Fleiri fréttir

Krónan veikist aftur

Gengi krónunnar hefur veikst um 0,6% í fyrstu viðskiptum á gjaldeyrismarkaðinum í morgun. Er gengisvísitalan nú í 162,5 stigum.

Enn minnkar atvinnuleysi í Danmörku

Atvinnuleysi í Danmörku er nú hið minnsta sem það hefur verið í yfir 30 ár. Samkvæmt nýjum tölum er atvinnuleysið nú aðeins 1,7% eða sem svarar til 47.500 manns.

Gera ráð fyrir veikri krónu

"Við gerum ráð fyrir veikri krónu fram eftir haustinu," sagði Jón Bjarki Bendtsson hjá greiningardeild Glitnis sem var gestur Ingimars Karls Helgasonar viðskiptaþættinum Í lok dags.

Krónan mun áfram eiga erfitt uppdráttar

Greiningardeild Glintis gerir ráð fyrir því að krónan muni eiga erfitt uppdráttar í bráð og að gengi hennar muni áfram einkennast af miklum sveiflum næstu mánuðina.

365 hækkaði mest í dag - viðskipti fyrir 16 þúsund krónur

Gengi bréfa í 365, sem gefur meðal annars út Fréttablaðið og heldur úti Vísi.is, hækkaði um 3,48 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á móti féll gengi bréfa í færeyska flugfélaginu Atlantic Airways á sama tíma um 6,83 prósent.

Hekla flytur alla notuðu bílana í Árbæinn

Öll starfsemi Bílaþings Heklu hefur verið sameinuð á 1.600 fermetra athafnasvæði að Kletthálsi 1B í Árbæ undir nýju nafni - Hekla notaðir bílar. Í fréttatilkynningu frá Heklu kemur fram að af því tilefni verði haldin vegleg opnunarhátíð á nýja staðnum á morgun þar sem boðið verður upp á 20% afslátt á öllum notuðum bílum og hagkvæma fjármögnunarmöguleika í erlendri mynt.

Geysir Green sektað vegna upplýsingaskorts

Samkeppniseftirlitið hefur sektað Geysi Green Energy um hálfa milljón króna vegna þess að fyrirtækið svaraði ekki ósk embættisins innan tiltekins frest í tengslum við áformaðan samruna við Reykjavík Energy Invest.

Krónan rís hratt upp úr gröfinni

Gengi krónunnar hefur risið hratt í dag en hún hefur nú styrkst um rúm 3,7 prósent. Til samanburðar hafði hún styrkst um 2,6 prósent um hádegisbil.

Norðmenn hækka stýrivexti

Norski seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta. Við það fara vextirnir í 5,75 prósent.

Krónan braggast

Það sem af er degi hefur krónan braggast nokkuð eftir veikindi síðustu daga. Gengisvísitalan hefur lækkað um 2,65 stig í morgun og hefur gengið styrkst sem því nemur.

Volvo að komast í eigu Kínverja

Ford á nú í samningum við kínverskt félag um kaup á Volvo bílunum. Þetta kemur fram á vefsíðu Börsen í morgun.

Greining Glitnis stendur við spá um 7% lækkun fasteignaverðs

Greining Glitnis spáir því að fasteignaverð muni lækka um 7% á árinu. Um er að ræða óbreytta spá greiningar frá í fyrra mánuði. Heldur spáin að mati greiningarinnar þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar á fasteigna- og fjármálamarkaði.

Evran komin undir 130 krónurnar

Gengi krónunnar hefur styrkst um 0,97 prósent í upphafi dags á gjaldeyrismarkaði og stendur vísitala hennar í 166,2 stigum. Gengið hefur veikst um fjörutíu prósent frá áramótum. Þar af um tíu prósent frá mánaðamótum.

Nýr framkvæmdastjóri Össurar í Ameríku

Mahesh Mansukhani hefur verið ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri Össurar í Ameríku. Mahesh tekur við af Eyþóri Bender sem mun starfa áfram sem ráðgjafi hjá félaginu.

Times fjallar um sölu Baugs á Booker Group

Breska blaðið The Times fjallar um sölu Baugs og Fons á heildsölukeðjunni Booker Group. Um var að ræða rúmlega 31% hlut sem seldur var á yfir 100 milljónir punda.

Bankahólfið: Minnisleysa

Íslensk erfðagreining ku ætla að rannsaka hvaða erfðaþættir það séu sem hafi áhrif á minni, athygli og hraða hugsunar. Illkvittnir sáu samstundis glitta í gagnsemi rannsóknarinnar.

Listir og fjármál mætast í sýningarsalnum

Norræna ferða- og verðlaunasýningin Carnegie Art Awards var opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi í síðustu viku. Áratugur er liðinn frá því að sænski fjárfestingarbankinn Carnegie ýtti þeim úr vör.

Samband íslenskra samvinnufélaga lifir góðu lífi

Samband íslenskra samvinnufélaga er ennþá til, þótt eignir þess séu ekki nema brot af því sem mest var undir lok síðustu aldar. Starfsemi þess er í lágmarki en eignir þess í skráðum félögum kynnu að hlaupa á milljörðum króna, þrátt fyrir miklar lægðir á hlutabréfamarkaði.

Saddam Hussein var meginóvinur Al-Kaída-samtakanna

Dr. Tom G. Palmer, varaforseti alþjóðamála hjá Cato-samtökunum, var á Íslandi á dögunum á vegum Sumarháskóla Rannsóknar­miðstöðvar samfélags- og efnahagsmála á Bifröst. Hann telur árásina í Írak hafa verið vind í segl Al-Kaída.

365 frestar sex mánaða uppgjöri um mánuð

365, sem rekur meðal annars Vísi, hefur sent tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem fram kemur að birtingu sex mánaða uppgjöris félagsins verði frestað um tæpan mánuð. Uppgjörið verður birt 28. ágúst í stað 30. júlí.

DeCode fellur eftir flug

Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um rúm 5,3 prósent og fór í 0,89 dali á hlut á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í verði. Svartsýni í skugga hás olíuverðs setti mark sitt á daginn á bandarískum hlutabréfamarkaði.

Væntingar í BNA ekki minni í 16 ár

Væntingar bandarískra neytenda hafa ekki verið minni í meira en 16 ár samkvæmt bandarísku væntingavísitölunni. Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings.

Krónan styrktist í enda dags

Gengi krónunnar styrktist um 0,16 prósent síðla dags og stendur vísitalan í 167,8 stigum. Vísitalan fór yfir 170 stiga múrinn í gær og hafði hún aldrei verið lægri.

Icelandair enn á flugi

Gengi hlutabréfa í Icelandair hélt áfram langfluginu í dag. Það hækkaði um 1,61 prósent og endaði í 15,75 krónum á hlut. Einungis Kaupþing hækkaði á sama tíma um 0,0,38 prósent.

Nýr forstjóri hjá Egilssyni hf.

Kjartan Örn Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Egilssonar hf., sem rekur meðal annars Office 1 búðirnar. Hann tekur við af Agli Þór Sigurðssyni sem gegnt hefur starfi forstjóra frá árinu 1978 en verður nú stjórnarformaður fyritækisins.

Baugur og Fons græða 14 milljarða á Booker-sölu

Milton, félag Baugs Group og Fons, hefur selt 31,4% hlut sinn í heildsölukeðjunni Booker Group. Áætlaður söluhagnaður er um 14 milljarðar króna samkvæmt heimildum Vísis. Baugur á 71% hlut í Milton en Fons 29%.

Aðgerðirnar viðamiklar og erfiðar

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir aðgerðir sem fyrirtækið hefur þurft að grípa til séu mjög viðamiklar og erfiðar. Fyrirtækið hefur sagt upp 240 manns í 190 stöðugildum, 138 flugfreyjum, 88 flugmönnum og öðru starfsfólki.

Íslenskir neytendur orðnir verulega svartsýnir

Íslenskir neytendur eru svartsýnir á stöðu og horfur í efnahags- og atvinnulífi um þessar mundir. Væntingavísitala Gallup, sem birt var í morgun, mælist 67,9 stig í júní og hefur lækkað um 17,9% frá fyrri mánuði.

Verðið á áltonninu að ná fyrra meti

Álverð hefur farið hækkandi undanfarið og náði í gær sínu hæsta gildi í rúma þrjá mánuði er verð á áltonninu fór upp í 3.169 Bandaríkjadali.

Forsætisráðherra: Gengi krónunnar ýkt

Búist hafði verið við veikingu krónunnar í kjölfar loka stórframkvæmda en staða hennar nú er ýkt að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem í morgun ávarpaði málþing fjárfesta í Lundúnum.

Enn flýgur Icelandair

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur hækkað umm 1,29 prósent frá því viðskipti hófust á hlutabréfamarkaði í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er jafnframt eina félagið sem hefur hækkað í dag.

Gengið aftur í frjálsu falli

Gengi íslensku krónunnar heldur áfram að falla. Frá opnun markaðarins í morgun hefur gengisvísitalan hækkað um 0,74% og gengið veikst sem því nemur. Er gengisvísitalan nú í tæplega 170 stigum.

United Airlines segir upp 950 flugmönnum

Það eru fleiri flugfélög en íslensk sem eiga í vandræðum vegna hækkandi eldsneytisverðs því í dag greindu forsvarsmenn bandaríska flugféalgsins United Airlines frá því að þeir myndu segja upp 950 flugmönnum í sumar

Sjá næstu 50 fréttir