn Seðlabankans ásamt aðalhagfræðingi.
Bankastjórn Seðlabankans ásamt aðalhagfræðingi.

Greiningadeild Glitnis gerir ráð fyrir að bankastjórn Seðlabankans muni ákveða að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 15,5% á vaxtaákvörðunardegi sínum næstkomandi fimmtudag.

Telur Greiningadeildin að bankastjórnin muni í rökum sínum fyrir ákvörðuninni leggja áherslu á að verðbólgan hafi aukist undanfarið og að verðbólguhorfur séu slæmar. Bankinn muni leggja áherslu á nauðsyn þess að hann veiti verðbólguvæntingum ankeri en verðbólguvæntingar hafi verið að færast í aukanna undanfarið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×