Ekki kunnugt um að fjármálafyrirtæki hafi brugðist trausti stjórnvalda 27. júní 2008 12:38 MYND/Stöð 2
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi verið í ágætu samstarfi við samtök fjármálafyrirtækja og honum er ekki kunnugt um að menn hafi brugðist trausti í hennar garð. Þetta sagði hann þegar hann var spurður út í meint innherjasvik Landsbankans. Kauphöll Íslands rannsakar nú viðskipti Landsbankans með húsbréf daginn sem ríkisstjórnin kynnti aðgerðir sínar á fasteignamarkaði. Grunur leikur á að bankinn hafi vitað um aðgerðirnar áður en þær voru kynntar opinberlega og nýtt sér vitneskjuna til þess að hagnast.Kauphöllinni hafa borist formlegar og óformlegar kvartanir vegna viðskipta Landsbankans með íbúðabréf, sama dag og ríkisstjórnin tilkynnti um breytingar á sjóðnum. Þetta staðefsti Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun. Málið er nú í rannsókn en margt bendir til þess að Landsbankinn hafi haft vitneskju um aðgerðir ríkisstjórnarinnar áður en þær voru kynntar opinberlega.Viðskipti bankans með íbúaðbréf margfölduðust rétt fyrir lokun markaðar eða tæpri klukkustund áður en ríkistsjórnin tilkynnti um aðgerðirnar á blaðamannafundi.Ekki liggur fyrir hvernig upplýsingar um aðgerðirnar láku út til bankans en í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær kom fram að til væri tölvupóstur þar sem Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, segist vita um aðgerðirnar 20 mínútum fyrir lokun gjaldeyrismarkaðar.Geir H. Haarde, forsætisráðherra, vildi lítið tjá sig um málið í morgun þegar hann var spurður hvað gæti skýrt þennan leka. „Við höfum verið í ágætu samstarfi við Samtök fjármálafyrirtækja og mér er ekki kunnugt um að það hafi menn brugðist trausti í okkar garð," sagði Geir í morgun.Ekki liggur fyrir hvenær rannsókn Kauphallarinnar lýkur en að sögn Þórðar Friðjónssonar verður lögð áhersla á að ljúka rannsókn málsins sem fyrst.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira