Viðskipti innlent

Viðskipti með hluti í Kaupþingi og Landsbankanum fyrir 4,6 milljarða

Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans.
Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans.

Viðskipti hafa verið með hluti í Kaupþingi og Landsbankanum fyrir samtals 4,6 milljarða króna í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Kaupþingsbréfin voru seld á 763 á hlut en bréf í Landsbankanum voru seld á genginu 23,05. Bæði þessi fyrirtæki hafa lækkað gríðarlega það sem af er ári. Kaupþing hefur lækkað um 14,9% það sem af er ári og Landsbankinn um 35,9%.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×